Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 28
 20. FEBRÚAR 2007 ÞRIÐJUDAGUR6 fréttablaðið food and fun Ragnar Ómarsson er yfirkokkur á Domo ásamt Þráni Júlíussyni en á Domo verður gestakokkurinn Michael Wilson frá Danmörku. „Það lítur rosalega vel út sem hann er búinn að senda okkur en það er í okkar anda og án nokkurr- ar takmörkunar. Bara góður matur með asísku kryddi og svona aðeins öðruvísi en venjan er,“ segir Ragn- ar og bætir því við að Michael hafi mjög ferskar hugmyndir og sé nýmóðins í matreiðslunni, þannig að gaman sé að fá hann inn á stað- inn. „Annars er bara allt að verða fullt hjá okkur en auðvitað detta alltaf einhverjir út og aðrir bætast við. Þetta lofar rosalega góðu en það hefur verið fullt hjá okkur allar helgar hvort eð er svo að því leyti er þetta eins og hver önnur helgi hjá okkur,“ segir Ragnar. - sig Nýmóðins mat- reiðsla á Domo Spennandi sushi-réttur frá Domo. Michael Wilson frá Danmörku verður gestakokkur á staðnum og hefur hann afar ferskar hug- myndir, að sögn Ragnars Ómarssonar, annars yfirkokkanna á Domo. FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK Þráinn Júlíusson, annar yfirkokkanna á Domo, situr hér fyrir framan einn af sérréttum staðarins. Brandur Brandsson er yfirkokkur á Apótekinu í Austurstræti 16. Mikil spenna er fyrir Food and Fun hátíðinni og hafa margir nú þegar pantað sér borð á Apótek- inu. „Það fer að verða uppbókað. Alls hafa 174 pantað á laugardags- kvöldið, 146 á föstudag og 140 manns á fimmtudag,“ segir Brand- ur og bætir því við að fleiri séu búnir að panta í ár heldur en í fyrra. Það sem laðað hefur marg- an manninn að er gestakokkurinn sem verður á staðnum. Hann heit- ir Christopher Cime og er yfirmatreiðslumaður á Acadiana- veitingastaðnum í Washington. Boðið verður upp á sérstakan matseðil á Apótekinu meðan á hátíðinni stendur. „Þetta verður Louisiana matreiðsla. Þarna verð- ur skelfisks gumbo-súpa, tún- fiskur í creola, Diana-nautalundir og New Orleans brauðbúðingur með bananafostersósu.“ En hvers konar staður er Apótekið? „Þetta er evrópskur fusion-staður. Við notum mikið af íslensku hráefni en erum samt með austurlenskar áherslur.“ Brandur eldaði fyrir lesendur Fréttablaðsins hörpuskel með blönduðu salati og kryddaðri sítr- ónudressingu. „Ég valdi þennan rétt til að fá þjóðina til að borða meiri fisk.“ Louisiana-stemn- ing á Apótekinu Brandur eldaði hörpuskel með blönduðu salati og kryddaðri sítrónudressingu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Brandur Brandsson yfirkokkur leggur lokahönd á forréttinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.