Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 104
Tímarnir eru svo sannarlega breyttir og það til batnaðar.
Annar hver maður rúllar nú um í
hvílíkum vellystingum að það slag-
ar hátt upp í Loðvík sextánda. Og ef
einhver er með múður þá má auð-
veldlega svissa „hva, geta þau ekki
bara étið kökur“ út fyrir „voðaleg
forpokuð öfundsýki er þetta, má
fólkið ekki eyða sínum eigin pen-
ingum eins og því sýnist?“
hafði bylt mér andvaka í rúminu
um stund, veltandi því fyrir mér
hvernig stæði eiginlega á þessari
hrikalegu velferð. Ég var eiginlega
búinn að ákveða að þetta væri bara
eitt af því mörgu sem er fyrir ofan
minn takmarkaða skilning, þegar ég
loksins fattaði allt. Niðurstaða mín
er að fólk er einfaldlega orðið mörg-
um sinnum klárara en það var fyrir
nokkrum áratugum.
er annars hægt að
útskýra það að stjórnarformaður
skipafyrirtækis sé orðinn eins og
Jóakim aðalönd? Ég man ekki betur
en einu sinni hafi öll skipafyrirtæki
endalaust verið á hvínandi kúpunni.
Mennirnir sem þar stjórnuðu voru
greinilega algjörir vitleysingar
miðað við þennan klára og ríka sem
bauð í partíið.
verð annars að þakka ríku
körlunum fyrir þá tillitssemi að
bjóða eingöngu upp á notaða erlenda
skemmtikrafta sem hafa þegar spil-
að á Íslandi. Það væri fúlt ef næsti
milljónamæringur tæki inn eitt-
hvað af viti sem maður vildi sjá, t.d.
The Who eða Billy Joel. Drullufúlt
ef maður þyrfti að norpa fyrir utan
eins og litli karlinn með eldspýturn-
ar en gæti ekki verið inni eins og
hver annar Hómer í veislu hjá Mr.
Burns.)
sama hefur gerst í banka-
bransanum. Þar hafa miklu klárari
menn tekið við. Ég man ekki betur
en bankar hafi yfirleitt verið reknir
með tapi fyrir nokkrum áratugum.
Þetta var endalaust basl og svo fór
allt á hausinn fyrir rest. Hvað voru
Sverrir Hermannsson og þessir
karlar eiginlega alltaf að gera?
Vissu þeir það nokkuð sjálfir?
komast klárir menn
upp með meira. Sverrir greyið mátti
ekki fara í skitinn veiðitúr án þess
að þjóðfélagið færi á límingunum.
Ef hann hefði birst einn daginn á
einkaþotu eins og Björgólfur Thor
er aldrei að vita nema þrælslund
Íslendinga hefði gefið sig og komið
hefði til blóðugra átaka á götum úti.
höfum við líka miklu betri
Bubba Morthens. Vitleysingnum sem
trallaði um bág kjör verkafólks hefur
verið skipt út fyrir klárara módel
sem alltaf er fyrstur mættur með
gítarinn í ríkukallapartíin. Húrra
fyrir nýjum, klárari og betri tímum!
Klárara fólk
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012
ADSL extra
Fyrir þá kröfuhörðustu
Komdu í næstu Vodafone verslun, smelltu þér á www.vodafone.is
eða hringdu í 1414 til að fá nánari upplýsingar.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
0
1
0
5
ADSL extra er ný leið fyrir kröfuharða viðskiptavini sem vilja enn
meiri hraða fyrir send gögn eða allt að 2 Mb/s.
Hraði
8 Mb/s
12 Mb/s
14 Mb/s
Gagnamagn
ótakmarkað
ótakmarkað
ótakmarkað
Verð
7.990 kr.
8.990 kr.
9.990 kr.
Hámark
7.990 kr.
8.990 kr.
9.990 kr.
12 mánaða samningur skilyrði. Þessi þjónusta er eingöngu í boði fyrir búnað sem styður AnnexM staðalinn.
Hraði á ADSL tengingu getur verið háður vegalengd frá næsta ADSL tengipunkti.