Fréttablaðið - 20.02.2007, Page 56
Nú stendur fyrir dyrum ráð-stefna í Reykjavík þar sem
þátttakendur eru stórir framleið-
endur klámefnis á netinu. Hvorki
eru skráðir fyrirlestrar né pall-
borðsumræður í dagskrá á heima-
síðu ráðstefnunnar. Ástæðan er
sennilega ekki sú að klámfram-
leiðendum sé lagnara að rýta og
rymja en halda ræður, þótt óneit-
anlega sé það fyrsta hugsun. Lík-
lega eru vandfundnir harðsvíraðri
bissnessmenn en einmitt framleið-
endur kláms. Þeir eru semsagt
ekki í faginu af hugsjón. Nei, dag-
skráin lítur frekar út eins og dæmi-
gerð skemmtiferð fyrir hvern
annan túristahóp með bíltúrum á
Gullfoss og Geysi. Ráðstefnan er
því væntanlega einkum hugsuð til
að styrkja hin sérhæfðu viðskipta-
tengsl og gera feita samninga.
Reyndar er líka skipulögð hópferð
á strippbúllu og einnig mun á döf-
inni að taka nokkrar klámmyndir í
ferðinni. Kannski verður bráðlega
hægt að sjá Gullfoss og Geysi í
nýju ljósi, ef svo má segja.
sem birtast á klámmynd-
um selja afnot af líkama sínum í
kynferðislegum tilgangi og eru því
vændiskonur. Þeim, sem hefur þá
hugmynd um vændiskonur að þær
séu einkum spólgraðar alla daga,
má benda á að rannsóknir hafa
sýnt að mikill meirihluti þeirra
varð fyrir kynferðisofbeldi í æsku
og flestar eru háðar fíkniefnum.
Og eins og upplýstu fólki ætti nú
að vera orðið kunnugt eru einmitt
sterk tengsl á milli kláms, vændis
og mansals. Þeir sem enn vita ekk-
ert um hvað er verið að tala, ættu
að verða sér úti um kvikmyndina
Lilja 4-ever, sem er skylduáhorf
fyrir fullorðið fólk.
ætti samt að koma mikið á
óvart að klámiðnaðurinn hafi feng-
ið augastað á Reykjavík sem nota-
legum samverustað. Miðað við
hefðbundna landkynningu gæti
fólk ætlað að hér sé einn samfelld-
ur næturklúbbur hvers íbúar væru
að mestu fegurðardrottningar með
brókarsótt sem vita ekkert
skemmtilegra en að vera teknar í
bakaríið af hverjum sem er.
séð er ímynd okkar
því að verða nokkuð áhrifarík. Við
leggjum óspillt náttúruvíðerni
undir stórvirkjanir og seldum
fiskimiðin og þjóðarbankana fáein-
um útvöldum. Með því að bjóða
klámfólkið velkomið getum við
enn ýtt undir þá hugmynd að land-
ið sé aðeins byggt lauslátum
gærum og öðru sauðfé.
Dirty weekend
in Reykjavik
Nú með vetrardekkjum og dráttarbeisli
Responds to your lifeNýr Kia
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
8
1
4
6
KIA Sorento með ríkulegum staðalbúnaði
• hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél
• ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)
• 16" álfelgur • þakbogar
• vindskeið og þokuljós • 3.500 kg dráttargeta
Sorento hefur slegið í gegn um allan heim og eignast dygga fylgismenn
á Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn einn
vinsælasti jeppi landsins, enda líklega bestu jeppakaupin í dag.
Vetrardekk og dráttarbeisli fylgja með.
FULLBÚINN
ALVÖRUJEPPI
3.595.000 kr.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU. Laugavegi 172 • Reyk javík • s ími 590 5700 • www.kia. is