Fréttablaðið - 25.01.2007, Síða 98
Iverson-Carmelo Anth-
ony samstarfið í Denver byrjar
vel því Denver Nuggets-liðið
hefur unnið tvo fyrstu leiki sína
síðan Carmelo Anthony kom aftur
úr 15 leikja banni sínu og spilaði í
fyrsta sinn við hlið Allen Iverson.
Denver vann Memphis í endur-
komu Melo og bætti síðan við sigri
á Seattle SuperSonics, 117-112, í
fyrrinótt. Anthony, sem er þrátt
fyrir bannið stigahæsti leikmaður
deildarinnar (31,5 stig í leik), skor-
aði 34 stig í leik tvö eftir að hafa
sett niður 28 stig gegn Memphis.
Iverson var með 21 stig og 11 stoð-
sendingar gegn Seattle og skoraði
þar einnig sitt 20.000 stig á ferlin-
um.
Iverson hafði leitt Denver til
þriggja sigurleikja í röð áður en
Melo sneri aftur og liðið er því
búið að vinna fimm leiki í röð.
Iverson og Anthony
byrja vel saman
Steve Nash og félagar
í Phoenix Suns fóru illa með lið
Washington Wizards í fyrrinótt
þegar þeir tryggðu sér sinn 14.
sigur í röð, 127-105. Washington-
liðið hefur svipaða taktík og
Phoenix, spilar fljúgandi sóknar-
bolta og skorar mikið af stigum
en af marka má þennan leik eiga
Wizards-menn langt í að ná Suns.
„Ég heyrði að þá langaði til þess
að verða Phoenix austursins en
það er bara eitt Phoenix Suns-lið.
Það lið spilar í Vesturdeildinni og
þannig verður það um sinn,“ sagði
Amare Stoudemire en Suns vann
þarna sinn 30 sigur í síðustu 32
leikjum.
Fjórtán sigrar í röð
Helena Sverrisdóttir,
fyrirliði toppliðs Hauka í Iceland
Express-deild kvenna, hefur
heldur betur skilað flottum tölum
í síðustu tveimur leikjum liðsins.
Haukar hafa unnið stóra sigra á
Breiðabliki (121-42) og Hamri
(107-54) í þessum leikjum og
Helena hefur verið illviðráðanleg.
Helena skoraði 45 stig, gaf 26
stoðsendingar og stal 18 boltum á
þeim 42 mínútum sem hún spilaði
gegn Blikum og Hamarsstúlkum.
Hún nýtti enn fremur 19 af 28
skotum sínum (67,9%), þar af
setti hún niður 5 af 9 þriggja
stiga skotum sínum.
Helena hefur leikið mjög vel
með Haukum í vetur og er sem
stendur í 1. sæti í bæði stoðsend-
ingum (10,7) og stolnum boltum
(6,23), í 2. sæti í framlagi (33,6)
og í 3. sæti yfir stigahæstu
leikmenn deildarinnar en Helena
hefur skorað 23,2 stig að meðal-
tali á þeim 26,8 mínútum sem hún
hefur spilað í leik.
Helena með
frábærar tölur
Dimitar Karadzovski
er 22 ára Makedóni sem er á sínu
öðru ári í Borgarnesi. Hann er
Skallagrímsliðinu afar mikilvæg-
ur, sem sést ekki síst á því hvernig
gengi liðsins fer mikið eftir því
hversu mörg stig hann skorar í
leikjunum. Dimitar hefur leikið 46
leiki með Skallagrími í deild og
úrslitakeppni og liðið hefur enn
ekki tapað þegar hann hefur skor-
að 20 stig.
Dimitar hefur brotið 20 stiga
múrinn 13 sinnum en mikilvægi
hans sést ekki síst á gengi Skalla-
grímsliðsins þegar hann finnur sig
ekki og skorar minna en 10 stig.
Það hefur gerst 11 sinnum og
Skallagrímur hefur aðeins unnið
27% þeirra leikja.
„Við erum eins og í fyrra með
gott lið og við höfum sett stefnuna
að komast alla leið í úrslitin eins og
í fyrra,“ segir Dimitar og hann er
ekki mikið að skoða það hvað hann
skorar mikið. „Stundum þarf ég að
skora 20 stig til að liðið mitt vinni
og stundum ekki. Ég spila ekki
fyrir tölfræðina og er ánægður
þegar liðið mitt vinnur.“ Hins
vegar skiptir liðið miklu máli ef
marka má tölfræðina. „Mitt hlut-
verk í liðinu er að spila fyrir liðið
og það eru margir sem geta skorað
í okkar liði,“ segir Dimitar sem vill
spila hraðann körfubolta.
„Okkar leikur snýst um það að
keyra upp hraðan og taka þessi
opnu skot. Það er örugglega gaman
að horfa á okkur spila svona bolta
og það er mjög gaman að spila
hann,“ segir Dimitar.
Síðasti tuttugu stiga leikur
Dimitars var gegn KR á sunnu-
dagskvöldið. Hann var með 20 stig
og 7 stoðsendingar í leiknum og
Skallagrímsmenn unnu sinn annan
sigur á KR í vetur. Dimitar var
„bara“ með 16 stig í fyrri leiknum
sem er þá dæmi um leik sem Borg-
nesingar vinna án þess að hann
fylli umræddan kvóta á stigatöfl-
unni. „Það var gott að vinna þenn-
an leik og við þurfum þessi tvö stig
til að missa ekki af lestinni á toppn-
um,“ segir Dimitar.
Dimitar hefur ekki áhyggjur af
því að flest önnur lið hafi bætt við
sig leikmönnum upp á síðkastið.
„Það eru allir að tala um að við
séum ekki nægilega stórir. Það
skiptir engu meðan við erum að
spila okkar leik. Mörg lið eru að
reyna að koma boltanum inn í teig
á móti okkur en það er ekki að
ganga upp hjá þeim. Við erum
búnir að vera lengi saman, það er
góður andi í hópnum og við vinnum
vel saman og það skiptir ekki neinu
þó að okkur vanti kannski nokkra
sentimetra því við vinnum þá upp
með baráttunni,“ segir Dimitar.
Valur Ingimundarson, þjálfari
Skallagríms, er ánægður með
Dimitar og segir komu hans hafa
verið mikinn happafeng fyrir
Borgarnesliðið. „Hann getur verið
svolítið brokkgengur en yfirleitt er
hann að spila vel. Hann er góður
varnarmaður og skilur leikinn
mjög vel þannig að hann er fljótur
að læra allt,“ segir Valur, sem
hefur skólað strákinn til síðustu
tvö tímabil með góðum árangri.
Valur veit að Dimitar þarf að hitta
vel ætli Skallagrímsliðið að vinna
erfiða leiki. „Hann er mikið með
boltann og ef hann er ekki að spila
vel og skora munar öllu að hann sé
að setja niður skotin sín því hann
skýtur mjög mikið,“ segir Valur.
Dimitar kann vel við sig í
Borgarnesi og ætlar að vera þar
minnst eitt ár til viðbótar. Það eru
góðar fréttir fyrir Borgnesinga.
Skallagrímsmenn hafa staðið sig vel í Iceland Express-deild karla síðustu tvö tímabil. Frammistaða liðsins
virðist þá háð einum manni því liðið hefur unnið alla 13 leikina sem hann hefur skorað 20 stig eða meira.
edda.is
*Gildir í öllum Eymundsson verslunum.
Fyrstu 100 sem kaupa bókina fá miða á myndina í bíó!*
Verð
1.299 kr.
Metsölubók
um allan heim síðan
1952