Fréttablaðið - 18.03.2007, Blaðsíða 10
„Maður þarf að vita allt fyrst-
ur, geta allt betur og vinna frá 7
á morgnana til 12 á miðnætti og
vanda sig allan tímann.“
Aðskilnaðarstefnan afnumin
„Þetta er náttúrulega bara
ein af þessum stóru hljóm-
sveitum í tónlistarheimin-
um og það þarf ekki að rýna
mikið í texta hennar og lög
til að sjá hversu sterka guð-
strú hljómsveitarmeðlim-
ir hafa,“ segir Guðni Rúnar
Agnarsson sem hyggst fjalla
um guðfræði í tónlist U2 á
Rás 2 klukkan þrjú í dag.
„Auðvitað er bara hægt
að hlusta á þetta sem
venjulega rokktónlist
og hafa gaman af en
ég ætla að reyna að varpa
ljósi á þessa dýpt sem býr
í tónist þeirra og hvernig
hún hefur snert mig. Reyna
að opna einhverjar gáttir
til hálfs þannig að þeir sem
hafa áhuga geti sjálfir reynt
að skilja tónlist þeirra,“ út-
skýrir Guðni. Hann segist
alltaf hafa hlustað mikið á
þá sem rokkhljóm-
sveit og fylgst
grannt með gangi
mála. „En smám
saman uppgötv-
aði ég þessa
dýpt og þá opnað-
ist tónlist þeirra
fyrir mér. Þarna
eru fleiri fletir og
þeir vilja snerta
einhverja
dýpri strengi
með tónlist
sinni,“ segir
Guðni.
U2 er meðal áhrifamestu
og vinsælustu hljómsveita
í heimi. Sveitin var stofnuð
í Dublin undir lok áttunda
áratugarins og sló fyrir al-
vöru í gegn á Live Aid tón-
leikunum á Wembley 1985
þar sem söngvari sveitar-
innar, Bono, fór hamförum
á sviðinu. Á fyrstu árum
sveitarinn leit þó út fyrir að
samstarf fjórmenningana
myndi ekki lifa eins lengi
og raun ber vitni. The Edge,
Bono og Larry Mullen jr.
voru allir virkir þátttak-
endur í trúarsöfnuðinum
Shalom en stór hluti safnað-
armeðlima voru listamenn
sem töldu sig hafa fund-
ið réttan farveg fyrir list
sína í guði og trúnni. „Adam
Clayton stóð hins vegar
fyrir utan þetta og sætti
sig ekki við að þetta hefði
svona mikil áhrif á störf
sveitarinnar,“ segir Guðni
en þeim tókst að leysa úr
þessum ágreiningi sínum
og sögðu sig seinna meir
úr þessum söfnuði. „Reynd-
ar hefur Bono alltaf sagt
að Clayton sé mest andlega
sinnaður af þeim öllum,“
bætir hann við.
Guðni segir að ekki sé
meira eða minna af kristn-
um boðskap í textum þeirra
í dag. „Hann er kannski
ekki jafn berorður og hann
var á til dæmis October sem
kom út í byrjun níunda ára-
tugarins en þar sungu þeir
Gloria og Rejoice. Á síðustu
plötunni ákalla þeir síðan
Jahve. Þeir hafa einfaldlega
fundið sína trú og fylgja
henni,“ útskýrir Guðni sem
þó hefur ekki hlotnast sá
heiður að komast á tónleika
með sveitinni.
Togarinn Vestmannaey VE
444 er nýkominn til Vest-
mannaeyja eftir að hafa
verið í smíðum í Póllandi.
Útgerðarfyrirtækið Berg-
ur/Huginn lét smíða skip-
ið, sem er 28,95 metrar að
lengd og 10,4 metrar að
breidd. „Þetta hefur vel tek-
ist til og það var myndar-
lega að þessu staðið hjá Pól-
verjunum,“ segir Magnús
Kristinsson, forstjóri fyr-
irtækisins, um nýja skipið.
„Það er mikil ánægja í bæj-
arfélaginu að fá nýtt skip
og nú vantar bara fólk til
Vestmannaeyja til að vinna,
vinna og vinna.“
Heimkoma Vestmanna-
eyjar var glæsileg og héldu
skip Bergs/Hugins, þau
Vestmannaey VE 54 og
Smáey VE 144, út á móti
hinni nýju Vestmannaey
og sigldu skipin til hafnar í
halarófu. Séra Guðmundur
Örn Jónsson, prestur í Vest-
mannaeyjum, blessaði skip-
ið og áhöfn þess og fór með
Faðir vor ásamt viðstödd-
um. Eftir það var boðið upp
á léttar veitingar um borð.
Magnús Kristinsson
hefur þegar skrifað undir
samning um að láta smíða
annað skip fyrir sig, Berg-
ey VE 544, sem er væntan-
leg til Eyja í haust.
Mikil ánægja með skipið
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Einar Guðmundsson
verkfræðingur, Hrauntungu 37, Kópavogi,
lést á heimili sínu aðfaranótt 16. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sólveig Kristinsdóttir
Guðmundur Konráð Einarsson
Helga Einarsdóttir
Kristín Andrea Einarsdóttir Jóhann Ingibergsson
Berghildur Ýr Einarsdóttir Haukur Einarsson
Ásdís Erla, Sigrún Björk, Einar Aron og Hilmir Nói.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir
okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og
tengdasonur,
Jón Magnús Steingrímsson
pípulagningameistari, Skagaseli 2,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 13. mars.
Guðrún Hugborg Marinósdóttir,
Margrét Hjartardóttir,
börn, afabörn, tengdaforeldrar
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Sigríður
Baldvinsdóttir,
áður Klettaborg 3, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð aðfaranótt laugardagsins
10. mars síðastliðinn. Innilegar þakkir til starfsfólks
Birki- og Beykihlíðar fyrir frábæra umönnun.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
20. mars kl. 13.30.
Birgir Tryggvason
Anna Margrét Tryggvadóttir Hörður Guðmundsson
Gyðný Tryggvadóttir Ólafur G. Viktorsson
Ólöf Guðrún Ólafsdóttir Thibaut P.M. Guilbert
Anna Margrét Ólafsdóttir
Júlíus Aron Thibautson Guilbert
Móðir okkar og amma,
Sigurrós Lárusdóttir
húsmóðir, Vesturgötu 50A,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi 7. mars.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn
19. mars klukkan 13.00.
Þorsteinn Viðar Antonsson
Sigríður Eygló Antonsdóttir
Kolbrún Lilja Antonsdóttir
Grétar Örn Antonsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Katrín Edda Þorsteinsdóttir
Helga Björk Stefánsdóttir
Valdís Ösp Ingvadóttir
Lúcinda Árnadóttir
Eyrún Rós Árnadóttir
Vera Grétarsdóttir
Anton Ívarsson
Benedikt Ívarsson
og Anna Birna Ívarsdóttir