Fréttablaðið - 10.03.2007, Page 54

Fréttablaðið - 10.03.2007, Page 54
heimaerbest Þóra Breiðfjörð leirlistarkona hefur undanfarið ár þróað litríka og skemmtilega hluti í matarstell. Þar fara skálarnar hennar og kökudiskarnir hvað fremstir í flokki en smám saman hafa bæst við nýir hlutir og nú er hægt að fá matardisk, djúpan disk, kökudisk, bolla, bakka, föt og meira til. Þessa dagana er Þóra að einbeita sér að bollum fyrir samsýningu Leirlistarfélagsins sem haldin verður í Kringlunni 24. mars til 30. apríl næstkomandi á vegum Kaffitárs. Matarstellið mun hún svo sýna á hönnunarsýningunni Kvika sem verður sett á laggirnar á Kjarvalsstöðum í maí. „Þetta stell kalla ég blómastell. Einhvers staðar í þessu sköpunar- ferli sá ég fyrir mér garð fullan af skærlitum blómum og diskarnir mínir eru í litríku lífrænu formi svo að ég nefndi þá alla blóma- nöfnum,“ segir Þóra og tekur fram að henni þyki postulínið mjög spennandi efni. Þóra útskrifaðist árið 1999 úr Listaháskólanum en byrjaði að vinna markvisst að list sinni í byrjun árs 2005 þegar hún fékk vinnuaðstöðu í Hafnarfirði, að Skúlaskeiði. Þar má nálgast fallegu hlutina hennar sem eru einnig seldir í Galleríi Fold og í verslun Epal í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þeir sem eiga svo leið um Barcelona geta svo rekist á postulínið hennar í galleríi sem íslensk hjón reka þar og kallast Eskandal. En er fólk meðvitað um þá íslensku keramík sem stendur til boða? „Já, ég hugsa það. Það sem kannski oft vill gleymast er að þetta eru hand- gerðar vörur svo þær eru auðvitað dýrari en stellið úr IKEA, en það liggur auðvitað mikil vinna að baki hlutunum. Mér finnst þetta sköp- unarferli mjög skemmtilegt og afar mismunandi hvað kemur út úr því. Ég reyni að halda huganum opnum og festast ekki í einhverju ákveðnu.“ Íslenskt matarstell í regnbogans litum Gaman að vinna með postulín. Þóra Breiðfjörð hefur unnið með postulínið í tæp tvö ár. Litríkur fífill. Diskarnir eru allir nefndir eftir einhverri blómategund. Blómahaf skálanna. Þóra Breiðfjörð raðar diskum sínum eftir þemanu: blómum í garði. 10. MARS 2007 LAUGARDAGUR14

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.