Fréttablaðið - 20.02.2007, Side 54
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Já, áhuginn hefur sannarlega
aukist,“ segir Anton Ingimarsson,
starfsmaður vínbúðar ÁTVR í
Kringlunni, en sala á tíu prósenta
Faxe-bjór hefur tekið kipp eftir
innslag Kastljóssins fyrir réttri
viku.
Í þættinum var
útvarpsmaðurinn Andri
Freyr Viðarsson fenginn
til að kneyfa sex hálfs
lítra dósir af hinu ramm-
sterka öli til að sýna
hvaða áhrif áfengis-
drykkja hefði á öku-
hæfni manna. Áhrifin
létu heldur ekki á sér
standa; þegar Andri
hafði lokið við kippuna
ræddi Ragnhildur Stein-
unn Jónsdóttir við hann
og fór ekki á milli mála
að útvarpsmaðurinn var
orðinn dauðadrukkinn
og ekki í neinu ástandi
til að setjast undir stýri.
Anton segir að innslagið
hafi óneitanlega vakið
athygli á bjórnum. „Við
höfum orðið vör við að fólk
sem leggur leið sína hingað
spyr um þennan bjór og
segist þá oftar en ekki hafa
séð hann í Kastljósi. Yfir-
leitt er þetta fólk í yngri
kantinum, á milli tvítugs og
þrítugt,“ segir Anton, sem
telur að fólk sé aðallega
forvitið. „Þetta er auðvitað
sérstök vara, það er allt
annað bragð af svona sterk-
um bjór en þessum venju-
lega og ég er ekki viss um
að þeir sem smakki muni
kaupa hann aftur. En þeir
eru auðvitað líka til sem finnst
svona sterkur bjór góður.“
Rótsterkur Faxe rýkur út
„Svíarnir sem framleiða þáttinn
heyrðu af sigri Eiríks og vildu
ólmir halda honum í þættinum.
Töldu það bara vera þættinum til
framdráttar að vera með sigur-
vegara innanborðs,“ segir Páll
Magnússon, útvarpsstjóri í Efsta-
leitinu.
Eins og mörgum er kunnugt
hefur Eiríkur verið fastagestur í
árlegum Eurovision-þætti nor-
rænu sjónvarpsstöðvanna, Inför
Eurovision Song Contest, þar sem
nokkrir valinkunnir tónlistarspek-
ingar segja sitt álit á þátttakend-
um í keppninni.
Eftir sigur Eiríks fóru á kreik
sögur um hvort söngvarinn gæti
áfram verið með í þættinum en
Páll segir svo vera. Og telur þetta
bara vera plús fyrir land og þjóð
því þetta hafi í för með sér mikla
kynningu fyrir Eirík og lagið.
„Hann verður sverð okkar og
skjöldur í Eurovision þetta árið,“
segir Páll og hlær.
Sigurlagið Ég les í lófa mínum
eftir Svein Rúnar Sigurðsson hlaut
afgerandi kosningu samkvæmt
fréttum Ríkissjónvarpsins á
sunnudagskvöldinu. Þetta verður í
þriðja sinn sem Eiríkur syngur í
Eurovision-keppninni en hann
hefur einu sinni áður tekið þátt
fyrir Íslands hönd þegar Icy-tríóið
tróð upp með Gleðibankann í
Bergen árið 1986.
Svíar krefjast nærveru Eiríks
Þá sjaldan ég lyfti mér upp og
fæ mér skyndibita finnst mér
gott að fá mér Tommaborgara
á Hamborgarabúllunni við
höfnina. Mér finnst pítsurnar
frá Eldsmiðjunni líka fyrirtaks
skyndibiti og fer stundum þang-
að. Þá panta ég yfirleitt pítsu
með sniglum.
Hinn geðþekki keppandi úr X-
Factor, Inga Sæland, varð fyrir
alvarlegum meiðslum á laugar-
daginn fyrir utan Smáralindina.
Verið var að taka upp atriði fyrir
næsta þátt þar sem þeir átta kepp-
endur sem eftir eru mæta í versl-
unarmiðstöðina til að árita. Inga
varð fyrir því óláni að skella bíl-
hurð á löngutöng með þeim hrika-
legu afleiðingum að það sneiddist
ofan af honum. Kallað var á sjúkra-
bíl og söngkonan flutt samstundis
á sjúkrahús þar sem gert var að
meiðslum hennar. Inga var skilj-
anlega mjög kvalin og var mikið
deyfð en er nú komin heim eftir
þessa erfiðu lífsreynslu.
Þór Freysson, framleiðslustjóri
þáttanna, sagði keppendurna hafa
orðið fyrir miklu áfalli enda hafi
slysið verið mjög alvarlegt. „Þau
fengu eiginlega bara hálfgert
taugaáfall og sú hugmynd kom
upp að fresta árituninni. Krakk-
arnir ákváðu hins vegar að láta
slag standa og harka þetta af sér,“
segir Þór. Hann heyrði síðan í
Ingu á sunnudeginum og þá var
hún nokkuð brött og gat gert létt
grín að þessu sjálf þrátt fyrir
alvarleika meiðslanna. „Við vorum
náttúrlega bara öll í sjokki,“ segir
Þór.
Sigríður Sæland Óladóttir, dótt-
ir Ingu, sagði mömmu sína alla
vera að koma til. „Hún var mikið
deyfð til að byrja með og fann því
ekki mikið til. Því hefur nú verið
hætt og þess vegna hefur sársauk-
inn aðeins verið að gera vart við
sig,“ segir Sigríður. „Mamma
reynir annars bara að taka lífinu
með ró en þetta var óskemmtilegt
enda enginn sem vill missa fram-
an af putta,“ bætir Sigríður við og
segir móður sína hafa óttast mest
að geta ekki spilað framar á gítar.
Sigríður var stolt af frammistöðu
móður sinnar hingað til en að þetta
væri kannski pínulítið undarlegt,
að eiga mömmu í X-Factor. „En
þetta er frábært tækifæri fyrir
hana enda hefur hún alltaf haft
gaman af því að syngja.“
Einar Bárðarson, sem hefur
veitt Ingu leiðsögn í gegnum
keppnina, var rétt búinn að jafna
sig á brotthvarfi Sigga á föstudeg-
inum þegar áfallið reið yfir. „Þetta
er náttúrlega agalegt,“ segir Einar
sem náði ekki að fylgja Ingu upp á
sjúkrahús en passaði hina kepp-
endurna sína tvo eins og sjáaldur
auga síns. „Við hittumst síðan öll á
sunnudagsmorgninum og þá var
hún strax aðeins hressari. Inga er
hörð og ætlar að vera með á föstu-
daginn. Ætlaði að taka lagið Ég fer
á puttanum en fannst það síðan
ekki alveg við hæfi.“
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI