Fréttablaðið - 04.03.2007, Side 24

Fréttablaðið - 04.03.2007, Side 24
Hitt húsið tekur nú á móti umsóknum fyrir verkefnið „Skapandi sumarstörf“ þar sem ungt listfengt fólk getur verið á launum í sumar við listsköpun. „Frumkvæðið að verkefninu kom upphaflega frá ungu listfengu fólki hér við Hitt húsið fyrir um fimmtán árum en verkefnið hefur verið í þeirri mynd sem það er í dag síðastliðin sjö sumur,“ segir Ása Hauks- dóttir sem er í forsvari fyrir Skapandi sumarstörf hjá Hinu húsinu. Ár hvert sækja um 40-50 hópar listfenginna ung- menna á aldrinum 17-25 ára um styrkinn og af þeim segir Ása að um það bil 20 hópar fái brautargengi ár hvert. Unga fólkið sem hreppir styrkinn fær síðan laun í átta vikur til þess að hrinda í framkvæmd verkefninu sem sótt var um. „Það er öll flóran sem sækir um og markmiðið er að hafa fjölbreytileikann að leiðarljósi þegar styrkn- um er úthlutað,“ segir Ása en segir einnig að verkefn- in verði að vera fram- kvæmanleg og þess vegna séu verkefni á borð við kvikmynd í fullri lengd ekki það sem leitað er eftir. Verkefni innan leiklistar, myndlistar, dans, tónlistar og annarra listforma hafa verið styrkt og má sem dæmi nefna strengjakvart- ettinn Amiina, tónlistar- mennina Pétur Ben og Benna Hemm Hemm, ásamt leik- konunum Esther Talíu Casey og Maríönnu Clöru Lúthers- dóttir. „Unga fólkið er hörku- duglegt bæði í umsóknar- ferlinu og við framkvæmd verkefnanna sinna, þau virkilega hafa brennandi áhuga á því sem þau eru að gera og vinna myrkranna á milli,“ segir Ása. Umsóknin þarf að vera fagmannlega gerð og með henni þarf að fylgja greinar- góð lýsing á verkefninu, tíma og verkáætlun, fjár- hagsáætlun og upplýsingar um aðstandendur verkefnis- ins. Umsækjendur geta fengið aðstoð við gerð umsóknar hjá Hinu húsinu en einnig þarf að sækja um starfið hjá Vinnumiðlun ungs fólks. „Þetta umsóknarferli er ákveðið nám fyrir unga listafólkið. Starfandi lista- menn þurfa sífellt að sækja um styrki bæði fyrir launum og verkefnum svo þetta er góð æfing sem þau eiga eftir að búa að,“ segir Ása. Allar nánari upplýsingar veitir Ása Hauksdóttir hjá Hinu húsinu: www.hitt- husid.is Skapandi sumar- störf fyrir ungt fólk Bifvélavirki, vélvirki eða vanur verkstæðismaður Flugstoðir ohf. óska að ráða bifvélavirkja, vélvirkja eða mann vanan viðgerðum og viðhaldi bifreiða, ugvöll. Starfssvið ugvallarins. Starfsmaðurinn mun einnig aðstoða við snjóruðning, hálkuvarnir og viðbúnaðar- og neyðarþjónustu. Menntun og/eða reynsla Menntun og reynsla í vélvirkjun eða bifvélavirkjun er æskileg. Umsækjendur með haldgóða reynslu í viðgerðum bíla, véla og stærri tækja koma einnig til greina. Meirapróf er skilyrði. Réttindi á þungavinnuvélar er æskilegt. V , hefur lipra og þægilega framkomu og getur ð er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknir ð veita Ingunn Ólafsdóttir, starfsmannastjóri í síma 424-4000 og Jörundur Ragnarsson starfandi egar umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf og mynd sendist ugvelli, 101 Reykjavík fyrir 1 nna á heimasíðu Flugstoða ohf. www ugstodir.is r þjónustuverkefni Flugmálastjórnar Íslands þann 1. janúar 2007. Hjá Flugstoðum ohf. starfa um ugleiðsöguþjónustu fyrir r Norður - . Flugstoðir ohf. leggja áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.