Fréttablaðið - 18.03.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 18.03.2007, Blaðsíða 16
Á standið er alvar- legt, það fer ekki fram hjá neinum að átröskun er gríðar- lega stórt vanda- mál hér á landi, og ekki er hægt að þegja lengur yfir því hversu illa er staðið að málum átröskunarsjúklinga innan heil- brigðiskerfisins,“ segir Alma Geirdal, framkvæmdastjóri og ráðgjafi Forma, samtaka átrösk- unarsjúklinga. Hefur þú séð einhverja sérstaka þróun á síðastliðnum árum? „Aukningin held ég að sé mest meðal nýbakaðra mæðra. Það eru gerðar miklar kröfur um að konur geti næstum farið í gömlu galla- buxurnar á fæðingardeildinni. Það eru bæði ósanngjarnar og hættulegar kröfur. Ég veiktist sjálf af þessum sjúk- dóm eftir að hafa gengið með mitt annað barn árið 2003. Á þeim tíma voru nýbakaðar mæður í minni- hluta þeirra sem leituðu sér hjálp- ar við sjúkdómnum. Þetta hefur breyst mjög mikið. Nú er svo komið að það er þörf á því að fara af stað með sér hópa fyrir nýbak- aðar mæður sem þjást af átrösk- un. Það fer ekki framhjá neinum að markaðsöflin beina spjótum sínum mjög að konum sem hafa nýlega alið barn. Þær eiga að fara strax í ræktina og fara á „snið- uga“ megrunarkúra og svo fram- vegis. Sjálf fæ ég sting í hjartað þegar ég sé auglýsingar sem beina spjótum sínum að konum sem eru nýbúnar að eignast barn. Ef ein- hver á að fá að standa utan við áreiti fjölmiðla og markaðsafla þá eru það þær. Kalóríutalningar og hlaupabretti eiga að standa utan við tengsl móður og barns.“ Hvað með karlmenn hafa þeir sloppið við þennan sjúkdóm? „Nei, alls ekki. Sjúkdómurinn brýst yfirleitt ekki fram á annan hátt hjá þeim en konum. Þeir eru í uppköstum og föstum auk annarra skaðlegra fylgifiska átröskunar. Það sem er ólíkt við sjúkdóminn hjá körlum og konum er hversu miklu erfiðara karlmenn eiga með að viðurkenna hann. Nú eru karl- menn um 10 prósent sjúklinga. Þeir eru ekki mikið tilbúnir að vera með í hópastarfi en fer fjölg- andi. Auk þess hef ég orðið vör við að símtöl frá áhyggjufullum aðstandendum ungra pilta eru orðin algengari.“ Hvað hefur breyst á þeim tíma sem samtökin hafa verið starf- andi og hvaða breytingar finnst þér brýnast að gera í náinni fram- tíð? „Breytingarnar sem við höfum hvatt til í heilbrigðiskerfinu hafa ekki verið eins miklar og við hefð- um óskað. Það er mikið af hæfu starfsfólki en það er of fáliðað og sjúklingarnir of margir. Mér finnst í raun ekki hægt að tala um eiginlega sérhæfingu á meðan staðan er þannig. Á því ber heil- brigðiskerfið ábyrgð. Mér þykir brýnt að hætt verði að nálgast þennan erfiða geðsjúk- dóm út frá sífelldri umræðu um mat og þyngd, það er ekki aðalat- riðið í þessum veikindum. Þetta eru erfiðir sjúklingar sem eru alveg meðvitaðir um allt sem kemur að þyngd og mat. Það sem þeir þarfnast er aftur á móti stíft prógramm, ást og umhyggja. Þessum þörfum er ekki fullnægt nægilega vel eins og staðan er. Of mikið er að gera á deildum og þá er hætta á að sjúklingarnir fái á tilfinninguna að þeir séu ekki nægilega merkilegir. Þá er mjög hætt við að þeir fari í baklás. Það sem þá vantar er öryggi og ró en slíkt er ekki að finna á geðdeild- um í miklum mæli.“ Fundir fyrir fólk með átröskunar- sjúkdóma hafa oft verið gagnrýnd- ir vegna lélegs árangurs. Hvernig er ykkar fundum hagað? „Sú gagnrýni er réttmæt. Þess- ir fundir geta verið mjög hættu- legir. Ég og Edda Ýrr þekktum það báðar að hafa setið á fundum um átraskanir sem skiluðu okkur ekki öðru en nýjum aðferðum til að viðhalda sjúkdómnum. Á fund- unum voru líka allir sjúklingarn- ir í miklu volæði og engin jákvæð uppbygging var í gangi fyrir þá. Þessu vildum við breyta. Fund- irnir hjá okkur hafa aðra nálg- un. Á þeim er bannað að tala um uppköst, þyngd og lyfjainntöku. Í stað þess reynum við að byggja fólk upp með jákvæðum hætti með það að markmiði að það geti snúið aftur til leiks í samfélag- inu. Þessi veikindi ræna fólk öllu sjálfstrausti og lífsvilja, því er mjög mikilvægt að fundir sem eiga að vera meðferðarúrræði leiði ekki til enn frekari veikinda eins og oft hefur gerst þegar ekki er haldið vel utan um það sem fer fram innan þeirra.“ Á hvaða aldri eru sjúklingar sem þjást af átröskun? „Líklega eru flestir sjúkling- arnir konur á aldrinum 16 til 26 ára. Það er samt alltaf að koma betur í ljós að sjúkdómurinn leggst á fólk algerlega óháð kyni eða aldri. Yngsta stúlkan sem hefur verið lögð á spítala hér á landi er átta ára. Þess er vert að geta að hér á landi eru sjúklingar ekki lagð- ir inn vegna átraskana nema þeir séu mjög alvarlega veikir og í lífshættu. Við í Forma höfum svo haft hjá okkur sjúklinga á sjötugsaldri þannig það er alveg ljóst að þetta er ekki einhver unglingasjúkdómur eins og sumir töldu átröskun vera fyrir nokkr- um árum.“ Hvað vekur upp sjúkdóminn? „Þótt talað sé um sjúkdómur- inn geti verið arfgengur tel ég að áhrifavaldarnir séu fyrst og fremst samfélagið. Konur hafa lengi ekki fengið að vera í friði með útlit sitt heldur eiga þær að vera steyptar í sama mót. Sama krafa er nú gerð í auknum mæli til karlmanna og meira að segja er svo komið að börn geta ekki verið óhult fyrir þessum áhrifavöldum. Við getum aldrei skellt skuldinni á tónlistarmyndbönd eða leikara en við getum verið vakandi fyrir því hvað fyrir börnum okkar er haft og verið gagnrýnin á þau skilaboð sem okkur eru send. Gegndarlaus umræða um „heilsufæði“ og „heilsusamlegt líferni“ finnst mér varasöm. Nú getur engin verið maður með mönnum nema fara í „detox“ eða afeitrun sem felur í sér föstur og vert að geta þess að það getur verið mjög hættulegt. Það geta allir fastað en það geta ekki nánd- ar nærri því allir hætt að fasta.“ Ölmu er mikið niðri fyrir þegar umræðan snýst að börnum. Hún minnir á að svokölluð kjörþyngd geti verið varasöm og segir að allt of oft þurfi hún að halda fyrir- lestra yfir stúlkum á aldrinum 11 til 13 ára sem hafa miklar áhyggj- ur af þyngd sinni. „Ég ætla mér líka að leyfa mér að gagnrýna uppátæki líkams- ræktarstöðva sem hafa komið upp líkamsræktarstöð fyrir börn. Fólk verður bara að eiga það við mig en mér finnst ekki við hæfi að litlum börnum sé att út í lík- amsrækt og að þessar stöðvar eigi að sýna þá ábyrgð að vera ekki að hleypa of ungu fólki inn.“ Það hafa mjög fáar íslensk- ar rannsóknir verið gerðar um þennan sjúkdóm. Aftur á móti hef ég séð að það er talið að á meðal kvenna á aldrinum 13 til 27 ára séu helmingi fleiri dauðsföll sem rekja má til átröskunar heldur en til krabbameins. Þá eru sjálfsvíg meðal þessa hóps ótalin en þau eru algeng.“ Hvaða breytingar viltu sjá? „Ég get ekki sagt að heilbrigðis- kerfið hafi staðið sig í málefnum þeirra sem þjást af átröskunum. Spítalarnir eru ekki tilbúnir til að sinna sjúklingum með átrask- anir eins og þarf þótt starfsfólkið reyni eftir fremsta megni að gera sitt besta. Það tók fjögur ár að opna göngu- deild til að koma til móts við þá sem þurftu á úrræðum að halda vegna lystarstols og lotugræðgi. Mig langar ekki að ímynda mér, hvað þá vita, hvað kostnaður- inn við nefndarstörf þessi ár var mikill. Ef við miðum við þann tíma sem tók að opna deildina er ég ekki bjartsýn að sérhæft með- ferðarheimili fyrir átröskunar- sjúklinga verði opnað í bráð en það er full þörf á því. Átröskun er dauðans alvara.“ Nú er svo komið að það er þörf á því að fara af stað með sér hópa fyrir nýbakaðar mæður sem þjást af átröskun. Það er ekki hægt að þegja lengur Alma Geirdal og Edda Ýrr Einarsdóttir samstarfskona henn- ar stofnuðu Forma samtökin eftir að hafa glímt við átröskun. Þær vildu bæta stöðu þessara sjúklinga, gera meðferðarúrræði fyrir þá markvissari og upplýsa almenning um hve alvarlegur sjúk- dómur átröskun er. Karen D. Kjartansdóttir ræddi við Ölmu um þróun sjúkdómsins og meðferðarúrræði við honum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.