Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 30
Æ
fing er að
klárast í Loft-
kastalanum og
síðhærða
hálfnorska
ljónið stígur af
sviði og nær í ferðatöskuna sína
og pokann úr tollinum enda nýlent-
ur á íslenskri grundu. Rauðhærðu
félagarnir ráða ráðum sínum og
sammælast um að halda skuli í
reykherbergið en fjölskyldumað-
urinn Dr. Gunni mátti vart vera að
því að mæta í Eurovisionviðtöl þar
sem hann var önnum kafinn við
barnauppeldi. Þeir eru flottur
dúett þó að vísu fari eitthvað
minna fyrir hárinu á doktornum
og segist hann fyrir löngu vera
búinn að gefa drauminn um sítt
hár upp á bátinn.
Haldið þið að rauðhærðu genin
muni eitthvað hjálpa ykkur í
kvöld?
Dr. Gunni: Tja, ég er nú alveg orð-
inn sköllóttur, veit ekki hvort það
gerir eitthvað fyrir mig.
Eiríkur: Rauðhært fólk er náttúr-
lega minnihlutahópur og allir
minnihlutahópar eru í hávegum
hafðir í dag. En, nei, ég held það
hafi nú ekki mikið að segja.
Dr. Gunni: Tvímælalaust er þetta
jú afar flottur stofn.
Þið eruð báðir önnum kafnir menn,
fyrir utan það að annar þarf að
fljúga milli heimilis og æfinga-
staðar, þá ert þú Eiríkur að fara í
tónleikaferðalag með fyrrum for-
sprakka Uriah Heep og svo ert þú
í miðjum barnasöngleik í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu Dr. Gunni.
Finnst ykkur Eurovisionþátttakan
tímans virði?
Dr. Gunni: Sem betur fer er Euro-
vision ekki fullt starf.
Eiríkur: Nei, nákvæmlega. Þó ber
að taka þessari keppni af fullri
alvöru því hún hefur mikið áhorf.
Engu að síður er þetta aðeins um
þriggja mínútna törn þegar til
kastanna kemur.
Dr. Gunni: Já og mínar þrjár mín-
útur eru þarna á bak við, þar sem
ég er skjálfandi á beinunum.
Eiríkur: Er ekki miklu meiri
spenna að vera lagahöfundur en
keppandi?
Dr. Gunni: Jú, það getur verið.
Annars er þessi keppni alveg rakin
leið til að gefa eitthvað út því
þarna færðu alla þjóðina til að
hafa skoðun á tónlistinni. Ef ég
væri að gefa út plötu myndi ég
kannski fá einhver viðbrögð, og þá
lítil. Þannig að þessi laugardagur
er voða mikið beint í andlitið.
Eiríkur: Þótt Eurovision sé gamalt
í hettunni þá er það samt að fær-
ast nær nútímanum og mér finnst
það vera að brjótast út úr skel
sinni. Mér dettur í hug til dæmis
Wig Wam, sem tóku þátt fyrir
tveimur árum og vöktu mikla
athygli og svo Lordi í fyrra.
Dr. Gunni: Já, það er greinilegt að
allt getur gerst í þessu. Oft eru
þeir sem ná langt með mjög fríkað
efni á Eurovision standard. Fyrir
nokkrum árum var það furðulegt
lettneskt band sem bar sigur af
hólmi, annar flippari frá Austur-
ríki lenti líka ofarlega. Það má því
kannski segja að það sé dálítið
skrítið að Silvía Nótt skyldi ekki
ná lengra en hún gerði, í ljósi þess
hve mikið flipp það var.
Urðuð þið hissa á þeim úrslitum?
Dr. Gunni: Stelpugreyið var bara
eitthvað slöpp þarna á sviðinu, fór
einfaldlega yfir um á stressi.
Eiríkur: Þetta frík var í raun
ágætishugmynd en hún er týpa
sem íslenska þjóðarsálin er búin fá
að melta í einhvern tíma. Svo er
erfiðara verk að skila þessum
húmor sem er búinn að vera að
gerjast hér heima í meira en eitt ár,
þarna úti á einni viku. Og það fór út
um þúfur.
Þú ert ekki fyrsti maðurinn sem
kemur upp í hugann, Dr. Gunni,
þegar Eurovision ber á góma en
þú ert hins vegar kannski fyrsti
maðurinn sem mér dettur í hug
við sama tækifæri, Eiríkur. Hvað
fékk þig til að taka þátt núna dokt-
or og ert þú mjög innvígður í
keppnina Eiríkur?
Dr. Gunni: Það er nú bara eins og
ég segi, það varð til lag sem pass-
aði í þessa keppni og ég ákvað að
tékka á Heiðu hvort hún væri í
stuði og hún var í stuði.
Eiríkur: Ég er þeirrar ónáttúru
gæddur að ég hef alltaf viljað fara
eigin leiðir og hef náttúrulega
fengið að líða fyrir það hjá gagn-
rýnendum. En ég hef svo mikla
tröllatrú á sjálfum mér sem rokk-
ara að mér finnst ég geta leyft mér
allt og líka það að taka þátt í Eur-
ovision. Ég held að það sé meira
rokk í mér á þremur mínútum í
Eurovision en hjá mörgum í heilan
feril. Þó svo að menn eigi sína for-
tíð í að fordæma Eurovision þá
finnst mér að menn ættu að hugsa
dæmið aðeins aftur og ef menn eru
með gott lag undir höndum, að
reyna að fatta það hvað þetta er
stór vettvangur. Þegar ég var úti
með Gleðibankann á sínum tíma,
þá man ég hvað manni buðust
mörg hugsanleg sambönd sem ég
nýtti mér svo aldrei. Þetta er mark-
aður sem hægt er að nýta sér.
Dr. Gunni: Ég er ekkert svo viss um
að keppnin sé svakaleg lyftistöng
fyrir einn né neinn, ég held til
dæmis að Lordi hafi ekkert selt
mikið af plötum þó þeir hafi unnið í
fyrra. Held þeir hafi náð um 100.000
eintök af fyrsta albúminu þeirra
sem er helmingi minna en Gus Gus
seldi. Þannig að ég held að þetta sé
ekki alþjóðlegur stökkpallur.
Eiríkur: Það er í rauninni bara eitt
dæmi um slíkt og það var Abba.
Dr. Gunni: Já og Celine Dion
kannski. En það dæmi var kannski
ekki eftirsóknarvert.
Hafði skrímslasveitin Lordi
kannski einhver áhrif á það að þið
ákváðuð að taka þátt?
Dr. Gunni: Já, kannski aðeins. Ég
er dálítill áhugamaður um finnska
menningu og tónlist þannig að ég
hélt með þeim síðast og hafði mjög
gaman af því að þeir ynnu. Líka
fyrst að Silvía Nótt tók þátt síðast
að þá hélt maður að keppnin væri
orðin kannski nógu svöl.
Eiríkur: Ég get tekið undir það og
ég vonaðist til að Lordi myndu
vinna. Ég spáði því líka að ef þeir
kæmust áfram frá fimmtudegi til
laugardag að þá myndu þeir
vinna. Það er í sjálfu sér meira
afrek að komast áfram á fimmtu-
deginum heldur en að lenda í 10
efstu sætunum í lokakeppninni.
Ég held það ætti að vera markmið
þess aðila sem fer út fyrir okkar
hönd.
Dr. Gunni: Það eru ekki einu sinni
helmingslíkur á að komast upp úr
fimmtudeginum þannig að við
gætum verið föst þar.
Eurovision hefur oft verið nefnd
ýmsum nöfnum, ruslakista tón-
smíða, söngvakeppni samkyn-
hneigðra og fleira, hvert er ykkar
álit á keppninni?
Eiríkur: 70-80 prósent þess sem
flutt er í keppninni eru vafalítið
mjög léleg. Ég held ég falli inn í
þann stóra hóp sem hefur ekkert
álit á Evróvisjón en horfir samt á
þetta. Þetta er þrælskemmtileg
vika í útlöndum og ef þú ert hepp-
inn þá eru listamenn þarna sem þú
þekkir og svo aðrir sem þú þarft að
hafa túlk þér til handa til að ná
sambandi við. Þetta er frábær vika
þar sem allt flæðir í kampavíni.
Dr. Gunni: Ég myndi segja að þetta
væri frábær ástæða til að hafa
gott partí.
Dr. Gunni, hvað fannst þér um
búningana sem Eiríkur var í þegar
Icy-tríóið söng Gleðibankann og
hefur þú fylgst með skyrtutísku
doktorsins, Eiríkur?
Dr. Gunni: Ég var auðvitað mjög
andfélagslegur árið 1986 þannig
að ég horfði ekkert á þetta svo
búningarnir fóru alveg fram hjá
mér.
Eiríkur: Búningarnir okkar þá eru
auðvitað bara frábær saga og
segja má að þjóðfélagið hafi hrein-
lega farið á hvolf. Þetta gekk svo
langt að einhver reyndi meira að
segja kenna mér og Pálma að
dansa sem var auðvitað gjörsam-
lega misheppnað. En hvað skyrt-
urnar hans Gunna varðar þá hefur
það farið fram hjá mér eins og svo
margt sem hefur gerst meðan ég
var úti.
Dr. Gunni: Þú verður auðvitað að
gera þér grein fyrir því að þú ert
að tala við Norðmann.
Eiríkur: Já, ég man samt eftir
Gunna í Svarthvítum draumi,
Bensínskrímslið skríður var mjög
gott lag.
Dr. Gunni: Já, sko. Og ég á meira
að segja eina plötu með Start.
Hver haldið þið að muni veita
ykkur harða samkeppni?
Dr. Gunni: Friðrik Ómar og Jónsi.
Annars er erfitt að spá í það.
Eiríkur: Ég er svo heppin að þar
sem ég bý erlendis hef ég aðeins
heyrt þau lög sem voru í mínum
riðli. En ég hef heyrt marga segja
að Heiða og Dr. Gunni eigi góða
möguleika.
Verður þetta mikið andlegt álag?
Eiríkur: Ég held bara mínu striki,
finn mér einhvern glugga og næ
mér í síðasta smók rétt fyrir úrslit.
Annars er þetta bara Eurovision
og fólk verður að gera sér grein
fyrir því að andlega álagið felst í
því að ætla að hlusta á næstum 40
Eurovisionlög í partíinu, það
kemst enginn heill heilsu frá því.
Bara það að þjóðin fari ekki í ein-
hverja gleðibankageðveiki.
Dr. Gunni: Sem gerist samt alltaf,
sama hversu oft við lendum í 16.
sæti. En já, það er mjög nauðsyn-
legt að taka margar, margar
klósettpásur þegar horft er á
keppnina heima í stofu.
Enga gleðibankaveiki
Hvernig tekst tveimur rauðhærðum rokkurum, einum síðhærðum og öðrum sköllóttum, að vera ofursvalir en syngja samt og
semja fyrir Eurovision? Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti þá Eirík Hauksson og Gunnar Hjálmarsson, betur þekktan sem Dr.
Gunna, sem sögðu Eurovision vera gott og skondið kampavínspartí.