Fréttablaðið - 04.03.2007, Síða 69

Fréttablaðið - 04.03.2007, Síða 69
Í tilefni 120 ára afmælis Landsbankans fá Námufélagar 35% afslátt af miðaverði á allar sýningar gegn framvísun Námukortsins. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is FRUMSÝNING 8. MARS. FORSALA HAFIN! EFTIR H UGLEIK DAGSS ON & F LÍS LEIKST JÓRI: S TEFÁN JÓNSS ON SÖNGL EIKUR INN & „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR Klukkan sjö í kvöld hefst uppboð á rúmlega 130 verkum af ýmsu tagi á vegum Gallerí Foldar á Hótel Sögu, Súlnasal. Þar á meðal er fjöldi verka þeirra eldri málara sem mikil eftirspurn hefur verið eftir að undanförnu. Má því ætla að nokkrar fúlgur skipti höndum í kvöld á Sögu. Að vanda hefst uppboðið á prentverkum, grafík og ljósmynd- um. Þar verða seldar tvær fyrstu möppur sem Íslensk grafík gaf út og geyma báðar fimm þrykk. Þá verður boðið upp verk eftir Dieter Roth frá 1985 en hann á alls þrjú verk á þessu uppboði, þar af eitt unikum sem verðlagt er á 280-320 þúsund. Eru verk hans tekin að hækka nokkuð á íslenskum mark- aði en eru tíðir gestir víða um Evr- ópu á uppboðum og í galleríum. Mikla athygli vekja á þriðja tug leirverka eftir Guðmund frá Mið- dal; þá eru einnig falir gripir frá Gliti sem hafa ekki komið oft á uppboð Gallerís Foldar. Þar verða seld teppi, nú stykki, frá Austur- löndum. Postulínsgripir skreyttir af Flóka, stór stytta eftir Sæmund Valdimarsson sem metin er á 5- 700 þúsund. Margir yngri menn eiga verk á uppboðinu en það eru gömlu meist- ararnir sem staldrað er við: Þórar- inn B. Þorláksson á þar verk frá 1904 sem metið er á 2-2,2 miljónir. Jón Stefánsson á þar stórt olíu- verk frá 1929 sem metið er á 2,8- 3,2 miljónir. Þarna er til sölu lítil blýantsteikning eftir Mugg frá 1913, sex málverk eftir Ásgrím Jónsson misdýr, fimm eftir Kjar- val. Þær stöllur Louisa Matthías- dóttir og Nína Tryggvadóttir eiga þar litlar myndir. Þarna eru stórar myndir eftir Karl Kvaran og Jóhannes Jóhannesson. Stór hafn- armynd eftir Gunnlaug Blöndal og málverkið Stúlka með fiðlu eru metin á 3-3,5 milljónir hvor. Lands- lagsmynd eftir Jóhann Briem frá 1935 er metin á 350-400 þúsund, sem verður að teljast lágt miðað við yngri myndir eftir hann. Toppurinn er þó tvær myndir eftir Þorvald Skúlason, sú eldri, Stúlkur með bolta frá 1941 er tímamótaverk en hin, Abstrakt- ion, er unnin tíu árum síðar frá hinu merkilega tímabili í upphafi sjötta áratugsins. Hún er metin á 6-700 þúsund meðan Stúlkunar gæti farið á fjórðu miljón eða hærra, svo einstök sem hún er. Verkin eru sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg í dag frá kl. 12.00 til 17.00. Þá er hægt að skoða upp- boðsskrána á vefsíðu Gallerís Foldar www.myndlist.is. Verkin eru seld í því ástandi sem þau eru í og ofan á boð leggjast 10% höf- undar- og uppboðsgjald. Uppboð á Sögu í kvöld

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.