Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 19
Enn er komin á kreik sú mein-loka að gera auðlindir sjáv- ar að „þjóðareign“ með stjórnar- skrárbreytingu. Hér er hættulegur skrípaleikur í uppsiglingu. Orðin þjóð og eign standa fyrir sínu hvort fyrir sig, en þegar þau eru samein- uð í orðið „þjóðareign“ mynda þau orðskrípi eða orðalepp. Orðið þjóð er aðeins hugtak, mjög laust í reipunum: „Stór hópur manna, sem á sér að jafnaði sam- eiginlegt tungumál og menningu...“ stendur m.a. í orðabókinni. Eign er það sem er andlag eignarréttinda, nýtingar og ráðstöfunar eiganda hennar. Þar sem „þjóðin“ getur ekki haft eignarréttindi frekar en menning- in á hún engar eignir. Þar af leiðir að „þjóðareignir“ eru engar eignir. En þar sem „þjóðin“ getur ekki frekar en hugtakið menning farið með eignarréttindi verður ríkis- valdið að gæta hagsmuna hennar og ráðstafa þessum eignum. Þetta hefur hingað til, af hreinskilnum mönnum verið nefnt ríkiseign, sem byggist á þjóðnýtingu. Ákvæði um „þjóðar- eign“ í stjórnar- skrá verður aldrei annað en hástemmt bull. Enginn hefur gert grein fyrir því hvers vegna þarf að breyta stjórnarskránni í þessu sambandi. Eina breytingin, sem stjórnarskrárnefnd, undir forustu Jóns Kristjánssonar, var sammála um var að breyta reglum um það, hvernig á að breyta stjórnar- skránni. Núverandi reglur eru tald- ar allt of opnar og fjarlægar kjós- endum. Nú á að ryðja þessari breyt- ingu fram hjá hinni nýju breytingarreglu. Allt sem flutningsmenn stefna að er hægt að framkvæma með venjulegum lögum frá Alþingi. Þjóðnýting er ekkert ný á Íslandi. En hún er ekki vinsæl um þessar mundir og því eru menn að fara krókaleiðir til að framkvæma hana. Fara inn um bakdyrnar. En því að nota stjórnarskrána? Er það til að ógilda vernd eignar- réttarins í stjórnarskránni, sem krefst fullra bóta? Á að breyta stjórnarskránni til að taka bóta- laust eignir, sem menn hafa greitt tugi milljarða fyrir? Það er verið að nema eignarréttinn úr gildi eins og gert var í kommúnistaríkjunum. Þessi stjórnarskrárbreyting gerir ekkert annað en að veikja og þynna út eignaréttarhugtakið, skapa óvissu og deilur. Það sem er þó einna alvarlegast er að með „þjóðareign“ eru verðmæti tekin undan yfirráðum landsmanna. Menn fá engan aðgang að þeim nema fyrir milligöngu kjörinna fulltrúa, sem eru í æ ríkari mæli að taka á sig mynd kjöraðals, sem gerir sig í auknum mæli óháðari kjósendum. Það er verið að taka kjósendur úr sambandi, því yfir eignum, sem eru bundnar í stjórn- arskrá hafa þeir litla eða enga ráð- stöfun. Þó eiga þessir fulltrúar að sækja vald sitt til kjósenda. Stjórnarskrá Íslands er dýrasta trygging okkar kjósenda fyrir lýð- réttindum. Hún verður að fá að vera í friði fyrir skammtíma kosn- ingahagsmunum, gorgeir og skrumi. Hún þarf að hafa skírleika og stöðugleika og frið. Ef misvitrir stjórnmálamenn eru sífellt að mis- nota stjórnarskrána sem sorpílát fyrir tímabundið kosningaþvarg endar hún bara sem ruslakista þess, sem einu sinni var lýðræði. Höfundur er stórkaupmaður. Auðlindir í stjórnarskrá Stjórnarskrá Íslands er dýrasta trygging okkar kjósenda fyrir lýðréttindum. Hún verður að fá að vera í friði fyrir skammtíma kosningahagsmunum, gorgeir og skrumi. * Flugvallarskattar og þjónustugjald, 2.000 kr., eru ekki innifalin. Vildarklúbbur ‘07 70ÁR Á FLUGI ÍSLAND MEÐ VILDARPUNKTUM ÞRJÚ TILBOÐ TIL VILDARKLÚBBSFÉLAGA Í MARS 50% PUNKTAAFSLÁTTUR* AF FLUGI INNANLANDS Í MARS Í mars býðst Vildarklúbbsfélögum flugfar með Flugfélagi Íslands til allra áfangastaða innanlands með 50% afslætti af Vildarpunktum. Afsláttur fyrir börn, yngri en 12 ára, er samkvæmt reglum Vildarklúbbsins. + Bóka verður flugfar með þriggja daga fyrirvara í síma 570 3030. GISTING Á HÓTEL LOFTLEIÐUM GEFUR TVÖFALDA VILDARPUNKTA Í MARS Vildarklúbbsfélagar fá tvöfalda Vildarpunkta eða 1.000 punkta fyrir hverja gistinótt á Hótel Loftleiðum í mars. + Bóka verður gistingu í síma 444 4500 eða á www.icehotels.is BÍLALEIGA HJÁ HERTZ Á ÍSLANDI GEFUR TVÖFALDA VILDARPUNKTA Í MARS Vildarklúbbsfélagar fá tvöfalda Vildarpunkta eða 1.000 punkta fyrir hvert skipti sem þeir leigja bílaleigubíl hjá Hertz á Íslandi. Innifalinn er ótakmarkaður akstur. + Bóka verður bílaleigubíl í síma 522 4400. BÍLALEIGA Tvöfaldir Vildarpunktar GISTING Tvöfaldir Vildarpunktar FLUG 50% punktaafsláttur* ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 66 42 0 3 .2 0 0 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.