Fréttablaðið - 18.03.2007, Blaðsíða 80
FRUMSÝND
16. MARS
9. HVE
R
VINNU
R!
SENDU SMS J
A JA SMF
Á NÚMERIÐ 1
900 OG ÞÚ
GÆTIR UNNIÐ
MIÐA FYRIR T
VO!
VINNINGAR ER
U BÍÓMIÐAR, DV
D MYNDIR OG M
ARGT FLEIRA
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
Iceland Express deild karla
DHL deild kvenna
Lengjubikar karla
KR-ingar eru ekki á
leiðinni í sumarfrí, það sýndu þeir
með sannfærandi 87-78 sigri á
ÍR-ingum í Seljaskólanum í gær.
KR-liðið kom einbeitt og ákveðið
til leiks og fyrsti leikhlutinn var
Breiðhyltingum afar erfiður. KR
vann hann 22-9 og ÍR-ingar voru
með 8 tapaða bolta og aðeins tvær
körfur fyrstu 10 mínútur leiksins.
KR-ingar náðu mest 23 stiga for-
skoti í öðrum leikhluta og voru í
bílstjórasætinu út leikinn þótt ÍR-
ingar hafi fundið baráttuandann í
leikhléi.
Það er erfitt að taka einhvern út
úr KR-liðinu í gær, allir leikmenn
liðsins lögðu sitt af mörkum og sjö
leikmenn skoruðu á bilinu 8 til 16
stig. Pálmi Freyr Sigurgeirsson
var stigahæstur og hélt auk þess
Eiríki Önundarsyni í 4 stigum,
Tyson Patterson stjórnaði spili
liðsins af skynsemi og öryggi, Jer-
emiah Sola skilaði sínu og ungu
strákarnir, Brynjar Þór Björns-
son og Darri Hilmarsson, áttu frá-
bæra innkomu af bekknum, skor-
uðu saman 23 stig og nýttu 9 af 12
skotum sínum.
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari KR var líka sáttur í leikslok.
„Það reyndi virkilega á karakt-
erinn í liðinu og að liðið þurfti að
koma sterkara andlega til leiks.
Við vorum í þannig stöðu að ann-
aðhvort komum við svona og
tókum þetta eða við vorum hætt-
ir í vetur. Ég var alltaf bjartsýnn
á að við kæmum til baka,“ sagði
Benedikt.
„Við komum öllum inn í leikinn,
vorum að ógna allstaðar og fund-
um þetta jafnvægi í sókninni sem
við höfum verið að leita að upp
á síðkastið. Það vita allir að við
erum að keppa við frábært lið sem
getur unnið öll liðin í deildinni. Við
þurfum að eiga okkar bestu leiki
til þess að vinna ÍR. Staða þeirra í
deildinni segir ekkert til um styrk
liðsins og þetta er búið að vera
eitt besta liðið síðustu tvo mán-
uði. Lykillinn hjá okkur er að eiga
toppleiki annars förum við ekk-
ert framhjá svona góðu liði,“ sagði
Benedikt.
ÍR-ingar virtust yfirspenntir
og hræddir í upphafi leiks og létu
ákveðna KR-inga valta yfir sig í
upphafi leiks. Þeir jöfnuðu sig en
þá var það orðið of seint.
„Við gáfum frá okkur leikinn í 1.
leikhluta. Þeir komu ákveðnir og
spiluðu góða vörn á okkur og við
bökkuðum. Þeir unnu þennan leik
á góðri vörn. Við vorum að berjast
í seinni hálfleik en það er erfitt að
koma til baka þegar þú ert kominn
24 stig undir,“ sagði Keith Vassell
sem var í algjörum sérflokki í liði
ÍR með 22 stig og 9 fráköst.
„Við erum enn fullir sjálfs-
trausts og það hefur ekkert
breyst. Þetta kemur til með að
ráðast af því hvort liðið er tilbú-
ið að berjast meira og einbeita sér
að því að vinna leikinn. Bæði lið
eru nú með bakið upp við vegginn;
þeir þurfa að vinna af því að þeir
eru að spila gegn liðinu í 7. sæti
og við þurfum að vinna af því að
við ætlum okkur að verða Íslands-
meistarar,” sagði Keith eftir leik-
inn í gær.
KR-ingar tryggðu sér oddaleik með sannfærandi 78-87 útisigri á ÍR-ingum í
Seljaskóla í gær. Sjö leikmenn KR skoruðu átta stig eða fleiri í leiknum.
Birgir Leifur Hafþórsson
atvinnukylfingur úr GKG lék á
72 höggum á þriðja keppnisdegi
TCL Classic golfmótisins á Hain-
an eyju í Kína og er í 47.-55. sæti
fyrir lokahringinn á sex höggum
undir pari.
Púttin voru að stríða Birgi
Leifi en hann fékk tíu pör, fjóra
fugla og fjóra skolla á hringnum
en hann missti nokkur stutt pútt
fyrir pari og hefði því hæglega
getað gert enn betur. -
Birgir á parinu
á þriðja degi
Ágætur árangur náðist á Ís-
landsmeistaramótinu í 50 metra
laug í gær. Kvennasveit Ægis
setti Íslandsmet í 4x200m skrið-
sundi á tímanum 8:49,13 mín.
Olga Sigurðardóttir, Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir, Jóhanna Gerða
Gústafsdóttir og Auður Sif Jóns-
dóttir syntu fyrir sveitina.
Erla Dögg Haraldsdóttir ÍBR
var aðeins 32/100 sek. frá 15 ára
gömlu Íslandsmeti Ragnheiðar
Runólfsdóttur í 50 metra bringu-
sundi kvenna. Í sömu grein karla
var Jón Oddur Sigurðarson KR
aðeins 10/100 sek. frá Íslandsmeti
Jakobs Jóhanns Sveinssonar.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir
virðist vera að nálgast sitt gamla
form en hún var aðeins hálfri sek-
úndu frá eigin Íslandsmeti í 50m
flugsundi.
Kvennasveit
Ægis með met
Kobe Bryant fór á
kostum þegar Los Angeles Lakers
vann loks eftir sjö ósigra í röð í
fyrrinótt þegar liðið lagið Port-
land Trail Blazers, 116-111, í
framlengdum leik.
Svo virðist sem Bryant hafi
fengið sig fullsaddan á slöku
gengi liðsins og ákveðið að grípa
til sinna ráða. Bryant skoraði 65
stig í leiknum en hann hefur einu
sinni skorað meira, 81 stig gegn
Toronto á síðasta tímabili. -
Kobe Bryant
með 65 stig
Snæfellingar slógu
Keflavík út úr átta liða úrslitum
í úrslitakeppni Iceland Express
deildar karla með 89-103 sigri í
bráðskemmtilegum leik í Slátur-
húsinu í Keflavík í gær. Snæfell
vann því einvígið 2-0 og er fyrsta
liðið sem kemst í undanúrslitin í
ár.
Það varð strax ljóst í upphafi
leiks að Snæfell ætlaði sér að selja
sig dýrt og helst klára einvígið í
Sláturhúsinu. Mikill hraði var í
upphafi og skiptust liðin á að setja
niður hverja þriggja stiga körfuna
af fætur annarri. Keflvíkingar
höfðu þó undirtökin í fyrsta leik-
hluta og leiddu 27-24, vel studd-
ir af Joe Drummer og trommu-
sveitinni. Áfram hélst sami hraði
í öðrum leikhluta og ætluðu Kefl-
víkingar svo sannarlega að sanna
sig fyrir sjálfum sér og öðrum að
liðið væri ekki sprungið á limm-
inu. Snæfellingar jöfnuðu leik-
inn þegar leikhlutinn var hálfn-
aður í 37-37 voru til alls líklegir.
En heimamenn voru vel einbeittir
og sýndu mikinn karakter á þess-
um kafla enda ekki ásættanlegt að
tapa á heimavelli svona snemma
í úrslitakeppninni. Gestirnir áttu
svo góðan sprett undir lok ann-
ars leikhluta og staðan því 46-50 í
hálfleik.
Bæði lið voru vel meðvituð um
mikilvægi leiksins í upphafi þriðja
leikhluta og var baráttan allsráð-
andi hjá báðum liðum. Síðustu
mínútur þriðja leikhluta voru eign
Snæfellinga frá A-Ö. Liðið náði 14
stiga forskoti og leiddi 65-79 þegar
síðasti leikhlutinn hófst. Það var
ekki mínúta liðin af fjórða leikhluta
þegar Keflavík var búið að minnka
forskot gestanna í 9 stig og tók því
Snæfell leikhlé hið snarasta. Þegar
mínútur voru eftir af leiknum var
staðan 77-83 og spennan orðin all-
veruleg. Snæfell herti tökin á þess-
um kafla og náði 13 stiga forskoti,
80-93, þegar rúmar 3 mínútur voru
eftir. Leikmenn Snæfells léku svo
á alls oddi undir lokinn og tryggðu
sér sigur gegn Keflavík 89-103.
Sigurður Þorvaldsson var sátt-
ur í leikslok. „Ég vissi vel að þetta
yrði erfitt og sannkallað stríð. En
ég hafði alveg eins á tilfinning-
unni að við myndum vinna 2-0 því
Keflavík hafa verið í vandræðum
með kana og meiðsli. Nú er bara að
bíða og sjá hverja við fáum og við
hlökkum bara til.“
Snæfell fyrsta liðið inn í undanúrslitin