Fréttablaðið - 20.02.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 20.02.2007, Síða 4
 Stefán Eiríksson, lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að einu kröfurnar sem lögreglan geri séu að nýjar höfuðstöðvar hennar verði byggðar miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og að þær verði nálægt helstu umferðaræð- um. Stefán segir að hann hafi ekki sett fram neinar kröfur um í hvaða sveitarfélagi nýju höfuð- stöðvarnar verði byggðar. Forsvarsmenn Reykjavíkurborg- ar, Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Kópavogs skoða mögulegar staðsetningar stöðvarinnar ásamt fjármálaráðuneytinu á næstunni. Verði byggðar miðsvæðis Nærri 70 manns fór- ust þegar tvær sprengjur sprungu í fyrrakvöld í járnbrautarlest í bænum Dewana, sem er um 80 kílómetra norður af Nýju-Delí. Indverskir embættismenn sögðu tilganginn með sprengju- árásinni greinilega vera þann að trufla eða koma í veg fyrir friðar- viðræður milli Indlands og Pakist- ans. Lestin var á leiðinni frá Ind- landi til Pakistans þegar spreng- ingarnar urðu stuttu fyrir mið- nætti. Flestir farþeganna voru frá Pakistan. Friðvænlegra hefur verið milli Indlands og Pakistans síðustu árin, þótt helsta deilumál þeirra, sem er staða Kasmírhéraðs, sé enn óleyst. Ekki leit út fyrir að þessi árás myndi tefja fyrir við- ræðum, en pakistönsk stjórnvöld krefjast þess að Indverjar hafi uppi á sökudólgunum og refsi þeim. Í tveimur af þeim lestarvögn- um, sem sluppu óskemmdir, fund- ust ferðatöskur með heimatilbún- um sprengjum sem talið er að hafi átt að springa um leið og hinar tvær. Margir farþegar komust ekki út úr lestarvögnunum vegna þess að ekki var hægt að opna glugg- ana. Lestinni var ekið áfram til Pakistans eftir að eyðilögðu vagn- arnir höfðu verið leystir frá henni. Reynt að tefja friðarviðræður Stór olíuflekkur fannst í þanghrönn, 10-20 metrar á breidd, í Hvalsnesfjöru í gær. „Þetta vekur upp spurningar hvort þarna geti verið fleiri flekkir sem fuglar geti lent í,“ segir Gunn- ar Þór Hallgrímsson, líffræðing- ur hjá Náttúrustofu Reykjaness. Starfsmenn Umhverfisstofnunar fara á staðinn í dag til að hreinsa olíuna upp. Tveir æðarfuglar fundust á Garðskaga í gær og var annar þeirra greinilega olíublautur. Olíu- sýni var tekið og farið með fuglana til hreinsunar og aðhlynningar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. „Við ætlum að reyna að átta okkur á því hvaðan olían kemur,“ sagði Þorkell Heiðarsson, aðstoðarfor- stöðumaður í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum. Um helgina sáust hundruð olíu- blautra fugla frá Garðskagavita að Njarðvíkurfitjum. Gunnar Þór segir að mest hafi sést af blautum fugli í Garði. Tíu tegundir af fugl- um hafi fundist, allt fuglar sem lifa á sjó að einhverju leyti nema ein tegund af vaðfugli, sendlingur. Í gær hafi aðstæður verið verri og þá hafi minna sést. „Þessi olía hefur náð landi en við vitum ekki nákvæmlega hvar hún er,“ sagði Gunnar Þór og hafði áhyggjur af því að olían væri víðar en bara í Hvalsnesfjöru. „Við þurfum að finna uppruna olí- unnar og kanna betur ástand fugl- anna á svæðinu. Ég held það megi fullyrða að tugir fugla munu drep- ast hið minnsta en það er útilokað að segja nánar á þessu stigi hver áhrifin verða, hvort mengunin hafi áhrif á stofna eða fuglalíf á svæðinu almennt,“ sagði hann og taldi ólíklegt að fugla færi að reka dauða á land því að vindáttin væri óhagstæð. Umhverfisstofnun var tilkynnt um olíumengunina um helgina og lögreglu líka. Starfsmenn Nátt- úrustofu Reykjaness fylgdust með ástandinu í gær, athuguðu dreif- ingu og fjölda blautra fugla. Gunn- ar Þór sagði að dauðum fugli yrði safnað en lifandi fugla yrði farið með í Húsdýragarðinn. „Það sem kemur mér mest á óvart er hve erfitt er að sjá olíu- bletti á fuglum og auðvelt að láta blettina fram hjá sér fara. Slíkir blettir gætu hafa verið um allt í nokkurn tíma.“ Flugvél Landhelgisgæslunnar fór í eftirlitsflug yfir svæðið í gær en sá ekki neina olíubrák á sjón- um. Olíuflekkur fannst við strandstaðinn Flekkur löðrandi í olíu fannst á tíu til tuttugu metra svæði við strandstað Wil- son Muuga í Hvalsnesfjöru í gær. Tveir olíublautir æðarfuglar fundust. Tugir fugla munu drepast segir líffræðingur. Hreinsun flekksins hefst í dag. Stjórn Frjálshyggjufé- lagsins telur afskipti stjórnvalda af ferðum og fundum saklauss fólks vera hátt einræðisríkja og svartan blett á góðri ímynd landsins. Þar er átt við fyrirhug- aða ráðstefnu fólks í klámiðnaðin- um sem fram fer í byrjun næsta mánaðar, og viðbrögð vegna hennar. Í ályktun frá félaginu segir að mikilvægt sé að átta sig á því að mansal og erótík sé ekki sami hluturinn. Nánast allir þeir sem starfi í og við framleiðslu á erótík geri það af fúsum og frjálsum vilja. Afskipti háttur einræðisríkja Segolene Royal, forsetaefni franskra sósíalista, á nú í vök að verjast í kosningabar- áttunni. Samkvæmt nýjustu viðhorfskönnunum er forskot höfuðkeppinautarins Nicolas Sarkozy úr íhaldsflokknum UMP sífellt að aukast. Þegar kjósendur eru beðnir að gera upp á milli þeirra tveggja, eins og sennileg- ast er að gerist í síðari umferð kosninganna 6. maí, segjast nú 55 af hundraði styðja Sarkozy og 45 prósent Royal. Royal hefur ákveðið að stokka upp í kosningabarátturáðgjafa- hópi sínum, og kemur sú upp- stokkun til framkvæmda í vikunni. Tveir mánuðir eru nú til fyrri umferðar kosninganna. Nicolas Sarkozy eykur forskotið Reykvíkingar þurfa ekki lengur að örvænta ef þeir þurfa að komast að einhverju um borgina sína því nú geta þeir farið inn á vefspjall Reykjavíkur- borgar á www.reykjavík.is og spurt þjónustufulltrúa. Vefspjallið er opið alla daga milli klukkan 8 og 17 og virkar á mjög svipaðan hátt og MSN. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri tók vefspjallið í notkun í gær. Borgarstjóri tók vefspjall í notkun

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.