Fréttablaðið - 04.03.2007, Page 28
Erlendum starfskröftum
hefur fjölgað á Íslandi
undanfarin ár. Yfirmenn
stórra verslanakeðja
segja Íslendinga almennt
þolinmóða í garð þeirra
þótt íslenskukunnáttu sé
stundum ábótavant.
„Í verslunum okkar starfa
fimm útlendingar,“ segir
Kristinn Skúlason,
rekstrarstjóri Krónunnar.
„Þeir koma að öllum störf-
um sem til falla. Enginn
þeirra vinnur þó á af-
greiðslukassa enn sem
komið er, þar sem þeir tala
ekki nógu góða íslensku.
Það mun þó breytast eftir
að þeir ljúka íslenskunám-
skeiði hjá Málaskóla Mímis,
sem Krónan greiðir fyrir
til að koma í veg fyrir sam-
skiptaörðugleika.“
Að sögn Kristins hefur
erlendu starfsfólki almennt
verið vel tekið í verslunum
Krónunnar. „Á tímabili var
kvartað undan því að of
margir töluðu litla íslensku
í ákveðnum búðum. Við
brugðumst við því með því
að dreifa útlendingunum
betur og höfum nú ekki
fleiri en tvo í hverri versl-
un. Það er að segja ef
íslenskukunnáttu þeirra er
ábótavant,“ útskýrir Krist-
inn. „Þá geta þeir alltaf
fengið aðstoð hjá íslenska
starfsfólkinu ef ske kynni
að vandamál kæmu upp.“
Kristinn segir erlenda
starfsfólkinu sjálfu líða vel
í verslunum Krónunnar.
„Það á tiltölulega auðvelt
með að samlagast hópnum
og er eins og hverjir aðrir
Íslendingar.“
„Í kringum fjörutíu útlend-
ingar starfa í verslunum
okkar, en þá á ég við erlenda
starfsmenn sem eru ekki
enn komnir með íslenskan
ríkisborgararétt,“ segir
Svanur Valgeirsson, starfs-
mannastjóri Bónusverslana,
sem eru 25 talsins.
Útlendingarnir dreifast
misjafnlega á búðirnar að
sögn Svans, þótt reynt sé að
hafa þá í minnihlutahópi
afgreiðslufólks við kassa til
að fyrirbyggja samskipta-
vandamál. „Flestir þeirra
geta bjargað sér á ensku,“
útskýrir Svanur. „Þess vegna
sendum við meirihlutann á
íslenskunámskeið hjá
Alþjóðahúsinu, sem við
greiðum fyrir. Fjöldi þáttak-
enda átti upphaflega að vera
fimmtán, en við náðum að
koma þeim upp í sautján.
Þetta er í fyrsta skipti
sem starfsmenn okkar hafa
verið sendir á námskeið af
þessu tagi. Þannig að enn á
eftir að koma í ljós hvað
þeim finnst um það. Starfs-
fólkinu hefur þó almennt
gengið nokkuð vel.“
Svanur segir ekki hafa
borið mikið á kvörtunum
undan íslenskukunnáttu
erlendra starfsmanna. „Það
hefur komið okkur á óvart
hversu þolinmóðir viðskipta-
vinirnir hafa verið. Verslun-
arstjórarnir halda því fram
að þeir sýni erlendu starfs-
fólki almennt meiri þolin-
mæði en því íslenska. Ætli
landanum sé bara ekki orðið
ljóst hve mikið útlendingar
hafa gert fyrir hagkerfi
okkar.“
Sýna erlendu
starfsfólki
þolinmæði