Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 90

Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 90
 Bikarúrslitaleikur SS- bikars karla í handbolta fer fram í Laugardalshöllinni klukkan 16.00 í dag milli Íslandsmeistara Fram og bikarmeistara Stjörnunnar. Tveir kunnir kappar úr liðunum eiga misgóðar minningar úr bik- arúrslitaleikjum í Höllinni, Patr- ekur Jóhannsson, fyrirliði Stjörn- unnar, hefur aldrei tapað og Guð- mundur Guðmundsson, þjálfari Fram, á enn eftir að vinna bikar- inn. „Ég tapaði bikarúrslitaleik með Essen í Þýskalandi en hef ekki tapað á Íslandi. Það er vonandi að þessi sigurganga haldi áfram því mig langar ekkert til að kynnast hinu,“ sagði Patrekur Jóhannes- son, fyrirliði Stjörnunnar, sem varð bikarmeistari með KA 1995 og 1996 og síðan með Stjörnunni í fyrra. „Við erum að fara spila við mjög sterkt lið,“ segir Patrekur en Guðmundur ber einnig mikla virð- ingu fyrir mótherjum dagsins. „Það skiptir engu máli í þessum leik að við erum búnir að vinna síðustu leiki liðanna. Bikarkeppn- in er öðruvísi keppni. Þeir hafa forskot á okkur. Þeir urðu bikar- meistarar í fyrra og gengu þá í gegnum þennan pakka sem flestir leikmanna minna hafa ekki gert áður. Þeir eru líka á heildina litið með leikreyndara lið og líkamlega sterkara líka,“ segir Guðmundur sem þurfti að sætta sig við silfrið þegar hann fór með Víkinga í Höll- ina 1990 og 1991 líkt og Fram 1998. „Svona er þetta. Maður er með mismunandi lið á mismunandi tíma. Nú er ég með nýtt lið og það eru allt aðrar forsendur í gangi. Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni,“ segir Guðmundur sem vann bikarinn fjórum sinnum sem leikmaður og þekkir því alveg þá tilfinningu að vera bikarmeistari. Fram vann 29-25 sigur í leik lið- anna í Garðabæ fyrir viku þar sem Framliðið vann seinni hálfleikinn 19-8. „Það er ekki nóg að spila bara í 30 mínútur eins og við gerðum í síðasta leik. Það þarf að spila í 60 mínútur og kannski lengur ef það verður framlenging. Við vitum það sjálfir hvað klikkaði í síðasta leik og við ætlum að laga það,“ segir Patrekur en Guðmundur segir þann leik ekki skipta miklu máli. „Þeir urðu fyrir áfalli þegar Patti fór út af og við gengum á lagið. Við spiluðum betur í seinni hálfleik en þeir voru mun betri í fyrri,“ segir Guðmundur sem á von á flottum leik. „Bæði liðin hafa verið að spila mjög vel á köflum í vetur og mér hefur fundist þessir leikir á milli þessara liða í vetur hafa verið mjög skemmtilegir.“ Patrekur er líka sammála um að það sé vel þess virði að mæta í Höllina í dag. „Þetta er stærsti leikurinn á árinu og ég vona bara að það komi fullt af fólki og sjái þetta. Þetta eru frá- bær lið með frábæra þjálfara þannig að þetta verður mikil skemmtun,“ sagði Patrekur að lokum. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fram, hefur alltaf tapað bikarúrslitaleik sem þjálfari en Patrekur Jóhannesson, fyrirliði Stjörnunnar, aldrei. Líkt og undanfarin ár fara allir bikarúrslitaleikir hand- bolta fram um helgina því yngri flokkarnir spila á morgun. HK er með fjögur lið í úrslitum, í 4. flokki spila HK-strákarnir við Fram klukkan 12.00 og HK-stelp- urnar við Stjörnuna klukkan 13.30. Í unglingaflokki spila HK- strákarnir við FH klukkan 15.00 og HK-stelpurnar við Fylki klukk- an 17.00. Lokaleikur dagsins er síðan á milli Hauka og Vals í 2. flokki karla. Sá leikur hefst klukkan 19.00 en allir leikirnir fara fram á græna HM-dúknum í Laugardals- höllinni. HK á fjögur lið Tveir leikmenn Gróttu hafa verið með í öllum þrem- ur bikarúrslitaleikjum félagsins, 2000 þegar liðið tapaði 23-27 fyrir Val, 2002 þegar liðið tapaði 16-22 fyrir ÍBV og svo 2005 þegar liðið tapaði 17-31 fyrir Stjörnunni. Þetta eru hornamennirnir Ragna Karen Sigurðardóttir og Kristín Þórðardóttir. Grótta var í samstarfi með KR í þessum þremur úrslitaleikjum en liðið mætir nú í fyrsta sinn undir eigin merkjum eingöngu. Tvær að reyna í fjórða sinn Roland Valur Eradze, markvörður Stjörnunnar, æfði ekkert með liðinu í vikunni vegna meiðsla en verður með í leiknum í dag. Sömu kringumstæður voru í bikarúrslitaleiknum í fyrra. Rol- and gat þá lítið æft fyrir leikinn en átti síðan stærstan hlut í sigr- inum með því að verja 30 skot í 24-20 sigri Stjörnunnar á Hauk- um. Roland varði meðal annars 63% skota sem á hann komu í seinni hálfleik. Roland Eradze æfði ekkert Ísland og Írland gerðu 1-1 jafntefli á Algarve Cup-æf- ingamótinu í Portúgal í gær. Ís- lensku stúlkurnar komust yfir með marki Rakelar Logadóttur á 36. mínútu en samkvæmt lýsingu leiksins á fótbolti.net kom mark- ið eftir undirbúning Ernu B. Sig- urðardóttur. Írar jöfnuðu leikinn í síðari hálfleik en þá gáfu íslensku leik- mennirnir eftir. Ísland mætir næst heima- mönnum í Portúgal á mánudaginn kemur. Ísland gerði jafntefli við Íra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.