Fréttablaðið - 04.03.2007, Síða 8

Fréttablaðið - 04.03.2007, Síða 8
greinar@frettabladid.is Lífskjör eldri borgara og öryrkja hafa rýrnað svo mjög í stjórnartíð Fram- sóknar og Sjálfstæðisflokks sl. 12 ár að í mesta góðærinu hafa þeir aldrei upplif- að meiri skerðingar. Skv. nýlegri grein Stefáns Ólafssonar prófessors hefur launaójöfnuður aukist um rúm 40% sl. 12 ár en um rúm 70%, sé allur fjár- magnstekjuskattur tekinn með. Stjórn- arflokkarnir þræta stíft og sýna „stíl- færðar“ tölur um hið gagnstæða. Eldri borgarar, öryrkjar og aðrir sem finna skerðingarn- ar á eigin skinni eru bestu dómararnir um réttmæti skerðinganna. Ísland er að nálgast vanþróaðar þjóð- ir í „velferð“ og kemst ekki á blað með hinum Norðurlöndunum. Á sl. vetri voru úrræði nefndar um aðgerðir í sjúkrahúsmálum þau, að þeir sem gætu að fullu greitt fyrir aðgerðir hefðu forgang. Hinir gætu beðið áfram. Formaðurinn, framsóknar- konan Jónína Bjartmarz, hefur keypt gamla Landsímahúsið. Ætli opna eigi þar „einkastofur“ fyrir þá ríku? Launakjör hér eru úr takti við allt sem íslenskt lýðræði stendur fyrir. Bankastjórarnir, á 10-30 milljóna mánaðarlaunum auk risnunnar, fá gefins hlutabréf og græða á einum degi mörg ævilaun. Almenningi ofbýður ójöfn- uðurinn, spillingin, neðanjarðarhagkerfið. Verkalýðshreyfingin segir ekki múkk enda e.t.v. á mála hjá stjórnvöldum. Vinnustaða- samningar gilda í auknum mæli og er fólk rekið ef það segir frá launum sínum. Þetta veldur ósamstöðu, tortryggni og samheldnisleysi. „Deildu og drottnaðu“ er aðferð stjórnvalda. Ríkisstjórnina verður að draga til ábyrgðar fyrir ólöglega sölu ríkiseigna til góðvina og fyrir að skipta á milli sín eign- um landsmanna sem búið var að semja um að allir landsmenn ættu sameiginlega í dreifðri eignaraðild. „Burt með báknið“ er í fullu gildi. „Spillingarbáknið“ nú er ríkisstjórnin sjálf. Við viljum ekki svona þjóðfélag. Eldri borgarar, öryrkjar og aðrir sem aldrei upplifðu „góðærið“ hafna flokkum ánauðar. Stjórnin er útbrunnin; loforð þreyttrar stjórnarandstöðu eru ótrúverðug. Segjum stopp við síbreikkandi bili ríkra og fátækra. Sýnum það með góðri mætingu allra aldurshópa á fundinn í dag, sunnudag, á Grand Hóteli í Reykjavík. Höfundur er formaður Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja. Óæskilegur þjóðfélagshópur? Eitt merkasta umræðuefni stjórnmálanna snýr að því hvernig eignarréttur myndast. Stjórnmálasaga Vesturlanda markast mjög af þessari spurn- ingu og gæfa þjóða hefur risið og hnigið í tengslum við hvernig spurningunni er svarað. Frjáls- lyndir menn hafa lengi lagt á það áherslu að eignarrétturinn sé forsenda blómlegs, fjölbreytts og umburðarlynds þjóðfélags. Því meiri eignum sem ríkisvaldið ræður yfir, því meiri hætta er á miðstýrðu einsleitu samfélagi sem umber illa frávik frá því sem valdhöfum þóknast. Þetta er mikilvægt, en ekki er síður mikilvægt að séreignarrétturinn er ein frumforsenda efnahags- framfara, tækninýjunga og almennrar velmegunar. Eignarréttur á náttúruauðlind- um er mjög áhugavert viðfangs- efni fyrir okkur Íslendinga, við eigum meira undir slíkum auðlindum en flestar aðrar þjóðir veraldar. Nýting náttúrunnar, sérstaklega þeirra auðlinda sem eru endurnýjanlegar eins og rækt- að land og fiskistofnar, mynda grunninn að efnahagslegri velferð okkar og það er því eðlilegt að við deilum um hvernig þessum málum sé best fyrirkomið. Umræðan skiptist í tvö horn og ráða stjórnmálaskoðanir þar mestu um. Annars vegar eru þeir sem telja að ríkið eigi að eiga allar auðlindir og hins vegar hinir sem leggja áherslu á séreignar- rétt. Nálgun mín og margra þeirra sem telja að séreignarrétturinn sé farsæl lausn hvílir á eftirfarandi hugsun: Auðlind, til dæmis fiskurinn í sjónum, hefur ekkert verðgildi í sjálfum sér. Fiskur sem syndir um í hafinu, sem enginn kann að veiða, verka eða koma í verð er ekki auðlind í þeirri merkingu orðsins að um sé að ræða verðmæti sem meta megi til fjár. Verðmætið myndast þannig að einhverjir taka áhættu og finna út leiðir til að veiða fiskinn og verka með minni tilkostnaði en þeim tekjum sem má fá þegar hann er seldur. Verðmæti fiskauðlindarinnar er því munurinn á kostnaði við að veiða og vinna annars vegar og tekjunum hins vegar. Þetta verðmæti hafa því einstaklingar skapað, ekki ríkisvaldið nema að þeim hluta sem felst í því að halda uppi almannareglu, verja landið og miðin fyrir ágangi annarra þjóða o.s.frv. Fiskveiðiauðlindin er takmörkuð og þegar kom að því að takmarka varð aðgang að henni áttu þeir sem höfðu nýtingarsögu að eignast nýtingarréttinn. Ég er því þeirrar skoðunar að það geti vel farið saman að ríkið, fyrir hönd þjóðarinnar, hafi eignar- og yfirráðarétt yfir fiskistofnunum en nýtingarrétturinn sé í höndum útgerðarmanna. Ég tel að þessi hugsun hafi legið að baki þegar eftirfarandi setning var samþykkt í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar: „Ákvæði um að auðlindir sjávar séu sameign íslensku þjóðarinnar verði bundið í stjórnarskrá.“ Fiskistofnarnir í kringum landið yrðu þar með á forræði ríkisins, ákvarðanir um heildarafla, veiðistýring o.s.frv. væru þar með teknar af stjórn- völdum á grundvelli þessa ákvæðis. Útgerðarmenn ættu sóknarréttinn, en yrðu að hlíta almennum ákvörðunum ríkis- valdsins um hvernig farið er með auðlindina. Stefna Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegsmálum er mjög skýr og þetta ákvæði stjórnarsáttmál- ans er í góðu samræmi við þá stefnu. Því miður tókst ekki að ná samstöðu um útfærslu á ákvæð- inu í stjórnarskrárnefndinni og er vel skiljanlegt að margir séu óánægðir með það. Versta sem gæti þó gerst núna er að menn fari að hlaupa til í bráðræði í jafn mikilvægu máli eins og hér er um að ræða. Útfærsluna á að vinna í tengslum við aðrar stjórnarskrár- breytingar, með yfirveguðum hætti en ekki í einhverju pan- ikkasti nokkrum dögum fyrir kosningar. Eignarréttur og forræði þjóðarinnar Nálgun mín og margra þeirra sem telja að séreignarrétturinn sé farsæl lausn hvílir á eftirfar- andi hugsun: Auðlind, til dæmis fiskurinn í sjónum, hefur ekkert verðgildi í sjálfum sér. S tjórnmálaflokkarnir halda allir landsfundi eða flokksþing í aðdraganda kosninganna í vor. Framsóknarflokkurinn hefur átt í vök að verjast umfram aðra flokka undanfarin misseri. Í því ljósi má segja að flokksþingið nú hafi með ákveðnum hætti verið honum mikilvægara en öðrum flokkum. Málefnaundirbúningur flokksþingsins bar öll merki vandaðr- ar og málefnalegrar vinnu. Ályktunartillögur um utanríkis- og Evrópumál byggðust til að mynda á ábyrgum og raunsæjum sjónarmiðum. Þá komu fram athyglisverðar hugmyndir um breyt- ingar á kosningaskipan og skipulagi stjórnarráðsins. Ræða flokksformannsins var um flest málefnaleg með hvassri gagnrýni á þá flokka sem framsóknarmenn telja að hafi helst náð frá þeim fylgi. Annað verður ekki sagt en að kraftur og þungi hafi verið í ræðu hans. Allt yfirbragð flokksþingsins var á þann veg að ætla má að þeir forystumenn sem þar komu saman séu ráðnir í að ganga fram af fullri einurð í komandi kosningabaráttu. Þegar á þessa hefðbundnu mælikvarða er litið sýnist Framsóknarflokkurinn frekar hafa sótt í sig veðrið en hitt. Hætt er hins vegar við að uppljóstrun heilbrigðis- og trygginga- ráðherra um að forystumenn flokksins hafi að undanförnu lagt á ráðin um stjórnarslit og myndun nýrrar minnihlutastjórnar fyrir kosningar hafi í einhverjum mæli dregið athyglina frá þinginu sjálfu og ræðu formannsins. Málið snýst um að festa í stjórnarskrá hugtakið þjóðareign á auð- lindum. Formaðurinn hefur staðfest að þau sjónarmið séu uppi sem heilbrigðis- og tryggingaráðherra hefur lýst en eigi að síður viti hann ekki til þess að ágreiningur sé um málið. Ýmsir hafa reyndar undrast hversu lengi framsóknarmenn hafa dregið að búa til stöðu sem miðaði að því að greina þá frá samstarfsflokknum. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar hefur réttilega vakið athygli á því að Framsóknarflokkurinn kaus að hreyfa þessu máli ekki í stjórnarskrárnefnd. Með því að flokkurinn hafði ákveðið að nota það sem stjórnarslitahótun var rétt og eðlilegt að gera það við ríkisstjórnarborðið en ekki í sjálfstæðri nefnd sem ætlað var að vinna á öðrum forsendum. Svo er það stóra spurningin: Hverjir eru líklegastir til að græða á hugsanlegum stjórnarslitum? Skoðanakannanir sýna talsverða þreytu með stjórnarsamstarfið, ævintýralega sókn Vinstri grænna og ósk nærri helmings kjósenda um áframhaldandi stjórnarforystu núverandi forsætisráðherra. Ef kjósendur þurfa ekki að nota atkvæðaseðilinn til þess að koma þreyttu samstarfi frá völdum gæti því svo farið að forystuflokkur- inn í ríkisstjórn græddi mest á stjórnarslitum nú. Það gerðist við svipaðar aðstæður 1979 þegar óvinsælt vinstra samstarf var óvænt rofið með myndun minnihlutastjórnar og kosningum í kjölfarið. Þá vann Framsóknarflokkurinn, sem verið hafði í stjórnarforystu, verulega á. Alþýðuflokkurinn, sem rauf samstarfið, tapaði miklu og Sjálfstæðisflokkurinn, sem mælst hafði með yfir 50% skoðana- kannanafylgi í stjórnarandstöðu, missti flugið. Þessi saga gæti allt eins endurtekið sig að breyttu breytanda. Endurtekur sagan sig?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.