Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 12
Verslunarskóli Íslands mun á næsta ári hefja kennslu á International Business Baccalaureate (IBB) námsbraut. Námið er til stúdentsprófs og tekur 4 ár og fer öll kennsla fram á ensku. Aðaláhersla námsins er á alþjóðasamfélagið, alþjóðaviðskipti og alþjóðalega sýn á viðskipti, menningu og tungumál. Markhópar námsins eru tveir. „Annars vegar eru það erlendir nemendur sem eiga foreldra sem starfa hjá íslenskum fyrirtækjum á Íslandi og hins vegar íslenskir nemendur sem hafa náð góðum árangri í grunnskóla og hafa mjög góða enskukunnáttu eða hafa dvalið langdvölum erlendis og gengið í erlenda skóla,“ segir Bertha Sigurðardóttir, kennari við brautina. Öllum nemendum á brautinni verður kennd íslenska sem móðurmál eða annað tungumál eftir aðstæðum hvers og eins. Fyrirmynd af brautinni kemur frá Niels Brock verslunarmenntaskólanum í Kaupmannahöfn sem hefur um nokkurra ára skeið boðið upp á slíkt nám. „Við myndum aldrei bjóða upp á þetta nám ef við héldum ekki að það væri þörf fyrir það. Hversu mikil þörfin er verður hins vegar að koma í ljós,“ segir Bertha. Ytri endurskoðendur Baugs vissu ekki af kaupréttar- samningum sem gerðir voru við þrjá æðstu stjórnendur félagsins við stofnun þess 1998, og fullnust- aðir voru að hluta árið 1999, fyrr en árið 2002 eða síðar. Þetta kom fram í spurningum setts ríkissaksóknara til Tryggva Jónssonar, eins ákærða í málinu, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Aðalmeðferð í Baugsmálinu hélt áfram í réttarsal í gær, þegar Tryggvi, sem var aðstoðarfor- stjóri og síðar forstjóri Baugs, hélt áfram skýrslugjöf þar sem frá var horfið fyrir helgi. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, vitnaði þar í tvo endurskoðendur sem unnu fyrir Baug, sem sögðu báðir við yfirheyrslur hjá lögreglu að þeim hafi verið ókunnugt um kauprétt- arsamninga sem gerðir voru við forstjóra, aðstoðarforstjóra og stjórnarformann Baugs. Kaupréttarsamningarnir koma við sögu þar sem í einum ákæru- liðanna sem fjallað var um í gær eru þeir Tryggvi og Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, ákærðir fyrir meiri háttar bókhaldsbrot með því að færa sölu á hlutabréfum í félaginu á reikn- ing hjá Kaupþingi Lúxemborg, en bréfin voru meðal annars notuð til að uppfylla kaupréttarsamninga við æðstu stjórnendur Baugs. Tryggvi sagðist í gær ekki hafa vitað hversu háar upphæðir hafi verið að ræða í samningum við stjórnarformann og forstjóra, en sagði að sér hafi verið kunnugt um samningana, enda sjálfur með slíkan samning. Samn- ingarnir hafi verið með þeim fyrstu sinnar tegundar hér á landi á þessum tíma. Spurður hvort stjórn félags- ins hafi vitað af kaupréttarsamn- ingunum sagðist hann telja full- víst að stjórnarmenn hafi vitað af þeim. Endurskoð- endur hafi einnig getað fengið upplýsingar um þá með því að leita eftir þeim. Kaupréttarsamningarnir voru fullnustaðir að hluta árið 1999, og Tryggvi sagðist ekki hafa greitt skatt af hagnaðinum fyrr en hann færði féð hingað til lands árið 2002. Samtals fengu stjórnend- urnir hlutabréf vegna þessara samninga sem þeir seldu fyrir 72,5 milljónir króna árið 1999. Spurt ítarlega um kauprétt stjórnenda Fyrrverandi forstjóri Baugs var spurður um kaupréttarsamninga stjórnenda fyrirtækisins, sem endurskoðendur sögðust ekki hafa vitað af, í réttarsal í gær. Voru með fyrstu kaupréttarsamningum sem gerðir voru hér á landi sagði hann. BAUGS M Á L I Ð Sorphirðumenn í Árósum í Danmörku hafa verið í verkfalli í rúmar tvær vikur til að mótmæla því að tveir langveikir félagar þeirra hafa fengið hótanir um uppsögn. Ruslið hefur safnast upp og er farið að valda verulegum vandræðum í borginni. Frá þessu er skýrt á vefsíðum danska dagblaðsins Politiken og í fleiri dönskum fjölmiðlum. Sorphirðumennirnir í Árósum segjast hafa óskoraðan stuðning félaga sinna um alla Danmörku og hóta því að verkfallið geti breiðst um allt land. Ruslið safnast upp í Árósum Geir H. Haarde forsætisráðherra telur ekki að hægt sé að hindra för „klámhóps- ins“, sem væntanlegur er til landsins, nema ljóst væri að til stæði að brjóta landslög. Lögregl- an væri með málið til rannsóknar og þess megi vænta að hún grípi í taumana, sé nokkuð misjafnt á ferð. Þetta mælti Geir til svars við óundirbúinni fyrirspurn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á Alþingi í gær. Ingibjörg spurði hvort ríkisstjórnin hygðist grípa til ráðstafana vegna fundarins, í ljósi þess að klámiðnaðurinn bryti gegn mannhelgi og kynfrelsi. Þau Geir voru sammála um að þau vildu ekki að klámiðnaður festi hér rætur. Telur ekki hægt að stöðva fólkið Félagið Fugla- vernd hefur sett fram þá hugmynd við heimamenn í Reykhólasveit að þar verði komið upp arnarskoðun- arsetri. „Ernir hafa í hugum lands- manna löngum verið taldir til einkennisfugla Vestfjarða,“ segir í bréfi frá Fuglavernd. „Áhrif á íbúa í nærliggjandi byggð væru umtalsverð í gegnum atvinnusköpun í náttúru- og fræðslutengdri ferðaþjónustu, þar sem slíkum skoðunarstöðvum hefur verið komið á fót í fámenn- um byggðum hafa jaðaráhrif verið mikil og jákvæð,“ segir jafnframt. Arnarsetur á Reykhólum Grensásvegi 48 gallerykjot.isOpið virka daga frá kl 10 -19 Laugardaga frá kl 11 -17 Þú færð gæða- saltkjötið hjá okkur!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.