Fréttablaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 74
T
ímalaus elegans
mætir framtíðarfant-
asíu með smáívafi af
sixtís kúli – þannig
mætti lýsa tískuvik-
unni í París með einni
setningu.
Flíkin sem tröllreið öllum tísku-
sýningunum fyrir haust/vetur
2007 í París var efnismikla kápan.
Margar þeirra voru bjöllulaga og
stuttar eða með víðu herrasniði.
Stella McCartney setti tóninn um
„lúkk“ næsta vetrar – en það snýst
allt um að vera dömuleg en í senn
afslöppuð, í aðsniðnum fötum sem
eru bæði strákaleg og kvenleg, föt
sem eru fyrst og fremst kynþokka-
full, litrík og djörf. Hátíska sem
er svo dásamlega sniðin að nú-
tímakonunni að eftirlíkingar
verða örugglega í öllum ódýrari
verslanakeðjum í haust. Kjólar
voru oft frekar víðir og stuttir,
mikið um skokka og frumleg erm-
asnið, buxur ýmist níðþröngar eða
mjög víðar, og kvöldkjólar ætíð
dragsíðir og guðdómlega kvenleg-
ir.
Tískuspekúlantar féllu í stafi
yfir sýningum Stellu McCartney,
hönnun Nicolas Ghésquiere fyrir
Balenciaga og hönnun nýliðans
sænska Paulo Melim Andersson
fyrir Chloé. Frönsk klassík mætti
töffaraskap í vetrarlínum Hermés
og Chanel, og Miuccia Prada vakti
lukku með MiuMiu-línunni þar
sem áhersla var lögð á silki, satín
og frumleg snið.
Stikkorð til að hafa í huga fyrir
næsta vetur: Víðar kápur, jakkar
með hermannasniði, háir hanskar,
víðar ermar, skokkar, litaglaðar
sokkabuxur og lakkstígvél, hattar,
alpahúfur, derhúfur, reiðbuxur,
plíseringar.
Litir: Bleikt, fjólublátt, vínrautt,
eldrautt, svart, grátt og dimm-
blátt.
C ést chic
Nýyfirstaðin tískuvika í höfuðborg Frakklands
boðaði stórglæsilegt haust og vetur 2007 – kyn-
þokkafullan, litríkan og djarfan fatnað. Anna
Margrét Björnsson kynnti sér helstu strauma og
stefnur mestu hátískuborgar heims.