Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 2

Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 2
Ungmenni sem dvöldu í Götusmiðjunni á síðasta ári voru allt niður í tíu ára þegar þau hófu að neyta vímuefna. Yngsti aldur er neysla hófst var átta ár. Þetta kemur fram í nýútkominni ársskýrslu Götusmiðjunnar fyrir árið 2006. Guðmundur Týr Þórarinsson, Mummi í Götusmiðjunni, segir síð- asta ár hafa einkennst af erfiðleik- um varðandi fjármál, starfsmanna- mál og húsnæðismál. „Húsakosturinn á Akurhóli er kominn í niðurníðslu, þök leka, svo og lagnir og gluggar, sem eru bæði fúnir og jafnvel óopnanlegir. Starf- semin hefur verið á undanþágu frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands frá árinu 2005. Mjög erfitt er að fá hæft fagfólk til að starfa á þessu landssvæði og svo er ímynd þess hóps sem Götu- smiðjan vinnur með oft neikvæð, sem vissulega hefur þó lagast.“ Varðandi fjárhagsvandann segir Mummi að það þreyti starfsemina að þurfa að útvega 20 prósent af rekstrarkostnaði árlega með því að afla styrkja og vera með fjársafn- anir til að halda Götusmiðjunni gangandi. Hann bendir á mikilvægi þess að meðferðin beri árangur í fyrsta skipti, því rannsóknir sýni að því oftar sem fólk fari í meðferð, þeim mun vonlausara verði það um að ná árangri til frambúðar. Fréttablaðið greindi frá því í síð- ustu viku að til athugunar væri að Götusmiðjan fengi húsnæðið að Efri-Brú, sem nú stendur autt. Mummi kveðst sjálfur fremur horfa til Arnarholts á Kjalarnesi, sem einnig stendur autt. Hann telur að með þeirri ráðstöfun sé auðveld- ara að fá hæft fagfólk, því stutt sé að sækja vinnu þangað frá höfuð- borgarsvæðinu. Stöðugildi Götu- smiðjunnar eru nú 14 talsins og dreifast þau á 17 starfsmenn. Mummi leggur áherslu á að starfsandi sé með ágætum í smiðj- unni, enda byggi meðferðin á hug- myndafræði þar sem áhersla sé lögð á ræktun jákvæðra tilfinninga og því að bera virðingu fyrir sjálf- um sér og öðrum. Aldrei hafi komið upp líkamleg ofbeldisverk milli ungmennanna og starfsfólks frá stofnun smiðjunnar. Yngsti vímuefna- neytandinn átta ára Ungmenni sem voru í meðferð í Götusmiðjunni á síðasta ári voru allt niður í átta ára þegar þau hófu fyrst neyslu vímuefna. Rúmur helmingur ungmenn- anna í smiðjunni var á aldrinum 12-13 ára þegar vímuefnaneysla þeirra hófst. Guðrún, liggur ekki beint við að breyta nafninu í Sportbar- inn? Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS ISUZU D-MAX 32” Nýskr. 11.05 - Sjálfskiptur - Ekinn 17 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 2.280 .000. - Mannfræðileg rann- sókn á lífssýnum úr Hermanni Jónassyni, fyrrverandi forsætis- ráðherra, og móður Lúðvíks Giz- urarsonar má fara fram, sam- kvæmt dómi sem Hæstiréttur Ís- lands kvað upp í gær. Lúðvík og tvö börn Hermanns hafa átt í langvinnum málaferl- um. Lúðvík hefur krafist þess að gerð verði mannerfðafræðileg rannsókn á lífsýnum úr móður hans og Hermanni til viðurkenn- ingar á því að Hermann sé faðir hans. Málið hófst með því að Lúðvík höfðaði véfengingarmál árið 2003 fyrir dómstólum til staðfestingar á því að Gizur, eiginmaður móður hans, væri ekki faðir hans. Dómur gekk í því máli í byrjun árs 2004. Sannað hafði verið með mann- erfðafræðileg- um rannsókn- um að Gizur gæti ekki verið faðir Lúðvíks. Lúðvík er því föðurlaus í dag. Faðernismálið var síðan þingfest haustið 2004 og hefur síðan verið rekið ýmist fyrir héraðsdómi eða Hæsta- rétti. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði þrisvar sinnum heimilað mannerfðafræðilega rannsókn, en börn Hermanns jafnharðan kært til Hæstaréttar, sem hnekkti dómunum þar til nú, að hann stað- festi úrskurð héraðsdóms. Dögg Pálsdóttir, lögmaður Lúðvíks, segir niðurstöðuna sér- lega ánægjulega. „Loksins fær hann úr því skorið hvort faðir gagnaðila sé faðir hans.“ Ekki náðist í Jón Sveinsson, lögmann barna Hermanns, við vinnslu fréttarinnar. Fær að sannreyna faðerni sitt Leiðtogaráð Evrópusambandsins sam- þykkti djörf markmið til að draga úr gróðurhúsa- áhrifum á fundi sínum í gær. Samkvæmt markmiðunum skuldbinda ríki sam- bandsins sig til þess að árið 2020 muni fimmtungur þeirrar orku sem ríkin nota koma frá endurnýjan- legum orkugjöfum á borð við sól- og vindorku. Er um mikla aukningu að ræða en í dag koma um sex prósent orkunnar frá endurnýjanlegum orkugjöf- um. Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, skoraði á aðrar þjóðir að fylgja fordæmi ESB og sagði að heimurinn hefði enn tíma til að „afstýra því sem vel gæti orðið hörmungar mannkyns.“ Samkvæmt áætluninni á útblástur gróðurhúsa- lofttegunda innan ríkja ESB að hafa dregist saman um 20 prósent á tímabilinu 1990 til 2020. Merkel hyggst kynna áætlun á fundi iðnvædd- ustu þjóða heims í júní, G8-hópsins svonefnda, og vonast leiðtogaráðið til að hún geti haft áhrif á ríki á borð við Bandaríkin og Kína sem menga mest allra þjóða heims. Í áætluninni er umdeild klásúla þar sem kjarn- orka er einnig nefnd sem vænlegur orkugjafi. Var hún sett inn að kröfu Frakklands, Tékklands, Slóvaíku og fleiri landa. Finnski dómsmálaráð- herrann Leena Luhtanen ætlar ekki að víkja úr ráðherraemb- ætti vegna ásakana um að hún hafi borgað auglýsingar undir borð- ið í kosningabaráttu árið 2004. Luhtanen hafnar þessum ásökun- um sem birtust í finnska eftirmið- dagsblaðinu Ilta Lehti. Greinilegt er að hiti hefur færst verulega í leikinn í kosn- ingabaráttunni í Finnlandi en finnska þjóðin gengur til kosninga eftir viku. Luhtanen segir í Hels- ingin Sanomat að hún muni fara yfir fréttaflutninginn með sér- fræðingum og ákveða síðan fram- haldið. Luhtanen var samgöngu- ráðherra árið 2004. Hiti færist í baráttuna Samtök atvinnu- rekenda í sjávarútvegi voru sett á stofn á sameiginlegum fundi LÍÚ og Samtaka fiskvinnslu- stöðva sem fram fór á Akranesi á fimmtudag. Um er að ræða samstarfsvettvang samtaka at- vinnurekenda í sjávarútvegi, sem starfa innan Samtaka atvinnu- lífsins. Meginhlutverk samstarfs- ins felst í nánara samstarfi og samþættingu verkefna er varða kynningar- og ímyndarmál sjávarútvegsins, auk umhverfis- mála og annarra verkefna er varða sameiginlega hagsmuni. Stofna samtök atvinnurekenda Fyrirtækið Mar- orka ehf. fékk „Vaxtarsprotann 2007“. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti dr, Jóni Ágústi Þorsteinssyni, fram- kvæmdastjóra Marorku, viður- kenninguna í Listasafni Kópavogs í gær. Vaxtarsprotinn er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprota- fyrirtækis. Marorka jók veltu sína milli áranna 2005 og 2006 um 87,5 prósent, sem var mesti vöxtur sprotafyrirtækis á þessu tímabili. Þetta er í fyrsta skipti sem Vaxtarsprotinn er afhentur. Hann verður veittur árlega hér eftir. Marorka fékk Vaxtarsprotann Heilbrigðisnefnd Vesturlands hefur beint því til bæjarstjórnar Grundarfjarðar að grannt verði fylgst með efnainni- haldi sjávar í Grundarfirði. Rann- sókn leiddi í ljós mikið fosfat og ammoníak í sjónum. Magn þessara efna þykir engan veginn eðlilegt við um 950 manna bæjarfélag eins og Grund- arfjörð, þótt það kæmi ekki á óvart við 80 þúsund manna byggð. Frá þessu var greint á vefsíð- unni Skessuhorn.is en rannsóknin var gerð eftir fiskdauða í fjórum eldiskvíum í janúar. Fosfat í sjó við Grundarfjörð Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa lýst áhyggjum yfir því hvernig staðið var að handtökum á mótmælend- um vegna rýmingar Ungdóms- hússins. Fréttavefur Politiken greinir frá þessu. Í bréfi sem samtökin sendu danska dómsmálaráðuneytinu er greint frá kvörtunum sem bár- ust yfir því að ólögráða ungling- ar hefðu verið fangelsaðir með fullorðnum og að fólk hefði verið auðmýkt meðan það var í haldi. Krefjast samtökin þess að dönsk yfirvöld rannsaki málið. Amnesty biður um rannsókn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.