Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 110
Sjálfsmynd Berglindar Ágústs-
dóttur, sem tekin var ófrjálsri
hendi á Barnum í síðasta mánuði,
var komin til síns heima eftir að
grein um stuldinn birtist í Frétta-
blaðinu. „Strákurinn sem tók hana
hringdi sama dag og kynnti sig
sem þjófinn,“ sagði Berglind.
„Hann hafði verið fullur þarna á
virkum degi og rifið myndina af
veggnum. Svo labbaði hann bara
með hana niður og út, hringdi í
vin sinn sem kom og sótti hann,
og svo keyrðu þeir með hana heim
á þakinu á bílnum,“ sagði hún.
„Hann skildi ekki sjálfur hvernig
hann fór að þessu. Hann er hvorki
hávaxinn né sterkur og myndin er
mjög stór,“ bætti hún við.
Berglind kvaðst ekki hafa
brugðist illa við játningunni. „Nei,
ég var bara glöð að hann skyldi
hringja, mér fannst það ótrúlega
gott hjá honum að þora því. Ég hló
bara allt símtalið, þetta var svo
súrrealískt eitthvað,“ sagði hún.
Þjófurinn geðþekki skilaði
Berglindi myndinni degi síðar.
„Hann var bara mjög viðkunnan-
legur og greinilega mikill listunn-
andi. Ég lít bara á þetta sem
ákveðið hrós fyrir mig, hann hlýt-
ur að hafa verið svona heillaður
af henni,“ sagði Berglind hlæj-
andi. „Ég mæli nú samt ekki með
því að fólk sé að ræna listaverk-
um,“ bætti hún við á alvarlegri
nótum.
Svo gæti farið að myndin snúi
aftur í húsakynni þjófsins. „Hann
sagðist aldrei hafa séð svona
flotta mynd, svo ég bauð honum
bara að kaupa hana. Hann er að
hugsa málið. Svo er spurning
hvort verðið hækkar eða lækkar
eftir svona ævintýri,“ sagði Berg-
lind sposk. „Það þýðir ekkert að
velta sér upp úr þessu. Þetta var
klassískt, íslenskt fylleríisrugl og
allt er gott sem endar vel,“ bætti
hún við.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Já, ég var beðinn um þetta. Jón
Óskar bað mig um þetta og ég segi
alltaf já við þann góða mann þegar
hann biður mig um eitthvað,“ segir
Egill Helgason sem í dag mun í
fyrsta skipti gerast uppboðshald-
ari.
Listmunaupp- boð verður
haldið klukkan fimm í dag í
verslun Jóns Sæmundar,
Liborius við Mýrargötu.
„Já, mér skilst að þetta
sé aðalstaðurinn. Þangað
komi menn helst ekki nema vera
málkunnugir Björk,“ segir Egill.
Uppboðið er til styrktar Skaftfelli
– menningarmiðstöð á Seyðisfirði
og Egill segir þarna verk eftir
öndvegis listamenn.
„Þarna er hægt að eignast
alvöru myndlist eftir Georg
Guðna, Huldu Hákon, Húbert
Nóa... og þannig má lengi
telja,“ segir Egill. Hann
vill meina að þarna séu
fjölmörg verk sem hann
væri meira en til í að hafa
á sínu heimili. Og hefur
uppi vafasamar hug-
myndir um að ef ekki
fást sæmileg boð í
góð verk þá
muni hann
slá sjálfum sér þau – fyrir lítið fé.
„Ég er algerlega óreyndur á
þessu sviði og renn blint í sjóinn.
Hvort ég legg þetta fyrir mig í
framtíðinni veit ég ekki. Það verð-
ur að koma í ljós. Ef mér tekst
ekki að selja neitt þá hlýtur
það að heita að ég sé léleg-
ur uppboðshaldari.“
Egill lítur til meist-
ara á þessu sviði svo
sem Haraldar Blöndal
heitins sem var
frægur uppboðs-
haldari en af
honum eru
margar
sögur sem
taka til skör-
ungsskapar
hans og húmors í púltinu með
hamar í hönd. Eitt sinn bauð Har-
aldur upp bridgepör á Bridge-
hátíð, sem þá voru ígildi verðbréfa
í kauphöll, og jókst virði þeirra
eftir gengi í mótinu. Var þar kona
ein meðal keppenda og þá sagði
Haraldur að nú ættu menn að
opna budduna því þetta væri í
fyrsta skipti í þúsund ár sem
kona væri boðin upp á Íslandi.
„Já. Þó ég sé stór þá eru föt
Haraldar örugglega of víð á
mig,“ segir Egill.
Egill uppboðshaldari slær listaverk í dag
Stolinni sjálfsmynd skilað
„Jájájájá, bændur eru siðprúðir. Ég
reikna reyndar með því að siðprýði
bænda sé breytileg eins og í öðrum
þjóðfélagshópum. En ég hygg að
þeir séu það upp til hópa,” segir Sig-
urgeir Þorgeirsson, framkvæmda-
stjóri Bændasamtakanna sem eiga
Hótel Sögu – Bændahöllina.
Fátt er um meira rætt, í fréttum,
spjallþáttum og á netinu, en fyrir-
hugaða klámráðstefnu þeirra sem
standa að klámvefnum FreeOnes.
com. Að sögn Hrannar Geirsdóttur,
hótelstjóra á Hótel Sögu, hefur hóp-
urinn bókað 150 herbergi dagana 7.
til 11. mars.Reiknað er með hátt í
tvö hundruð þátttakendum en þar
mun fólk víðs vegar að koma saman
og ræða málefni klámgeirans auk
þess að skemmta sér í hinni
„alræmdu” Reykjavík. Femínistar
eru margir hverjir æfir vegna komu
hópsins og bendir talsmaður Femín-
istafélagsins, Katrín Anna Guð-
mundsdóttir, á þá vá að sem að steðj-
ar í sambandi við að hópurinn
verður hér staddur 8. mars á bar-
áttudegi kvenna.
Hrönn sagði í samtali við Frétta-
blaðið að bændur væru siðprúðir og
fráleitt að þeir stæðu fyrir ein-
hverju klámfengnu. Og Sigurgeir
segir það svo vera.
„Eftir því sem ég best veit er
þetta bara hópur eins og hver
annar sem bókar hér gistingu.
Þeir hafa ekki óskað eftir nokk-
urri annarri aðstöðu hér en gist-
ingu og ekki er vaninn að spyrja
gesti fyrirfram til hvers þeir koma
til landsins. Ferðafólk fær hér
gistingu meðan húsrúm leyfir,“
segir Sigurgeir og hefur ekki
þungar áhyggjur af því að ímynd
bænda bíði hnekki við þessa heim-
sókn. Hann segir jafnframt að hóp-
urinn hafi ekki óskað eftir neinni
aðstöðu á hótelinu til fundahalda né
annarra gjörninga.
Adda Steina Björnsdóttir
er talsmaður biskups og
henni finnst fráleitt að
halda hér klámráð-
stefnu.
„Ég get sagt það að
klám er ofbeldi og nið-
urlæging á konum og í
sinni verstu mynd
getur klámiðnað-
urinn tengst
mansali, þræla-
haldi og barna-
misnotkun. Við
hljótum að
taka undir orð
þeirra sem
fordæma
klám,“ segir Adda Steina aðspurð
um hvort vænta megi viðbragða frá
kirkjunnar mönnum og biskupi.
„Við skoðum hugsanleg viðbrögð
og erum að kanna málið betur. Bisk-
up hefur látið til sín taka og talað
gegn klámvæðingu og bent á marg-
ar skuggahliðar hennar. Að berjast
gegn henni er á ábyrgð okkar allra:
foreldra, uppalenda og þegna.“
Og Öddu Steinu finnst full ástæða
til að velta fyrir sér ábyrgð hótels-
ins: „Mér þætti til dæmis mjög
alvarlegt mál ef þarna verður sett
upp einhver kynningarráðstefna
um klámiðnaðinn. Því myndi ég
mótmæla harðlega.“
Sigurgeiri finnst á hinn bóginn
sérkennilegt að beina spjótum sér-
staklega að Hótel Sögu. Spyr af
hverju gagnrýnendur sækja ekki
allt eins að flugfélaginu sem flýgur
þeim til landsins og eða öðrum þjón-
ustuaðilum.
„Mér fannst hryllilegt að komast að
hversu mörgum konum hefur verið
nauðgað á stuttum tíma og ekki síð-
ur sláandi að fáir árásarmannanna
hafa náðst. Það er verulegt áhyggju-
efni að hrottafengnum líkamsárás-
um hefur fjölgað síðustu ár.“
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI