Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 36
Notkun á GPS staðsetningar-
tækjum er orðin nokkuð algeng
meðal ferðalanga innanlands.
Tækin auka til muna öryggi
en gefa einnig upplýsingar um
nýjar leiðir á ferðalaginu.
„Hópar sem eru mest á ferð eins
og jeppa-, göngu-, vélsleða- og
mótorhjólafólk ásamt veiðifólki
nota mest tækin enda mjög góð
leið til að tryggja öryggi á ferð,“
segir Bolli Valgarðsson hjá Arctic
Trucks. Fyrirtækið stendur nú
fyrir námskeiði í notkun GPS stað-
setningartækja.
Veiðimenn og göngufólk nota
oft tækin svipað að sögn Bolla,
enda oft ein á ferð og þá er gott að
taka með sér tækið.
„Bæði skyttur og göngufólk
merkja oft inn punkt í upphafi
ferðar en hafa síðan slökkt á því á
leiðinni til að spara rafhlöður,
þrátt fyrir að það borgi sig að
sjálfsögðu að taka með nóg af raf-
hlöðum. Síðan er hægt að kveikja
á tækinu til að sjá hvaða leið eigi
að fara til baka eða hvaða dalur
eða fjall sé fram undan, sérstak-
lega ef skyggnið er vont,“ segir
Bolli.
Í farartækjum er hins vegar
hægt að ákveða leiðina fyrirfram
og síðan keyra eftir henni. Einnig
er hægt að prenta út kort og taka
með sér.
Tækið getur líka skráð leiðir
sem eru farnar og flutt þau gögn
yfir í Google Earth leitarvélinni
og breytt í kort þegar heim er
komið.
Algengasta tegundin á GPS
staðsetningartækjum á Íslandi
heitir Garmin sem hægt er að fá
með íslenskum og erlendum kort-
um. Þó er munur á tækjunum þar
sem sum eru stíluð inn á gangandi
en önnur inn á farartæki sem eru
sérhæfð í vegakerfum.
Á námskeiðinu er tekið fyrir
almenn notkun GPS staðsetning-
artækja, farið í stillingar, hvað
beri að varast við notkun, veg-
punkta, gerð leiða og ferla.
Einnig verður farið í grunn-
atriði á forritunum MapSource og
nRoute ásamt notkun á GPS-gögn-
um í Google Earth leitarvélinni.
Námskeiðið er haldið af Arctic
Trucks en fyrirlesari er Ríkarður
Sigmundsson frá versluninni R.
Sigmundssyni ehf. sem selur
Garmin-tækin.
Námskeiðið verður haldið
mánudaginn 19. febrúar næstkom-
andi klukkan 20.00-22.00 í húsa-
kynnum Arctic Trucks að Klett-
hálsi 3. Verð námskeiðsins er 3.500
kr. Nánari upplýsingar á www.arc-
tictrucks.is.
Öruggari með
GPS á ferðalaginu
Á Skógum er margt að sjá og
tilvalið að skreppa þangað í
dagsferð í góðu veðri.
Ágætt er að nota helgarnar til þess
að viðra fjölskylduna og skreppa í
sveitaferðir annað slagið þó að
vetur sé enn í fullum gangi. Fyrir
íbúa höfuðborgarsvæðisins getur
til dæmis verið alveg mátulegur
bíltúr að skreppa að Skógum. Á
Skógum er margt hægt að gera og
er Skógasafn eitt stærsta safn á
landinu en auk alls sem þar er hægt
að sjá og skoða er veitinga- og
kaffisala í húsnæði safnsins. Skóga-
foss stendur líka alltaf fyrir sínu
og allt umhverfið er einstaklega
fallegt. Öll fjölskyldan ætti að geta
haft gaman af ferðinni og koma
ánægð og endurnærð heim.
Skroppið í sveitina
Fljótasiglingar - Klettaklifur
Hestasýningar - Gönguferðir - Gisting
Veitingar - Ratleikir - Hestaleiga
Hafið samband og við gerum tilboð
Verið velkomin! bakkaflot@islandia.is
Sími 453-8245 & 899-8245 • Ferðaþjónustan Bakkaflöt
560 Varmahlíð, Skagafirði – www.bakkaflot.is
Skólahópar!
Leyfishafi
Ferðamálastofu