Fréttablaðið - 25.01.2007, Qupperneq 102
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég er nokkuð viss um að einhverj-
ir svitna þegar þeir frétta að ég sé
að leggja drög að ævisögu minni,“
segir sjálfur Hemmi Gunn – ein-
hver skærasta sjónvarpsstjarna
sem þjóðin hefur alið. Í samtali við
Fréttablaðið sagðist Hemmi nú
standa á tímamótum og allt benti til
þess að nú yrði settur punktur aftan
við glæsilegan sjónvarpsferil hans.
Allra síðasti skemmtiþáttur
Hemma, „Í sjöunda himni“, á Stöð
tvö verður í kvöld. Áður hafði
Hemmi stjórnað þættinum „Það
var lagið“ sem einnig var til sýn-
inga á Stöð 2.
„Það þurfti reyndar að draga
mig með töngum til að taka að mér
„Það var lagið“ og ég var efins um
að ég hefði áhuga á endurkomu á
skjáinn með þessum hætti,“ segir
Hemmi en bætir því við að starf við
fjölmiðla sé ólæknandi baktería. Og
því sé ef til vill óvarlegt af sér að
skjóta loku fyrir það með öllu að
hann og sjónvarp séu skilin að skipt-
um. Hemmi verður sem fyrr fasta-
gestur hjá Heimi Karls og Guðna
Bergs í umfjöllun þeirra um Meist-
aradeildina. En nú taka við ný ævin-
týri og ný verkefni. Hemmi er nú
að vinna að ævisögu sinni.
„Fyrir fjörutíu árum var fyrst
komið að máli við mig og ég beðinn
um að skrifa ævisögu mína,“ segir
Hemmi og hlær sínum fræga hlátri.
Og gefur til kynna að þá honum hafi
fundist hann vera allt of ungur að
árum – rétt rúmlega tvítugur mað-
urinn. En Hemmi hélt upp á sex-
tugsafmæli sitt í síðasta mánuði.
„Þegar ég flutti svo til Taílands
[fyrir þremur árum] var hugmynd-
in sú að ég myndi skrifa ævisöguna
meðan ég mundi nokkurn veginn
hvernig í þessu liggur. Svo var ég
plataður út í veitingarekstur og
ekki gafst tími til skrifa. Ég punkt-
aði hins vegar nokkra hluti hjá
mér.“
Saga Hemma yrði ekki eitthvað
„rjómatertubox“ eins og Hemmi
kemst sjálfur að orði. Og segir hann
jafnframt að fara muni um mann og
annan við þessi tíðindi. En Hemmi
má, líkt og þjóð má vita, muna tím-
ana tvenna og er af ýmsu að taka
þegar ævintýralegt lífshlaup hans
er annars vegar.
„Ljósið hefur þó verið ráðandi,
sem betur fer, og það væri ekkert
gaman ef ég hefði ekki upplifað
mótlætið,“ segir Hemmi.
Fer þá á flug og vísar til Gróu á
Leiti sem ósjaldan hefur farið á
kreik þegar Hemmi er annars
vegar:
„Ætli ég hafi ekki síðan bókar-
auka um alla þá hluti sem ég er
sagður hafa gert.“
„Þetta var rosalega góður sátta-
fundur,“ segir sjónvarpsmaðurinn
Hugi Halldórsson, sem hefur verið
við tökur efnis fyrir stuðnings-
mannaklúbb íslenska hand-
boltalandsliðsins úti í Þýskalandi.
Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá hafa Hugi og Auðunn
Blöndal eldað grátt silfur við
Adolf Inga Erlingsson, íþrótta-
fréttamann RÚV. Adolf, eða Dolli,
hélt því fram að framganga þeirra
hefði verið hneykslanleg meðan
þeir sögðu Dolla hafa átt sinn þátt
í því að þeim var úthýst úr þýskri
handboltahöll.
Þremenningarnir hafa nú form-
lega grafið stríðsöxina og ákveðið
að standa saman í stuðningi sínum
við íslenska landsliðið.
„Það fór bara vel á með okkur
og við erum orðnir hinir mestu
mátar. Ég er meira að segja kom-
inn með símanúmerið hans. Við
gerðum smá mistök og báðumst
afsökunar á því. Síðan var bara
tekist í hendur og málið er dautt,“
segir Hugi.
Hugi og Dolli fallast í faðma
...fær strætóbílsstjórinn
Þórhallur Sigurðsson sem lét
slag standa og opnaði fyrstu
opinberu málverkasýningu
sína, sem þar að auki bar
upp á afmælisdag nafna
hans.
„Ingibjörg er verðugt viðfangs-
efni fyrir málara,“ segir Björn T.
Hauksson, ljósmyndari og málari,
en hann hefur stillt olíumálverki
sem hann málaði af Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, formanni
Samfylkingarinnar, upp í glugga á
ljósmyndastofu sinni á Óðinsgötu.
Bonni, eins og Björn er kallað-
ur, hefur oft tekið myndir af Ingi-
björgu Sólrúnu og málaði mál-
verkið eftir ljósmynd sem hann
tók þegar Ingibjörg var borgar-
stjóri. „Það er svo sem engin mein-
ing á bak við þetta, ég er enginn
sérstakur fylgismaður Ingibjarg-
ar en hún hefur sterka andlits-
drætti og er umdeildur karakter,
þannig að mér fannst ekki úr vegi
að mála af henni mynd. Fyrir jól
var ég að spá í hvað ég ætti að
gera við myndina þegar konan
mín stakk upp á því að ég hengdi
hana upp í glugga á ljósmynda-
stofunni, það myndi ábyggilega
vekja athygli.“
Bonni segir að Ingibjörg hafi
séð málverkið og litist vel á en
hann hefur líka fengið athuga-
semdir frá öðrum sem eru minna
hrifnir. „Það er greinilega kominn
kosningaskjálfti í menn,“ segir
hann og hlær. „Ætli ég verði ekki
að stilla upp myndum af mönnum
úr öllum flokkum til að gæta jafn-
ræðis.“ Spurður hvort verkið sé
falt segir Bonni svo vera. „Það
þyrfti að bjóða þokkalegan pen-
ing, en fyrir rétt verð er myndin
til sölu.“
Ingibjörg Sólrún til sölu fyrir rétt verð
Gnoðavogi 44, s. 588 8686.
Opið alla laugardaga 11-14
SÚR HVALUR - SÚRT RENGI
HARÐFISKUR