Fréttablaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 12
Tölvutengdur þreifistafur
fyrir blinda og þróun tölvu-
kerfa fyrir flugumferðar-
stjóra eru meðal verkefna
sem íslenskir vísindamenn
á sviði tölvunarfræða
eru að fást við. Samskipti
manns og tölvu, þar sem
samskipti á milli notenda
og tölvu eru rannsökuð,
er þverfræðilegt svið sem
tengir tölvunarfræði við
mörg önnur fræðasvið.
Dr. Ebba Þóra Hvannberg er próf-
essor við tölvunarfræðiskor Há-
skóla Íslands og þann 1. júlí í
sumar verður hún fyrst íslenskra
kvenna til að gegna stöðu deildar-
forseta verkfræðideildar HÍ.
Hún hefur á undanförnum árum,
samhliða kennslu og stjórnunar-
störfum, stundað margvíslegar
rannsóknir á sviði tölvunarfræða
bæði í samvinnu við íslenska og
erlenda vísindamenn. „Í þessum
verkefnum vinn ég með fyrirtækj-
um og stofnunum að fyrirfram
ákveðnum rannsóknarmarkmið-
um. Markmiðin eru af hagnýtum
toga og miðast oft við að finna
nýjar aðferðir í tölvunarfræði,
meta hve vel áður þekktar aðferð-
ir reynast, eða bera saman aðferð-
ir.“
Meðal rannsóknarverkefna Ebbu
Þóru eru samskipti manns og
tölvu en hugbúnaðurinn sem próf-
aður hefur verið í tengslum við
það er á ýmsum sviðum, svo sem
margmiðlunarþjónusta til heim-
ila, flugumferðarstjórn, eLearn-
ing (tæknistudd námskerfi), hug-
búnaður til að auka aðgengi ungra
nemenda að stærðfræði svo nokk-
uð sé nefnt.
„Meginmarkmiðið með þessu er
að komast að því hvernig notand-
inn upplifir tölvukerfið sem hann
vinnur með og hvaða verkefni
hann vill leysa með aðstoð kerfis-
ins. Krafan er auðvitað sú að hönn-
un kerfisins sé sem best og henti
viðkomandi einstaklingi og þeim
verkefnum sem hann er að fást
við,“ segir Ebba Þóra.
Aðgengi einstaklinga að því tölvu-
kerfi sem þeir vinna með er líka
skoðað vandlega að sögn Ebbu
Þóru. „Þetta er ekkert ósvip-
að og í arkitektúr til dæmis, þar
sem menn skoða aðgengi að þeim
byggingum sem verið er að hanna,
í okkar tilviki eru byggingarnar
tölvukerfi.“
Þessi vinna er unnin í samvinnu
við framleiðendur hugbúnaðar
bæði innanlands og utan og felst í
hönnun á frumgerðum að tölvu-
kerfum eða notendaviðmótum.
„Við komum með tillögur og förum
síðan með þessar frumgerðir á
vettvang þeirra sem eru að nota
þessi kerfi.“
Í framhaldinu skoða vísinda-
mennirnir síðan hvernig gengur
að nota það sem þeir hafa hannað
og sjá þá hvað má betur fara og
hvernig hægt er að endurbæta
hönnunina svo og þær aðferðir
sem notaðar eru við hönnun og
prófanir. „Þannig gengur þetta
eiginlega koll af kolli og í raun má
segja að þróunarvinna af þessu
tagi sé endalaus vinna. Tæknin er
alltaf að breytast og ný viðfangs-
efni koma stöðugt til sögunnar.“
Sem dæmi um verkefni af þessu
tagi nefnir Ebba Þóra að Háskóli
Íslands, í samstarfi við Flugmála-
stjórn Íslands, hefur um árabil
verið frumkvöðull í rannsóknum
á flugumferðarstjórnun og meðal
annars þróað hugbúnað fyrir
hermi sem nýtist við ýmiss konar
greiningu og prófanir. „Sérfræði-
þekking í flugumferðarstjórn yfir
hafi er afar mikilvæg þegar þróa
á ný tölvukerfi sem flugumferðar-
stjórar nota við að stýra umferð.
Sú þekking sem hefur byggst upp,
bæði hér á landi og í samstarfi
sem Íslendingar hafa tekið þátt í á
alþjóðavettvangi, hefur haft mikil
áhrif á hugmyndasmíði og nýst
við prófanir.“
Að sögn Ebbu Þóru gerir tækni-
og skipulagsumhverfi íslenska
flugstjórnunarsvæðisins að verk-
um að það er eftirsótt til prófana á
nýjungum í flugumferðarstjórn-
un. „Við höfum um nokkurt skeið
unnið að rannsóknarverkefni í
samstarfi við Massachusetts In-
stitute of Technology í Boston,
Flugmálastjórn og Flugkerfi ehf.,
sem hefur að markmiði að þróa og
prófa nýjar aðferðir og grafíska
framsetningu gagna fyrir eftirlit
og stjórnun flugumferðar. Þetta
verkefni getur leitt til þess að
starfsumhverfi flugumferðar-
stjóra muni gerbreytast. Nemend-
ur í framhaldsnámi við Verkfræði-
deild HÍ og MIT hafa meðal annars
tekið þátt í þessu rannsóknarverk-
efni.“
Annað afar athyglisvert rannsókn-
arefni sem Ebba Þóra hefur verið
að vinna að er marghátta notenda-
viðmót til að endurbæta samskipti
blindra og tölvu, til dæmis að auka
aðgengi blindra að stærðfræði.
„Tölulegar upplýsingar og stærð-
fræði hafa eðlislæga flókna fram-
setningu og óhlutstæða merkingu.
Þetta hindrar aðgengi blindra
nemenda að þessum upplýsingum
og gerir skilning erfiðari. Það sem
við erum að rannsaka er hvern-
ig nota má jaðartæki tölvu sem
leyfir notanda að nota snertiskyn
og hreyfiafl (haptics) til að skilja
þessar upplýsingar.“
Í þessu skyni var notað sérstakt
tæki, svokallaður þreifistafur,
sem nefnist Phantom haptics.
„Þetta er nokkurs konar tækniút-
gáfa af blindrastaf, meginmunur-
inn er sá að þreifistafurinn er
tengdur við tölvu. Notandinn held-
ur um stafinn eins og penna og
stýrir honum en það er segulkraft-
ur sem heldur honum að útlínum
þess hlutar sem verið er að kanna.
Þannig vonumst við til að notand-
inn geti þekkt viðkomandi hlut.“
Skynjunin gegnum þreifipenn-
ann er í formi titrings og viðnáms
en Ebba Þóra segir að verið sé að
gera tilraunir með að bæta við
hljóði og tali. „Þetta er kallað mult-
imotal notendaviðmót, eða marg-
hátta tækni þar sem saman koma
snerting, heyrn og hreyfing svo
eitthvað sé nefnt.“
Að sögn Ebbu Þóru er vonast til
að þessi tækni nýtist ekki aðeins
til stærðfræðináms heldur ým-
islegs annars og þetta geti orðið
vísir að einhvers konar viðmót-
stæki fyrir blinda. „Það er ágætt
að einbeita sér að ákveðnu af-
mörkuðu verkefni í fyrstu til að
ná tökum á þessu en síðan von-
umst við til að efla þessar rann-
sóknir meðal annars í samvinnu
við finnska og sænska vísinda-
menn en þar eru til öflugar þekk-
ingarmiðstöðvar fyrir blinda. Og
þar eru vísindamenn kannski að
þróa svipuð forrit og við og gegn-
um samskiptin getum við nýtt
reynslu hvers annars.“
Þessi alþjóðlega samvinna er
Ebbu Þóru afar hugleikin og hún
segir internetið og tölvutæknina
hafa gjörbreytt allri vinnu á sviði
vísindarannsókna. „Hún gerir
okkur til dæmis kleift með fljót-
legum hætti að bera saman rann-
sóknir í mismunandi löndum. Vís-
indarannsóknir snúast ekki lengur
um að gera rannsóknir á einum
stað heldur söfnum við saman nið-
urstöðum rannsókna frá fleiri
stöðum, þannig nær rannsóknin til
margra landa, og öflugri niður-
staða fæst,“ segir Dr. Ebba Þóra
Hvannberg tölvunarfræðingur.
Rannsakar samskipti manns og tölvu
AÐALFUNDUR
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður
haldinn laugardaginn 10. mars kl. 13.00
að Grettisgötu 89, 1. hæð.
Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf.
Aðalfundurinn er opinn öllum félagsmönnum.
Stjórnin