Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 24
 20. FEBRÚAR 2007 ÞRIÐJUDAGUR2 fréttablaðið food and fun Ragnar Wessman, matreiðslu- maður og kennari við Hótel- og matvælaskólann, heldur utan um kokkakeppni á Food and Fun hátíðinni auk þess sem hann hefur umsjón með matreiðslu og framreiðslu í móttöku samgönguráðherra fyrir erlenda gesti hátíðarinnar. „Við erum þrír sem höfum það hlutverk að sjá um að keppnin gangi rétt og eðlilega fyrir sig í Listasafni Reykjavíkur,“ segir Ragnar en hann heldur utan um keppnina ásamt matreiðslumönn- unum Friðriki Sigurðssyni og Guðmundi Guðmundssyni. „Við útvegum og göngum frá öllum tækjum, undirbúum keppnis- svæðið, sjáum um reglurnar og annað slíkt fyrir keppnina,“ segir Ragnar en tólf keppendur frá þremur löndum bítast um sigur- inn í keppninni og tíu dómarar dæma. „Það er keppt um besta fisk- réttinn, besta kjötréttinn og besta eftirréttinn, auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir heildarvinn- ingshafann,“ segir Ragnar en keppnin verður haldin á laugar- daginn og að sjálfsögðu verður íslenskt hráefni í forgrunni. Hótel- og matvælaskólinn hefur hins vegar það verkefni að sjá um móttöku samgönguráð- herra fyrir þá erlendu frétta- menn og kokka sem koma hingað til landsins í tengslum við Food and Fun hátíðina. „Nemendur í matreiðslu og framreiðslu hafa undirbúið þessa móttöku sem er opnunarhádegisverður fyrir þessa erlendu gesti. Þar verður að sjálfsögðu lögð áhersla á íslenskt hráefni. Gamlar íslensk- ar matreiðsluaðferðir í nýju sam- hengi,“ segir Ragnar og bætir því við að íslenskir matreiðslu- menn hafi verið í menningar- legri útrás og ekki skoðað nægi- lega vel það sem til er hér heima. „Það er mjög mikilvægt fyrir skólann að nemendur fái að taka þátt í þessu stóra verkefni og það skiptir nemendurna miklu máli líka,“ segir Ragnar. -sig Íslenskt hráefni í forgrunni Ragnar Wessman framreiðslumaður heldur móttöku samgönguráðherra og kokka- keppni í Listasafni Reykjavíkur, ásamt Friðriki Sigurðssyni og Guðmundi Guðmunds- syni. Hér er hann ásamt nemendunum sem sjá um móttöku samgönguráðherra fyrir erlenda gesti hátíðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Siggi Hall stofnaði Food and Fun hátíðina ásamt Baldvini Jónssyni en þeir skipuleggja alla viðburði hátíðarinnar. „Hátíðin er samstarfsverkefni Ice- landair, Íslensks landbúnaðar og Reykjavíkurborgar en íslenskt hráefni er í forgrunni og þá sér- staklega í keppninni milli erlendu kokkanna,“ segir Siggi og bætir því við að Food and Fun sé aðal- lega haldin til þess að vekja athygli á Íslandi sem matar- gæðalandi. „Hingað koma hátt á annað hundrað blaða- menn og fimm eða sex sjónvarps- lið. Við erum með erlenda kokka í samstarfi við þá íslensku á veit- ingahúsunum en svo keppa erlendu kokkarnir á laugardaginn klukkan tólf í matreiðslukeppni sem er orðin mjög þekkt úti í heimi. Þar keppa tólf erlendir kokkar með íslenskt hráefni og það þykir mjög spennandi meðal erlendra blaða- manna. Hins vegar væri það ekk- ert spennandi ef þar kepptu tólf íslenskir kokkar,“ segir Siggi og hlær. „Ekki má gleyma að í dóm- nefndinni sitja tíu stórþekktir mat- reiðslumenn jafnt frá Evrópu og Ameríku en það er allt mikið þungavigtarfólk í heimi matar- gerðarlistarinnar.“ Food and Fun er nú haldin í sjötta sinn af Sigga og Baldvini, sem hafa báðir ferðast mikið og víða um heiminn til að kynna og starfa í kringum matarbransann. „Við höfum unnið með mörgum matreiðslumeisturum, sem hafa komið okkur í samband við enn fleiri matreiðslumenn. Á þessum tíma frá því hátíðin var fyrst hald- in hefur skapast alveg svakalegt tengslanet og þar að auki er þetta orðinn viðburður sem vekur athygli úti í heimi. Það er orðið eftirsókn- arvert meðal matreiðslumanna um allan heim að hafa á ferilskránni sinni að hafa verið annað hvort keppendur eða dómarar á Food and Fun hátíðinni á Íslandi,“ segir Siggi og bætir því við að þar sem það þyki orðið fínt að taka þátt í hátíð- inni sé mjög auðvelt að fá mat- reiðslumenn til að koma til lands- ins. „Þeim þykir það mikill heiður að vera boðið enda þurfa þeir að hafa gert sig merkilega á einhvern hátt til að fá að vera með,“ segir Siggi. „Það eru margir sem vilja fá að vera með og því mikið verkefni að velja úr. Við röðum síðan kokk- unum niður á veitingastaðina eftir því hvaða áherslur eru á hverjum stað og hjá hverjum matreiðslu- manni.“ Á Óðinsvéum verður hinn fjöl- þjóðlegi matreiðslumeistari Robert Gadsby. „Ég hef aldrei hitt hann en þekki hann samt ágætlega því hann er góðkunningi náins vinar míns í Washington. Við höfum mikið ræðst við í síma. Hann er breskur að upp- runa en rekur veitingastað í Houston í Texas og er mikils met- inn matreiðslumaður í Ameríku,“ segir Siggi en aðaláherslan hjá Robert er amerísk matreiðsla með frönskum stíl. „Það er ekkert ósvip- að okkur því við erum jafnan með íslenskan mat í frönskum stíl. Hann verður með hörpuskel, heila önd í hlynsírópi og bleikju. Það er mikil spenna og áhugi hjá okkur eins og öllum hinum stöðunum. Þetta er skemmtilegur viðburður sem fyllir bæinn af matarilmi og gleðskap,“ segir Siggi Hall matreiðslumeistari. sigridurh@frettabladid.is Hátíð sem vekur at- hygli víða um heim Siggi Hall Eyþór Rúnarsson, yfirmatreiðslumaður á Óðinsvéum, hellir sósu yfir fiskréttinn sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Við fáum til okkar villta mat- reiðslumanninn, Andrew Evans,“ segir Bjarni Gunnar Kristinsson, yfirmatreiðslumaður á hinum klassíska útsýnisveitingastað Grillinu. „Hann hefur byggt upp sinn eigin stíl á ferðalögum sínum. Mestu áhrifin eru þó frá Ástralíu en hann sjálfur er Kani,“ útskýrir Bjarni, sem telur að Ástralir séu svipaðir Íslending- um að því leyti að þeir séu nýbúar í matreiðslu. „Þeir taka það besta frá löndunum í kringum sig, þar á meðal Asíu, og eru með mikið af kryddum en á mildari hátt,“ segir Bjarni. Þrátt fyrir áströlsk áhrif verða kengúra og emúi ekki á borðum á Grillinu meðan á Food and fun stendur heldur verður allt eldað úr íslensku hráefni. „Evans lang- aði að nota íslenskt hráefni í sína matreiðslu og ætlar að elda lúðu sem veidd verður fyrir hann á hverjum degi. Svo vill hann fá bleikju sem er alin er upp í köldu vatni. Þessu ætlar hann að blanda við íslenskan uxahala en í aðal- rétt verður lamb,“ segir Bjarni en bendir á að Evans noti rump- vöðva, ólíkt því sem Íslendingar eigi að venjast. Fyrir lesendur Fréttablaðsins töfraði Bjarni Gunnar fram vin- sælan rétt af matseðli Grillsins. „Þetta er íslensk rauðspretta snöggsteikt á rabarbaramauki, borin fram með skelfiskravíólí og lemongrass-froðu.“ Ástralskt og villt á Grillinu „Íslenska rauðsprettan er vanmetin en er aftur að komast í tísku.“ Þessi réttur er mjög vinsæll á Grillinu. Rauðspretta snöggsteikt á rabarbaramauki. Borin fram með skelfiskravíolí og lemongrass-froðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Það verður áströlsk stemning á Grillinu á Food & fun hátíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.