Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 102
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
NOTES ON A SCANDAL kl. 3, 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
PAN´S LABYRINTH kl. 3, 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
ANNA AND THE MOODS ENSKT TAL kl. 3, 4 og 5 STUTTMYND / ÓTEXTUÐ
LITTLE CHILDREN kl. 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 3, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 ENGLISH SUBTITLES B.I. 12 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
NOTES ON A SCANDAL kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 5.30, 8 og 10.30
ANNA AND THE MOODS ENSKT TAL kl. 1, 2, 3, 4 og 4.45 STUTTMYND / ÓTEXTUÐ
ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 1, 2, 3, 4 og 4.45 STUTTMYND
ROCKY BALBOA kl. 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 1 og 3.10
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 1, 3.20 og 5.40
KÖLD SLÓÐ kl. 5.45 B.I. 12 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.40, 8 og 10.15* B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 8 og 10.20
ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 3.40, 4.20 og 5 STUTTMYND
DREAMGIRLS kl. 5.40
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3.40
*KRAFTSÝNING
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
HEIMSFRUMSÝNING
SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS
ÓSKARSVERÐLAUNA
TILNEFNING1
Kvikmyndin Dreamgirls segir sögu
þriggja ungra blökkukvenna í
Bandaríkjunum í kringum 1960 sem
eiga sér þann draum heitastan að
slá í gegn sem söngkonur. Þegar
þær fyrir tilviljun rekast á hinn
orðlipra umboðsmann Curtis Taylor
virðist frægðin á næsta leiti. Leiðin
á toppinn er hins vegar þyrnum
stráð.
Dreamgirls var upprunalega
söngleikur sem átti vinsældum að
fagna á níunda áratug síðustu aldar.
Hann er lauslega byggður á ferli
Díönu Ross og árum hennar með
sönghópnum The Supremes, en
sagan segir að Díönu sé meinilla við
myndina á meðan stalla hennar úr
sveitinni, Mary Wilson, segir mynd-
ina nær sannleikanum en fólk
gruni.
Leikstjóri myndari, Bill Condon,
hefur mestmegnis starfað sem sjón-
varpsleikstjóri, en á að baki ágætis-
mynd eins og Kinsey frá 2004 ásamt
því að vera einn af handritshöfun-
um á söngleikjamyndarinnar Chi-
cago.
Stjörnurnar sem prýða myndirn-
ar eru ekki af verri endanum. Bey-
oncé Knowles, Eddie Murphy,
Danny Glover og Jamie Foxx gera
öll hlutverkum sínum góð skil.
Ameríska Idol-stjarnan Jennifer
Hudson er þó kannski sú sem fær
bitastæðasta hlutverkið sem Effie
White, sem er bolað úr sveitinni
þrátt fyrir að vera sú sem syngur
best.
Margir söngleikir hafa litið dags-
ins ljós í bíóhúsunum síðustu árin
þar sem hæst tróna Chicago og
Moulin Rouge. Dreamgirls hefur
alla burði til að vekja sömu aðdáun
en tekst því miður ekki. Myndin fer
í allt of margar áttir. Hún segir í
senn dramatíska sögu þessara ungu
kvenna og lífsförunauta þeirra á tíu
ára tímabili, gerir tónlistarstefnu
þessa tíma skil og fjallar um rétt-
indabarátta blökkumanna þar sem
Martin Luther King Jr. þrumar
ræður í bakgrunninn. Efnistökin
eru of umfangsmikil, persónusköp-
un er einföld og óáhugaverð og oft á
tíðum er óljósum söguþræði bjarg-
að fyrir horn með því að láta fólk
bresta í söng í miðju samtali. Aðdá-
endur sálartónlistar fá sannarlega
eitthvað fyrir sinn snúð en á heild-
ina litið er myndin ekkert til að
hrópa húrra fyrir.
Draumur um frægð
Leikkonan Scarlett
Johansson tók á
móti verðlaunum
sem kona ársins af
Hasty Pudding-leik-
listarsamtökunum í
Harvard á dögun-
um.
Gert var grín að
Scarlett á ýmsan
máta, m.a. með
frægri ljósmynd
sem birtist af henni nakinni á for-
síðu tímaritsins Vanity Fair. Scarl-
ett tók samt öllu saman með bros
á vör. „Takk kærlega fyrir verð-
launin. Þetta hefur verið frábær
dagur. Þetta er það næsta sem ég
kemst því að útskrifast frá Har-
vard,“ sagði Scarlett. „Þetta er
mikill heiður og ég
get ekki beðið eftir
partíinu sem verð-
ur í kvöld.“
Scarlett, sem er
22 ára, hefur leikið
í myndum á borð
við Lost in Trans-
lation, The Girl
with a Pearl Earr-
ing, Match Point og
The Black Dahlia.
Ben Stiller tekur við verðlaun-
um sem maður ársins hjá Hasty
Pudding þann 23. febrúar. Verð-
launin fá þeir listamenn sem hafa
haft mikil áhrif á skemmtanaiðn-
aðinn. Þeir sem fengu verðlaunin
á síðasta ári voru Halle Berry og
Richard Gere.
Scarlett kona ársins
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Pssst!
Taktu þátt.
Og láttu skilaboðin ganga.
Fyrirtæki ársins er árleg könnun VR á aðbúnaði og ánægju starfsfólks íslenskra fyrirtækja.
Mikilvægt er að sem flestir taki þátt, því þannig fæst skýrari mynd af stöðu vinnustaðar
þíns í samanburði við aðra.
Skilafrestur er til 20. febrúar næstkomandi.