Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 1

Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 1
„Ég tel að aukningin hjá átröskunarsjúklingum sé mest meðal nýbakaðra mæðra,“ segir Alma Geirdal, framkvæmdastjóri og ráðgjafi Forma, sam- taka átröskun- arsjúklinga. „Það eru gerð- ar miklar kröf- ur um að konur geti farið í gömlu galla- buxunum af fæðingardeild- inni,“ segir Alma og bætir við að hún fái sting í hjartað þegar hún sjái auglýsingar sem beinast að konum sem eru nýbúnar að eign- ast barn. Alma segir ekki lengur hægt að þegja yfir því hversu illa er stað- ið að málum átröskunarsjúklinga innan heilbrigðiskerfisins. „Nú er svo komið að það er þörf á því að fara af stað með sér hópa fyrir nýbakaðar mæður sem þjást af átröskun.“ - vi› rá›umSkógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is Sérfræ›ingur í umhverfisrá›uneytinu Laus er til umsóknar sta›a sérfræ›ings á skrifstofu sjálfbærrar flróunar og alfljó›amála. Me›al verkefna skrifstofunnar eru:Starf á svi›i loftslagsmála og umhverfisverndar í hafinu.Söfnun og framsetning tölulegra vísa um umhverfismál. Sta›an veitist frá 1. maí nk. Um launakjör fer samkvæmt samningi fjármálará›uneytisins vi› Félag háskólamennta›ra starfsmannaStjórnarrá›sins. Menntunar- og hæfniskröfur:Háskólapróf er skilyr›i.Gó› kunnáttu í ensku.Gó› kunnátta í einhverju Nor›urlanda-málanna. fiekking og reynsla á svi›i umhverfismálaer æskileg. Vakin er athygli á 20. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stö›u og jafnan rétt kvenna og karla. Umsóknir óskast fylltar út áwww.hagvangur.is fyrir 2. apríl nk.Starfi› er númer 6414. Öllum umsóknum ver›ur svara›flegar ákvör›un um rá›ningu hefurveri› tekin. Uppl‡singar veita Ari Eyberg ogKristín Gu›mundsdóttir.Netföng: ari@hagvangur.is ogkristín@hagvangur.is Stútfullt blað af atvinnuauglýsingum 20-50% AFSLÁTTUR AF NÝJUM VÖRUM Opið 13-17 í dag LOKADAGUR! OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 13 –18 Tekur lagið með Ragga Bjarna Veturinn í vetur hefur verið sá snjóþyngsti á Kára- hnjúkum frá því framkvæmd- ir þar hófust haustið 2003. Þetta er mat Odds Friðrikssonar sem hefur verið aðaltrúnaðarmaður á Kárahnjúkum frá upphafi fram- kvæmda. „Hér hafa verið vond veður síð- ustu vikur og það hefur verið langt á milli fallegra daga. Það skefur að húsunum og við höfum þurft að grafa frá þeim. Menn eru orðnir þreyttir á þessu,“ segir hann. Trausti Jónsson veðurfræðing- ur segir að þetta geti vel verið rétt. Veðurstofan hafi engar snjó- mælingar á Kárahnjúkum en ekki sé ólíklegt að veturinn hafi verið mjög snjóþungur því að Kára- hnjúkar séu svo hátt yfir sjávar- máli og veturinn hafi verið einna kaldastur frá því framkvæmdir hófust. Því sé trúlega meiri snjór. „Að vísu kom slæmt hríðarveð- ur fyrir að minnsta kosti þremur árum en það hefur sjálfsagt enst stutt. Veturinn hefur verið kald- ari nú en hann hefur verið í fimm ár en síðustu vetur hafa verið óvenjulegir að því leyti að þeir hafa verið hlýrri en yfirleitt,“ segir Trausti. Trausti segir að almennt hafi verið lítill snjór á landinu í vetur nema í hálfan mánuð í janúar. Hvít jörð sé víða en snjódýpt innan við tíu sentimetrar nema á Vestfjörð- um og á heiðum á Norðurlandi. Hann segir að kuldakast sé ríkj- andi nú um helgina en veður muni fara hlýnandi í vikunni. Snjóþungt á Kárahnjúkum Alvarlegustu kynferð- isbrot gegn börnum fyrnast ekki, samkvæmt ákvörðun Alþingis í gær. Til alvarlegustu brota telst kynferðisleg misnotkun í formi samræðis eða annarra kynferðis- maka við börn undir átján ára. Þá var skilgreining hugtaksins nauðg- un rýmkuð. „Þetta er dagur réttlætis,“ sagði Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor- maður Samfylkingarinnar, sem fyrir tæpum fjórum árum lagði fram frumvarp um afnám fyrn- ingarfrests kynferðisbrota gegn börnum. „Ég held að þetta séu ein þýðingarmestu lög sem þetta þing hefur samþykkt því hér er um að ræða mikilvægustu hagsmuni hvers einstaklings; eigin heilsu og réttinn til að ná fram sínum rétti.“ Kvaðst Ágúst Ólafur ennfremur stoltur af þjóðþinginu og þeirri þverpólitísku samstöðu sem náð- ist um málið. Þegar þingfundur hófst klukkan hálf tíu í gærmorgun var enn óvíst hvenær unnt yrði að ljúka þing- störfum því ekki ríkti nauðsynleg samstaða um meðferð nokkurra mála. Á endanum skýrðust línur og þingheimur hófst handa við af- greiðslu mála. Hún gekk þó treg- lega þar sem mörgum lá ýmislegt á hjarta og vildu koma skoðunum sínum á framfæri í umræðum og atkvæðagreiðslum. Í dögun stóðu vonir til að hægt yrði að fresta þingi í björtu en þingfundur stóð enn þegar Frétta- blaðið fór í prentun. Gældu menn þá við að geta lokið störfum um miðnætti. Meðal mála sem voru samþykkt í gær eða til stóð að samþykkja eru lög um losun gróðurhúsaloftteg- unda, viðurlög við brotum á fjár- málamarkaði, breytingar á þing- sköpum, sameiningu Kennarahá- skóla Íslands og Háskóla Íslands og Vatnajökulsþjóðgarð. Sama gild- ir um þingsályktanir um vegaáætl- un til ársins 2010 og að þjóðfáninn skuli vera í þingsalnum. Meðal mála sem fram komu í þinginu í vetur en hlutu ekki sam- þykki voru fjölmiðlalög, lög um stofnfrumurannsóknir, lög um vá- tryggingasamninga og samgöngu- áætlun til ársins 2018. Þýðingarmestu lög sem þetta þing hefur samþykkt Alþingi samþykkti í gær að afnema fyrningarfrest alvarlegustu kynferðisbrota gegn börnum. Varaformaður Samfylkingarinnar segir gærdaginn dag réttlætis. Fjöldi frumvarpa varð að lögum á lokadegi Alþingis. Mæður í megrun á fæðingardeild

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.