Fréttablaðið - 18.03.2007, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 18.03.2007, Blaðsíða 25
Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins og veitir alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Í anda sóknar og útrásar hefur Landsbankinn byggt upp 23 starfsstöðvar erlendis, í 14 löndum víðsvegar um heiminn. Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað, starfs- ánægju og gott starfsumhverfi, sem og markvissa starfsþróun og þekkingu starfsfólks. Landsbankinn leitast við að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Það er viðhorf stjórnenda Landsbankans að starfsólkið, metnaður þess, kraftur og hollusta, séu lykillinn að farsælum rekstri banknas. Fjölbreytt störf á upplýsingatæknisviði Á upplýsingatæknisviði Landsbankans vinnur samhentur hópur fólks sem sinnir krefjandi og áhugaverðum viðfangsefnum í lifandi starfsumhverfi. Vegna sívaxandi umsvifa óskum við eftir metnaðarfullum og árangursdrifnum einstaklingum til liðs við okkur. Rekstrarstjóri Landsbankinn rekur eitt margþættasta tölvuumhverfi landsins. Þar fara saman kröfur um áreiðanleika, afkasta- getu og framsækni til að uppfylla þær kröfur sem alþjóð- leg starfsemi bankans gerir. Innan bankans er sérlega vel mannaður hópur sem hefur byggt upp eitt fullkomnasta rekstrarumhverfi sem völ er á. Leitað er að einstaklingi sem getur haldið utan um starf deildarinnar. Áherslur í starfi eru ferlamál og þróun þeirra, innkaupamál, áætl- anagerð, eftirfylgni við staðla og fleira. Leitað er að einstaklingi sem hefur reynslu af rekstri stórra tölvukerfa. Menntun á sviði verk- eða tölvunarfræði er æskileg. Forritun Leitað er eftir forriturum sem hafa góð tök á að leysa flókin viðskiptaleg vandamál og eru tilbúnir að sérhæfa sig í forritun á samnýtanlegum þjónustum. Viðkomandi þurfa að hafa leikni í að hámarka afköst og vinna í krefj- andi umhverfi. Unnið er í forritunarmálunum c++ og c#. Vinnuumhverfi forritara er Microsoft Visual Studio en keyrsluumhverfi bankans er IBM AIX unix. Gagnagrunnsforritun Meginumhverfi bankans byggir á Oracle gagnagrunnum. Verkefni snúa m.a. að þátttöku í uppbyggingu og viðhaldi á færslugrunnum bankans, úrvinnslu gagna og fyrirspurna- gerð í samvinnu við kerfisforritara. Umsækjendur þurfa að hafa kerfis- eða tölvunarfræðimenntun og áhuga á gagna- grunnsvinnslu ásamt góðri þekkingu og reynslu af notkun á SQL. Haldgóð reynsla af vinnu við Oracle gagnagrunna er æskileg, m.a. forritun í PL/SQL. Prófari Meginverkefni eru gerð prófanatilvika og framkvæmd þeirra, sjálfvirkar prófanir, álagsprófanir og skjölun próf- ana. Viðkomandi þarf að hafa háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, kerfisfræði eða verkfræði. Krafist er sjálf- stæðra, agaðra og nákvæmra vinnubragða, auk getu til að vinna í hópi og færni í að tileinka sér nýjungar. Kostur er að umsækjendur hafi reynslu af framkvæmd og skjölun próf- ana, álagsprófunum, öryggisprófunum og gerð prófanatil- vika. Þekking á bankaumhverfi er einnig kostur. Gagnagrunnsstjóri (DBA) Landsbankinn rekur sum af stærstu gagnagrunnskerfum landsins, mest á Oracle og MS SQL. Samhliða örum vexti bankans að undanförnu hafa verkefni á þessu sviði aukist verulega. Því leitum við að starfsmanni í gagnagrunnshóp bankans. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af rekstri Oracle og MS SQL og geta unnið sjálfstætt í krefjandi verkefnum. Tækniritari Helstu verkefni tækniritara eru gerð handbóka, ritun hjálpartexta, kröfugreining og gerð kröfuskjala. Krafist er háskólamenntunar í tölvunarfræði, íslensku, viðskipta- fræði eða verkfræði. Viðkomandi þarf að búa yfir mjög góðri færni í rituðu máli á íslensku og ensku, sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum auk hæfni til að vinna í hópi. Nánari upplýsingar veita: Guðmundur Guðmundsson framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs í síma 820 6490 og Ingibjörg Jónsdóttir á starfsmannasviði í síma 410 7902. Vinsamlega sendið umsókn ásamt ferilskrá á ingibjorg.jonsdottir@landsbanki.is fyrir 28. mars nk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.