Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 104

Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 104
Tímarnir eru svo sannarlega breyttir og það til batnaðar. Annar hver maður rúllar nú um í hvílíkum vellystingum að það slag- ar hátt upp í Loðvík sextánda. Og ef einhver er með múður þá má auð- veldlega svissa „hva, geta þau ekki bara étið kökur“ út fyrir „voðaleg forpokuð öfundsýki er þetta, má fólkið ekki eyða sínum eigin pen- ingum eins og því sýnist?“ hafði bylt mér andvaka í rúminu um stund, veltandi því fyrir mér hvernig stæði eiginlega á þessari hrikalegu velferð. Ég var eiginlega búinn að ákveða að þetta væri bara eitt af því mörgu sem er fyrir ofan minn takmarkaða skilning, þegar ég loksins fattaði allt. Niðurstaða mín er að fólk er einfaldlega orðið mörg- um sinnum klárara en það var fyrir nokkrum áratugum. er annars hægt að útskýra það að stjórnarformaður skipafyrirtækis sé orðinn eins og Jóakim aðalönd? Ég man ekki betur en einu sinni hafi öll skipafyrirtæki endalaust verið á hvínandi kúpunni. Mennirnir sem þar stjórnuðu voru greinilega algjörir vitleysingar miðað við þennan klára og ríka sem bauð í partíið. verð annars að þakka ríku körlunum fyrir þá tillitssemi að bjóða eingöngu upp á notaða erlenda skemmtikrafta sem hafa þegar spil- að á Íslandi. Það væri fúlt ef næsti milljónamæringur tæki inn eitt- hvað af viti sem maður vildi sjá, t.d. The Who eða Billy Joel. Drullufúlt ef maður þyrfti að norpa fyrir utan eins og litli karlinn með eldspýturn- ar en gæti ekki verið inni eins og hver annar Hómer í veislu hjá Mr. Burns.) sama hefur gerst í banka- bransanum. Þar hafa miklu klárari menn tekið við. Ég man ekki betur en bankar hafi yfirleitt verið reknir með tapi fyrir nokkrum áratugum. Þetta var endalaust basl og svo fór allt á hausinn fyrir rest. Hvað voru Sverrir Hermannsson og þessir karlar eiginlega alltaf að gera? Vissu þeir það nokkuð sjálfir? komast klárir menn upp með meira. Sverrir greyið mátti ekki fara í skitinn veiðitúr án þess að þjóðfélagið færi á límingunum. Ef hann hefði birst einn daginn á einkaþotu eins og Björgólfur Thor er aldrei að vita nema þrælslund Íslendinga hefði gefið sig og komið hefði til blóðugra átaka á götum úti. höfum við líka miklu betri Bubba Morthens. Vitleysingnum sem trallaði um bág kjör verkafólks hefur verið skipt út fyrir klárara módel sem alltaf er fyrstur mættur með gítarinn í ríkukallapartíin. Húrra fyrir nýjum, klárari og betri tímum! Klárara fólk LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR - félag laganema við Háskóla Íslands mmtudaga milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012 ADSL extra Fyrir þá kröfuhörðustu Komdu í næstu Vodafone verslun, smelltu þér á www.vodafone.is eða hringdu í 1414 til að fá nánari upplýsingar. F í t o n / S Í A F I 0 2 0 1 0 5 ADSL extra er ný leið fyrir kröfuharða viðskiptavini sem vilja enn meiri hraða fyrir send gögn eða allt að 2 Mb/s. Hraði 8 Mb/s 12 Mb/s 14 Mb/s Gagnamagn ótakmarkað ótakmarkað ótakmarkað Verð 7.990 kr. 8.990 kr. 9.990 kr. Hámark 7.990 kr. 8.990 kr. 9.990 kr. 12 mánaða samningur skilyrði. Þessi þjónusta er eingöngu í boði fyrir búnað sem styður AnnexM staðalinn. Hraði á ADSL tengingu getur verið háður vegalengd frá næsta ADSL tengipunkti.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.