Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 50
Þorsteinn Ingvarsson, 18 ára strákur úr HSÞ, varð Íslands- meistari í sjöþraut um helgina og það í sinni fyrstu fjölþrautarkeppni. Þorsteinn fékk 5295 stig fyrir grein- arnar sjö og hafði betur eftir hörku keppni við Fjölnismanninn Svein Elías Elíasson. Í lokin munaði aðeins 30 stigum en báðir fóru þeir yfir 5000 stiga múrinn í fyrsta sinn og settu einnig báðir Íslandsmet. Þor- steinn bætti unglingamet 19 til 20 ára en Sveinn Elías fékk 5265 stig og bætti eigið Íslandsmet í drengja- flokki um 355 stig. „Það var alltaf stefnan að fara yfir fimm þúsund stigin en ég hafði aldrei keppt í þraut áður þannig að ég vissi ekki alveg hvernig þetta kæmi út hjá mér. Ég vissi samt að ég gæti farið yfir fimm þúsund stigin ef allt gengi upp,“ sagði Þorsteinn. „Ég held samt að fæstir hafi búist við því að ég myndi taka þetta,“ segir Þorsteinn sem segir að bætingin í stangarstökkinu hafi lagt grunninn að sigrinum. „Það gengu allar greinarnar mjög vel en ég hefði viljað fá fleiri stig úr langstökkinu. Ég bætti mig í stang- arstökki og hljóp 1.000 metra hlaup í fyrsta skipti.“ Þorsteinn segir tímann sem keppnin tekur hafa reynt á sálarlífið. „Ég var búinn að heyra að þetta væri mjög erfitt en það erfiðasta sem mér fannst við fjölþrautina var að glíma við spennuna stanslaust í tvo sólarhringa. Það var ekkert mál að stökkva þrjú stökk eða kasta þrisvar,“ segir Þorsteinn. Samkvæmt nýjasta afrekslista sem völ er á þá er árangur Þor- steins um helgina sá þriðji besti í heiminum hjá strákum fæddum 1988 eða síðar. Þorsteinn býst ekki við að keppa aftur í þraut fyrr en hann reynir sig í tugþrautinni í sumar. „Þar eru enn þá fleiri greinar sem ég á eftir að prófa og læra,“ segir Þorsteinn í léttum tón. „Ég ætla að prófa tugþrautina í sumar og hugsanlega stefni ég á hana í framtíðinni,“ segir Þorsteinn að lokum. Íslandsmeistari í fyrstu þrautinni Námskeið Kynntu þér málið á www.akademian.is Námskeið í íþróttanuddi Verð 39.900 Lærðu að undirbúa íþróttamanninn fyrir hámarksárangur og draga úr þreytu, bólgum og vöðvaspennu með íþróttanuddi. Þá lærirðu einnig að nýta þér nuddið til að auka liðleika og fyrirbyggja meiðsli. Minni meiðsli sem verða vegna of mikillar áreynslu má í flestum tilvikum laga á skömmum tíma með nuddi. Einstakt tveggja helga námskeið fyrir þjálfara, einkaþjálfara og íþróttakennara. Leiðbeinandi Guðbrandur Einarsson kennari við Nuddskóla Íslands 24. – 25. febrúar kl. 8.30 – 16.30 3. – 4. mars kl. 8.30 – 16.30 Verður maður ekki að styrkja HSÍ? Staðan í dómaramálum á Íslandi er ekki góð og svo slæm er staðan að stefnir í óefni ef ekki verður gripið til einhverra aðgerða. Gott dæmi um stöðuna í dómaramálum á Íslandi er saga Gunnars Jarls Jónssonar. Gunnar leikur með 1. deildarliði Leiknis í knattspyrnunni og dæmir fyrir KSÍ. Hann lét tilleiðast að mæta á fund hjá handboltadómurum í september síðastliðnum. Þar þreytti hann skriflegt próf sem gerði það að verkum að hann gat byrjað að dæma handboltaleiki. Í kjölfarið byrjaði Gunnar að dæma leiki í yngri flokkum en fór síðan á fullt í dómgæslunni í nóvember. Hann fékk fljótlega leiki í 1. deild karla og síðan í kjölfarið leiki í DHL-deild kvenna. Um síð- ustu helgi var Gunnar Jarl síðan bókaður á leik Akureyrar og Stjörnunnar í DHL-deild karla ásamt félaga sínum Herði Aðal- steinssyni en Gunnar gat reyndar ekki dæmt vegna veikinda. Þá var Gunnar búinn að dæma af ein- hverri alvöru í rétt rúma þrjá mánuði. Það er sá tími sem tekur að verða úrvalsdeildardómari á Íslandi í dag. „Ástandið í dómaramálunum segir mikið um ástandið í hand- boltanum hér heima í dag, því miður,“ sagði Gunnar Jarl við Fréttablaðið í gær. „Það fæst greinilega ekki fólk til að dæma í dag og ég ætlaði aldrei að fara að dæma handbolta. Ég komst í gegn- um skriflega prófið og svo var þrekprófið ekki heldur erfitt. Ég var í frekar litlu formi þegar ég þreytti það en hefði getað labbað síðasta hringinn en samt náð próf- inu. Það var mjög auðvelt að ná þessu prófi.“ Guðmundur Kr. Erlendsson. formaður dómaranefndar HSÍ, segir að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem dómari klífur metorða- stigann svo hratt og hefur ekki áhyggjur af stöðu dómaramála. „Þetta dómarapar er mjög gott og þess vegna hefur uppgangur Gunnars verið svona hraður. Það eru mörg fordæmi fyrir þessu og ekkert athugavert við þetta. Við erum annars með fjórtán pör á okkar snærum sem dæma í meist- araflokki og það eru 4-6 pör sem dæma í efstu deild,“ sagði Guð- mundur en íslensk dómgæsla missti mikið þegar Stefán Arn- aldsson og Gunnar Viðarsson hættu að dæma. „Ég er búinn að vera í eftirliti erlendis og ég verð að segja að okkar pör eru ekkert síðri en mörg erlendu paranna þó við eigum ekki enn eins gott par og Stefán og Gunnar.“ Guðmundur segir dómara- nefndina vera reglulega með nám- skeið sem mættu vera betur mönn- uð en þó hefðu 48 einstaklingar útskrifast á síðasta ári. Vandamál- ið væri samt að dómararnir skil- uðu sér ekki í efstu deildirnar af ýmsum ástæðum. „Ég held að það sé fyrst og fremst umhverfið sem menn vilja ekki vinna við. Það er neikvæðni í garð stéttarinnar, enginn hvati og frekar niðurrif. Það má kenna ýmsum um að staðan er svona. Þessi neikvæðni í garð dómara þekkist ekki erlendis. Við höfum verið að berjast gegn þessu við- horfi lengi með litlum árangri. Stundum held ég að fólk komi á völlinn eingöngu til að öskra á dómarann en ekki styðja sitt lið. Svo fá dómarar ekki alltaf frið til að stunda sína vinnu vegna áreitis frá þjálfurum. Áhorf gæti dottið niður af þessum sökum þar sem foreldrar vilja ekki að börnin sín heyri orðaforðann sem kemur úr stúkunni í garð dómara,“ sagði Guðmundur. Staðan í dómaramálum í handboltanum á Íslandi er mjög alvarleg að margra mati. Það tók handknatt- leiksdómarann Gunnar Jarl Jónsson aðeins þrjá mánuði að fá leik í DHL-deild karla. Formaður dómara- nefndar HSÍ segir dómara ekki vilja dæma í efstu deildum vegna neikvæðs viðhorfs til dómara. ÍS vann 12 stiga sigur á Hamri, 71-59, í Iceland Express- deild kvenna í gær. Casey Rost skoraði 15 stig fyrir ÍS áður en hún fór útaf meidd, Svandís Sigurðardóttir skoraði 10 stig og Lovísa Guðmundsdóttir var með 9 stig og 7 stoðsendingar. Hjá Hamri var Anne Flesland með 19 stig þar af 13 þeirra af vítalínunni og Latreece Bagley skoraði 17 stig og tók 12 fráköst. Alda Leif Jónsdóttir lék sinn fyrsta leik eftir barnsburð og skoraði 8 stig á 6 mínútum. ÍS-sigur í endur- komu Öldu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.