Fréttablaðið - 04.03.2007, Síða 24
Hitt húsið tekur nú á
móti umsóknum fyrir
verkefnið „Skapandi
sumarstörf“ þar sem ungt
listfengt fólk getur verið
á launum í sumar við
listsköpun.
„Frumkvæðið að verkefninu
kom upphaflega frá ungu
listfengu fólki hér við Hitt
húsið fyrir um fimmtán
árum en verkefnið hefur
verið í þeirri mynd sem það
er í dag síðastliðin sjö
sumur,“ segir Ása Hauks-
dóttir sem er í forsvari fyrir
Skapandi sumarstörf hjá
Hinu húsinu.
Ár hvert sækja um 40-50
hópar listfenginna ung-
menna á aldrinum 17-25 ára
um styrkinn og af þeim segir
Ása að um það bil 20 hópar
fái brautargengi ár hvert.
Unga fólkið sem hreppir
styrkinn fær síðan laun í
átta vikur til þess að hrinda í
framkvæmd verkefninu
sem sótt var um.
„Það er öll flóran sem
sækir um og markmiðið er
að hafa fjölbreytileikann
að leiðarljósi þegar styrkn-
um er úthlutað,“ segir Ása
en segir einnig að verkefn-
in verði að vera fram-
kvæmanleg og þess vegna
séu verkefni á borð við
kvikmynd í fullri lengd
ekki það sem leitað er
eftir.
Verkefni innan leiklistar,
myndlistar, dans, tónlistar
og annarra listforma hafa
verið styrkt og má sem
dæmi nefna strengjakvart-
ettinn Amiina, tónlistar-
mennina Pétur Ben og Benna
Hemm Hemm, ásamt leik-
konunum Esther Talíu Casey
og Maríönnu Clöru Lúthers-
dóttir.
„Unga fólkið er hörku-
duglegt bæði í umsóknar-
ferlinu og við framkvæmd
verkefnanna sinna, þau
virkilega hafa brennandi
áhuga á því sem þau eru að
gera og vinna myrkranna á
milli,“ segir Ása.
Umsóknin þarf að vera
fagmannlega gerð og með
henni þarf að fylgja greinar-
góð lýsing á verkefninu,
tíma og verkáætlun, fjár-
hagsáætlun og upplýsingar
um aðstandendur verkefnis-
ins. Umsækjendur geta
fengið aðstoð við gerð
umsóknar hjá Hinu húsinu
en einnig þarf að sækja um
starfið hjá Vinnumiðlun
ungs fólks.
„Þetta umsóknarferli er
ákveðið nám fyrir unga
listafólkið. Starfandi lista-
menn þurfa sífellt að sækja
um styrki bæði fyrir launum
og verkefnum svo þetta er
góð æfing sem þau eiga eftir
að búa að,“ segir Ása.
Allar nánari upplýsingar
veitir Ása Hauksdóttir hjá
Hinu húsinu: www.hitt-
husid.is
Skapandi sumar-
störf fyrir ungt fólk
Bifvélavirki, vélvirki eða
vanur verkstæðismaður
Flugstoðir ohf. óska að ráða bifvélavirkja, vélvirkja eða mann vanan viðgerðum og viðhaldi bifreiða,
ugvöll.
Starfssvið
ugvallarins.
Starfsmaðurinn mun einnig aðstoða við snjóruðning, hálkuvarnir og viðbúnaðar- og neyðarþjónustu.
Menntun og/eða reynsla
Menntun og reynsla í vélvirkjun eða bifvélavirkjun er æskileg. Umsækjendur með haldgóða reynslu í viðgerðum bíla,
véla og stærri tækja koma einnig til greina. Meirapróf er skilyrði. Réttindi á þungavinnuvélar er æskilegt.
V , hefur lipra og þægilega framkomu og getur
ð er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknir
ð veita Ingunn Ólafsdóttir, starfsmannastjóri í síma 424-4000 og Jörundur Ragnarsson starfandi
egar umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf og mynd sendist
ugvelli, 101 Reykjavík fyrir 1 nna á
heimasíðu Flugstoða ohf. www ugstodir.is
r þjónustuverkefni Flugmálastjórnar Íslands þann 1. janúar 2007. Hjá Flugstoðum ohf. starfa um
ugleiðsöguþjónustu fyrir
r Norður - . Flugstoðir ohf. leggja áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.