Fréttablaðið - 04.03.2007, Side 78

Fréttablaðið - 04.03.2007, Side 78
Gjörningaklúbburinn hefur verið fenginn til að hanna búninga fyrir umslagið á nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur. Þetta staðfesti Eirún Sigurðardóttir en hún skip- ar klúbbinn ásamt þeim Jóní Jóns- dóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur. Eirún vildi lítið tjá sig um málið þegar Fréttablaðið náði tali af henni en sagði þó að stíllinn yrði í líkingu við það sem Björk er hvað þekktust fyrir. „Við verjumst allra frétta en lofum því þó að þetta á eftir að vera í takt við það sem Björk hefur verið að gera,“ segir listakonan. Hún tekur þó skýrt fram að þær komi ekki að myndatöku fyrir umslagið né hanni það. Einungis sé um að ræða kjólana. Björk hefur verið þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir í klæða- burði og mörgum er það eflaust í fersku minni þegar hún mætti til leiks á Óskarsverðlaununum í svanakjólnum fræga árið 2001. Þá vakti kjóll hennar við setningu Ólympíuleikanna verðskuldaða athygli og ljóst að verkefnið hefur verið ærið fyrir Gjörningaklúbb- inn. Mikil spenna ríkir fyrir nýj- ustu plötu Bjarkar sem verður fyrsta hljóðversskífa hennar í þó nokkurn tíma. Á heimasíðu söng- konunnar á föstudaginn var síðan tilkynnt um nafnið og útgáfudag en hún mun heita Volta og kemur út sjöunda maí. Að sögn Einars Arnar Benedikts- sonar hjá Smekkleysu var farið mjög varlega í allar upplýs- inagjöf á net- inu og ekki gefin út nöfn- in á lögunum af ótta við stuld frá sjóræn- ingjaútgáfum. Gjörningaklúbbur hannar búninga fyrir umslag Bjarkar Upptökum er að ljúka á tónlist við söngleikinn Gretti sem verður frumsýndur þann 30. mars. „Þetta hefur gengið mjög vel,“ segir Hall- ur Ingólfsson, tónlistarstjóri hljóm- sveitarinnar, sem hefur staðið í ströngu við upptökunar. Sjálfur spilar hann á trommur í sveitinni en auk hans skipa hana Elís Péturs- son úr Jeff Who á gítar, Þorbjörn Sigurðsson úr Dr. Spock og Jón Atli úr Hairdoctor á bassa. „Við náum vel saman og þess vegna tókum við þetta eiginlega allt upp „live“ út af þessu „energíi sem er í hljómsveit- inni,“ segir hann. Tónlistin í verkinu var samin af Þursaflokknum í kringum 1980. „Þetta er íslenskt, mystískt, kraft- mikið og fyndið og svolítið dramat- ískt,“ segir Hallur. „Sumt er líka létt og skemmtilegt.“ Söngleikurinn fjallar um Gretti, sem er utanveltu í samfélaginu og virðist hvorki ná að fóta sig í skóla né félagslífinu. Skyndilega verður hann mesta sjónvarpsstjarna Íslands og kraftakarl, nánast ofur- hetja. Jóhann Sigurðarson og Birg- itta Birgisdóttir fara með tvö af helstu hlutverkunum í söngleikn- um. Kraftmikill Grettir „Ég er sáttur. Svavar er stórlega vanmetinn. Og undirverðlagður,“ sagði Guðmundur Jónsson gallerí- eigandi í samtali við blaðamann Fréttablaðsins á þriðjudag. Hann stóð á götutröppunum fyrir utan uppboðshús Bruun Rasmussen við Brödgade í Kaupmannahöfn. Og var að róa æstar taugar. Ekki van- þörf á. Hann hafði verið á bólakafi í æsispennandi uppboði. Sem gekk afskaplega hratt fyrir sig. Guð- mundur hafði boðið af kappi í myndir Svavars Guðnasonar og var á þeirri stundu ekki einu sinni viss um hversu margar myndir voru slegnar honum. Nú heim kominn hefur Guð- mundur haft svigrúm til að skoða stöðuna. Hann átti hæsta boð í þrjár myndir af þeim fimmtán sem í boði voru. Og er ánægður með myndirnar. Meðal annars keypti Guðmundur Komposition sem fór á hæsta verðinu eða 32 þúsund krónur danskar. Sem gerir 380 þúsund krónur íslenskar. Þá á eftir að bætast við kostnaður svo sem sölulaun sem eru um 25 pró- sent ofan á söluverð. En gullfalleg mynd sem og hinar tvær sem Guð- mundur eignaðist á uppboðinu: Jazz og önnur sem ber titilinn Komposition. „Þetta byrjaði nú allt með því að mig langaði í Jazzinn. En þetta var athyglisvert. Spennandi. Gaman að hafa smá spennu í þessu. Þetta var dýrara en ég átti von á. En ekki miklu dýrara. Þetta er gamalt trix hjá Dönunum að hafa matsverðið miklu lægra en eðli- legt er til að vekja áhuga. Þeir vita alveg hvað þeir eru að gera,“ segir Guðmundur. Guðmundur segist hafa misst af mynd sem hann hafði hug á að eignast sem var númer fjögur á uppboðinu. Segir uppboðið hafa farið fremur rólega af stað með fyrstu myndunum en svo hljóp verðið skyndilega upp og í 18 þús- und danskar með þeirri mynd. Að sögn Guðmundar gengur sú saga fjöllum hærra að hann hafi keypt allar myndirnar á uppboð- inu. „Það eru svo margar lyga- og tröllasögur í þessum bransa.“ Myndirnar eru enn úti í Dan- mörku og Guðmundur segist ekki einu sinni búinn að ákveða hvað verði um þær, hvort hann selji þær eða eigi sjálfur. „Forsíðufréttin á Fréttablaðinu á föstudaginn var mjög merki- leg, að tvöfalt fleiri missi hús- næði vegna skulda í dag. Það bendir til þess að þjóðfélagið sé að verða stéttaskiptara en það var, og æ fleiri hafi ekki efni á því grundvallaröryggi sem það er að eiga íbúð.“ Þau stórtíðindi áttu sér stað í íslenskri skemmti- staðaflóru á fimmtudagskvöldinu að kvik- myndaleikstjórinn Baltasar Kormákur seldi rekstur Kaffibarsins til Þorsteins Stephensen, sem oftast er kenndur við Hr. Örlyg. Barinn hefur um langt skeið verið eitt af kennileit- um Baltasars, ef svo má að orði komast, og þeir tveir oft verið nefndir í sömu andrá. Söluverðið er trúnaðarmál en Baltasar sagðist í samtali við Fréttablað- ið hafa íhugað það í dágóðan tíma að selja staðinn. „Þessi rekstur samræm- ist einfaldlega ekki þeim rekstri og því fyrirtæki sem ég er að sinna í dag,“ segir Baltasar, sem viðurkenndi þó að hann ætti eftir að sakna staðarins. „Ég hef fengið nokkur tilboð en gat einfaldlega ekki hafnað þessu enda er Kaffi- barinn kominn í góðar hendur,“ hélt leikstjór- inn áfram. „Þarna eru margar góðar minning- ar og eflaust verður nafnið mitt tengt við staðinn um ókomna tíð,“ bætir Baltasar við. Þorsteinn Stephensen var að vonum kátur yfir því að vera kominn með lyklavöldin að Kaffibarnum. „Þetta er einfaldlega frægasti bar í heimi,“ segir Þorsteinn. „Og eitt af kennileitum miðborgar Reykja- víkur,“ bætir hann við. Þor- steinn segir þó að engar stór- vægilegar breytingar komi til með að eiga sér stað. Og þó. „Við viljum kannski end- urvekja þessa frægu síð- degismenningu sem Kaffibarinn varð þekktur fyrir,“ útskýrir Þorsteinn. „Gamlir fasta- gestir staðarins eru allir komnir með barnavagna og vilja hafa huggulegt í kringum sig. Við viljum fá þá aftur inn til okkar,“ bætir hann við. „Og svo viljum við auðvitað halda anda Baltasars á lofti og hann fær frítt kaffi til æviloka.“ Baltasar Kormákur selur Kaffibarinn Húsmæðraorlof Gullbringu- og Kjósarsýslu Álftanes, Garðabær, Garður, Grindavík, Kjósarhreppur, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Sand- gerði, Seltjarnarnes, Vogar. Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver kona sem veitir, eða hefur veitt heimili forstöðu, án launagreiðslu fyrir það starf. Dalir og Borgarfjörður 16. til 18. ágúst. Skoska hálendið og Edinborg 17. til 22. maí. Ítalía 26. maí til 2. júní. Aðventuferð til Würzburg 7. til 10. desember. Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og taka á móti pöntunum í síma á milli kl. 17:00 og 19:00 á virkum dögum frá 5. til 16. mars. Svanhvít Jónsdóttir 565 3708 Ína Jónsdóttir 421 2876 Guðrún Eyvindsdóttir 422 7174 Valdís Ólafsdóttir 566 6635 Sigrún Jörundsdóttir 565 6551 Orlofsnefndin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.