Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 48
heimaerbest
Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími:
550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is
og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is. Auglýsingar: Anna Elínborg
Gunnarsdóttir, 550-5806, aeg@365.is Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is. Forsíðumynd: Gunnar Sverrisson.
LEGIÐ Í LETI Á vefsíðunni www.steelform.com er hægt að
festa kaup á eftirgerðum af verkum frægra hönnuða. Miklum gæðum
er lofað en meðal þeirra húsgagna sem þar má nálgast er eftirgerð
af Barcelona-rúmi og legubekk eftir hönnuðinn Ludwig Mies van der
Rohe.
hönnun
NÝLEG ANTÍK nýtur æ meiri vin-
sælda um þessar mundir. Fólk er farið að meta
meira hönnun frá sjötta og sjöunda áratugn-
um sem á tímabili þótti bara púkó og flestir
voru búnir að henda út í hafsauga. Vefsíðan
www.retrofunk.com sérhæfir sig í að
selja notaða vöru
frá þessu tímabili,
allt frá bókum
til húsgagna og
hljómtækja. Þar má
finna margt skemmti-
legt og sniðugt.
BARCELONA RÚMIÐ er hönnun frá árinu
1930. Það er úr valhnoturamma með stálfótum.
Dýnan og höfuðpúðinn eru leðurklædd.
Legubekkurinn er hönnun frá 1932.
Grindin er úr stáli og hægt er að
stilla hæðina en dýnan er
klædd fínasta leðri.
Baka og búlgursalat er gott saman
eða með einhverju allt öðru. Eitt
og sér eða með fleiri réttum. Baka
er alltaf góð með súpu eða salati.
Búlgursalat er létt máltíð og fersk,
hentar vel með kjöti og fiski ef
kjúklingnum er sleppt. Í báðum
uppskriftunum má nota hug-
myndaflugið; bæta soðnu brokkolí
í bökuna, setja avokadó í salatið …
Grunnurinn er einfaldur og ef eitt-
hvað er ekki til má setja annað í
staðinn.
Baka með sætum kartöflum,
spínati og geitaosti
Bökudeig:
250 g hveiti
200 g mjúkt smjör
örlítið salt
Setjið hráefnið saman í mat-
vinnsluvél og látið hana hræra og
hnoða deigið saman. Það gæti
þurft að setja meira hveiti í deigið
(ef það er of blautt) eða mýkja það
upp með nokkrum dropum af köldu
vatni (ef það er of þurrt). Takið úr
vélinni og hnoðið í höndunum á
hveitistráðu borði. Fletjið út og
setjið í bökuform, 24 cm. Stingið í
ísskáp í 30 mín. Ath. að tilbúið
bökudeig fæst orðið í helstu mat-
vöruverslunum.
Fylling:
150 g spínat
2 sætar kartöflur, meðalstórar,
skornar í teninga
3 egg
150 ml rjómi
salt og svartur pipar
175 g mjúkur geitaostur
ferskt salat til að bera fram
Sjóðið kartöfluteningana þar til
þeir eru mjúkir. Setjið spínatið í
pott með bolla af vatni og sjóðið í 2
mínútur. Hellið því í sigti, kælið
aðeins og kreistið úr því vatnið.
Hrærið saman egg og rjóma, salt-
ið og piprið. Dreifið spínatinu yfir
bökudeigið, þá sætu kartöflunum.
Hellið rjómablandinu yfir og
hrærið varlega upp með gaffli.
Myljið geitaostinn yfir. Stingið í
200 gráða heitan ofn og bakið í 30
mín. Kælið í 10 mín. áður en bakan
er borin fram. Hafið með henni
ferskt salat. Einnig góð köld.
Búlgursalat með kjúklingi,
tómötum, aspas og fetaosti
400 g búlgur, einnig gott að nota
kúskús, smátt pasta gengur líka
5 msk. grænt pestó
2-3 kjúklingabringur, steiktar og
skornar í bita
300 g smáir kirsuberjatómatar
100 g klettasalat, skorið aðeins
niður
5 ferskir aspasstönglar, soðnir
og skornir í bita
hnefi ferskt óreganó, má sleppa
200 g fetaostur
4 msk. góð ólífuolía
2 msk. balsamikedik
salt og svartur pipar
Sjóðið búlgur eða pasta skv. leið-
beiningum eða leggið kúskús í
bleyti skv. leiðbeiningum. Að því
loknu hrærið þið pestó saman við
búlgurnar. Setjið kjúklingabita,
tómata, salat, aspas, óreganó og
fetaost í skál. Hellið olíu og bals-
amikediki yfir, saltið og piprið.
Hrærið vel saman og blandið sal-
atinu að lokum saman við búlg-
urnar. Berið fram með brauði og
ólífuolíu.
Umsjón og eldamennska: Halla Bára
Gestdóttir Myndir: Gunnar Sverrisson
Baka og búlgursalat
Ármúla 42 · Sími 895 8966
mánudaga - föstudaga 10-18
laugardaga og sunnudaga 11-18
• Vasar
• Diskar
• Lampar
• Pottar
• Myndir
o.m.fl .
Gleðilegt ár!
Kínversk áramót
Ár svínsins
Í tilefni áramóta
Aðeins í
takmarkaðan
tíma
Sprengiverð
Opið
17. FEBRÚAR 2007 LAUGARDAGUR6