Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 94
Króatía vann
í gær sigur á Dan-
mörku, 28-26, í 2. riðli.
Leikurinn var æsi-
spennandi og var jafnt,
25-25, þegar skammt
var til leiksloka. Sem
fyrr reyndist Ivano
Balic betri en enginn í þeirri
stöðu og tryggði hann sigurinn.
Króatía, Spánn og Ungverja-
land eru öll með fjögur stig í
riðlinum en hin liðin þrjú án
stiga.
Frakkland vann öruggan sigur
á Pólverjum þrátt fyrir að hafa
verið marki undir í hálfleik.
Lokatölur 31-22.
Þá vann Grænland sinn fyrsta
sigur á HM með góðum 34-25
sigri á Áströlum.
Ísland stendur vel að
vígi í milliriðli HM eftir frábæran
sex marka sigur, 36-30, á sterku
liði Túnis. Frábær varnarleikur og
markvarsla Rolands Vals Eradze í
síðari hálfleik vann leikinn fyrir
Ísland.
Logi Geirsson var frekar óvænt
í byrjunarliðinu en hann æfði ekk-
ert daginn fyrir leik vegna togn-
unar í ökkla. Það var ekki að sjá á
honum að ökklinn væri að pirra
hann því Logi lék frábærlega.
Fyrri hálfleikur byrjaði vel hjá
íslenska liðinu sem mætti mjög
ákveðið til leiks og tók strax frum-
kvæði í leiknum.
Túnisum óx ásmegin mjög fljót-
lega og íslensku strákarnir réðu
mjög illa við hraðann í Túnislið-
inu. Þeir komust yfir, 6-8, eftir níu
mínútur og þá tók Alfreð þjálfari
leikhlé og setti í kjölfarið Roland
Eradze í markið.
Það breytti litlu því vörn Túnisa
var búin að skella í lás og íslensku
strákarnir voru í verulegum vand-
ræðum með að finna göt á vörn
þeirra. Á sama tíma var íslenska
vörnin í miklum vandræðum.
Alfreð skipti mörgum mönnum
af bekknum og ýmislegt var reynt
enda Túnisarnir við það að stinga
af. Mest náðu þeir fimm marka
forystu, 13-18, en íslenska liðið
kom til baka síðustu tíu mínútur
hálfleiksins og munurinn var ekki
nema þrjú mörk í leikhléi, 16-19.
Alfreð gerði taktískar breyt-
ingar á varnarleiknum í leikhléi
og byrjaði að klippa miðjumann-
inn Mgannem úr leiknum í stað
þess að einblína á skyttuna Hmam.
Það virkaði, því fát kom á sóknar-
leik Túnisa. Strákarnir gengu á
lagið og jafnt og þétt unnu þeir
upp forskot Túnisa.
Vendipunktur varð þegar Guð-
jón Valur jafnaði, 24-24, en þá voru
nítján mínútur eftir af leiknum.
Íslenska liðið fylltist gríðarlegum
krafti og sjálfstrausti í kjölfarið
og breytti engu þótt liðið missti
tvo menn af velli skömmu síðar.
Ísland komst samt yfir, 26-25, og
strákarnir litu aldrei til baka.
Leikur Túnisa hrundi algjörlega
og strákarnir okkar hreinlega
keyrðu yfir þá og lönduðu sætum
sex marka sigri, 36-30.
Leikur strákanna í gær var frá-
bær og liðið sýndi enn og aftur
þann gríðarlega karakter sem ein-
kennir það. Þeir buguðust ekki við
mótlætið og efldust við hverja
raun. Sóknarleikurinn var yfir-
vegaður og leikmenn ótrúlega
skynsamir í leik sínum. Allir voru
til í að stíga upp og strákarnir
gerðu það hver á fætur öðrum.
Það var alltaf sjálfstraust til að
skjóta. Strákarnir sem komu af
bekknum lögðu einnig þung lóð á
vogarskálarnar og breiddin sem
lengi hefur verið kvartað yfir
hefur svo sannarlega verið til
staðar í síðustu leikjum.
Varnarleikurinn og markvarsl-
an í síðari hálfleik unnu þó leikinn
og ef þetta lið nær að hafa þessa
tvo hluti í lagi vinnur það hvaða
andstæðing sem er enda er sóknar-
leikurinn enginn hausverkur. Þær
stáltaugar sem liðið hefur sýnt í
síðustu tveimur leikjum í erfiðum
stöðum vita á gott.
Strákarnir standa gríðarlega
vel að vígi í riðlinum og með álíka
frammistöðu í framhaldinu eru
þeim allir vegir færir á þessu
móti.
Tvö dýrmæt stig unnin
Valur Fannar á leið aftur til Fylkis
Með sigrinum á Túnis í gær
náði íslenska landsliðið í tvö dýr-
mæt stig í baráttunni um sæti í
fjórðungsúrslitum keppninnar.
Stigin voru þó engan veginn auð-
sótt og var það ekki fyrr en á síð-
asta stundarfjórðungnum sem
liðinu tókst að komast yfir og
snúa leiknum sér í hag.
Íslenska liðið hóf leikinn á 6-0
vörn sem kom mér nokkuð á óvart.
Fyrir fram taldi ég skynsamlegast
að spila 5-1 vörn með Guðjón Val
fljótandi fyrir framan.
Frammistaða varnarinnar var
mjög slök í fyrri hálfleik og þá
sérstaklega hægri vængur henn-
ar sem og miðjan. Helstu leik-
menn Túnis, Hmam og Mgannem,
komust upp með að skora nánast
hvenær sem þeir vildu.
Það var oft á tíðum hálf furðu-
legt að horfa á framgang varnar-
innar í fyrri hálfleik og leikmenn
virkuðu allt að því áhugalausir.
Til marks um áhugaleysið fékk
íslenska liðið ekki einn einasta
brottrekstur og varla að leikmenn
væru orðnir sveittir. Niðurstaðan
því nítján mörk fengin á okkur í
fyrri hálfleik.
Allt annað var að sjá til
íslenska liðsins í seinni hálfleik.
Greinilegt var að menn hafa vitað
upp á sig sökina enda komu þeir
mun ákveðnari til leiks. Vörnin
varðist framar og betur tókst að
trufla sóknarleik Túnis. Það tók
þó sinn tíma að komast inn í leik-
inn, ekki fyrr en á síðustu fimm-
tán mínútunum sem fyrr segir. Þá
fyrst tókst okkur að snúa leiknum
okkur í hag og breyttum stöðunni
úr 25-26 í 36-30.
Erfitt er að meta frammistöðu
einstakra leikmanna, sem var
mjög köflótt. Góður stígandi var í
leik Rolands eftir að hann kom
inn á snemma í fyrri hálfleik.
Hann varði alls fimmtán skot.
Helstu lykilmenn liðsins, Óli,
Guðjón, Alex, Logi og Snorri,
stóðu sig ágætlega í sókn en þeir
skoruðu 30 af 36 mörkum Íslands.
Allir geta þeir þó klárlega gert
betur en í leiknum í gær.
Enn og aftur átti Ásgeir Örn
sterka innkomu og nýtti hann sitt
tækifæri vel. Sömu sögu má segja
um Róbert Gunnarsson, sem kom
öflugur inn í síðari hálfleik.
Niðurstaðan er því tvö mikil-
væg stig unnin. Það er þó ljóst að
við getum ekki leyft okkur í
næstu leikjum að spila varnar-
leikinn eins illa og framan af leik
í gær. Annars er hætt við að verr
muni fara enda þau lið sem við
eigum eftir að mæta öll sterkari
en Túnis.
Liðið er nú komið með fjögur
stig og fjórtán mörk í plús, sem
getur reynst afar dýrmætt þegar
á hólminn er komið. Einn sigur í
viðbót og við erum komin í átta
liða úrslit.
Strákarnir okkar buðu aftur upp á skrautsýningu í gær þegar þeir skelltu Tún-
isum, 36-30. Það sýndi sig enn og aftur að vörn og markvarsla vinnur leiki.
„Þetta kom hjá okkur í
seinni hálfleik og þegar vörnin og
markvarslan kemur spilum við
frábærlega. Þetta er alltaf sama
sagan,“ sagði fyrirliðinn Ólafur
Stefánsson, sem átti stórleik í gær.
„Auðvitað hafði maður smá
áhyggjur í fyrri hálfleik og það
var nauðsynlegt að sýna að við
getum fylgt eftir góðum sigur-
leik. Við vorum slakir í fyrri
hálfleik en við náðum að rífa
okkur upp sem betur fer,“ sagði
Ólafur.
Getum fylgt
eftir sigri
„Þetta er lið og það
verða allir að skila einhverju og
ég reyndi að gera það,“ sagði
Ásgeir Örn Hallgrímsson, sem
átti frábæra innkomu í leikinn
rétt eins og gegn Frakklandi en
félagarnir á bekknum hafa gefið
öllu tali um enga breidd langt nef.
„Við vorum að svara gagnrýni
meðal annars og svo er þetta líka
hugarfar hjá mönnum og ég held
að hugarfarið sé rétt hjá öllum.
Sjálfstraust manna er í botni
þessa dagana.“
Erum að svara
gagnrýni
Eiður Smári Guðjohnsen
landsliðsfyrirliði kom inn á sem
varamaður í leik Real Betis og
Barcelona sem lyktaði með
jafntefli, 1-1. Souza kom Betis
yfir í fyrri hálfleik en Marquez
jafnaði metin í þeim síðari.
Innkoma Eiðs Smára var
jákvæð en dugði ekki til að
klófesta sigurinn. Varamaðurinn
Dani fékk reyndar frábært
tækifæri til að gera út um leikinn
fyrir heimamenn á lokamínútunni
en missti marks.
Eiður kom inn
á í jafntefli
Miðvallarleikmaðurinn
Mads Beierholm hefur gengið til
liðs við Fylki. Hann er 22 ára
gamall og kemur frá Sönderjiske.
Sextán ára gamall varð hann
yngsti leikmaður dönsku úrvals-
deildarinnar frá upphafi er hann
lék með Vejle og skömmu síðar
yngsti markaskorarinn. Hann
kemur til landsins um þarnæstu
mánaðamót.
Nýr Dani í
Árbæinn
Króatía vann
Danmörk