Fréttablaðið - 18.03.2007, Side 6
Do you want to study in Denmark?
Do you want to study in Denmark in an international
environment?
Are you looking for a programme which gives you good
job opportunities?
Are you interested in Computer Science or IT?
Are you looking for a short education at university
level?
Do as Hrund Brynjólfsdóttir and other young students.
Every year The Academy of Southern Denmark in Søn-
derborg welcomes students from Iceland. Come and join
us! Sønderborg has an active ”Íslendingafélag”.
Visit our website www.sdes.dk to read more about your
future in Denmark.
Do you want to study
Computer Science or IT?
Grundtvigs Allé 88
DK-6400 Sønderborg
Tlf. +45 7412 4141
www.sdes.dk
Innbrotsþjófar
voru handteknir á heimili sínu á
fimmtudag, en í íbúð þeirra fund-
ust verkfæri sem líklegt þykir að
hafi verið tekin ófrjálsri hendi úr
félagsheimili fyrr um daginn.
Sama dag var brotist inn í kjall-
araíbúð í austurborginni og tölvu-
búnaði stolið. Auk þess var brot-
ist inn í bíl og munum stolið.
Maður á þrítugsaldri var hand-
tekinn í Smáralind fyrir að stela
sælgæti úr verslun og afskipti
voru höfð af tveimur fimmtán ára
piltum í annarri verslunarmið-
stöð, en þeir höfðu gerst sekir um
að fjarlægja páskaegg úr búð án
þess að borga fyrir þau.
Hnupl og inn-
brot í borginni
Vatn flæddi inn í húsið á
Laugavegi 105 í Reykjavík í gær-
morgun, þar sem Náttúrufræði-
stofnun og Möguleikhúsið eru til
húsa. Vatnslögn í nágrenni við
húsið sprakk og stíflaði niður-
föll. Slökkvilið vann við að dæla
vatninu út fram eftir gærdegin-
um en tjón er ekki talið mikið.
Vatnslögnin sem gaf sig var
á mótum Laugavegs og Snorra-
brautar, en hún er rétt tæp-
lega hundrað ára gömul. Vatnið
flæddi inn í búslóðageymslu Fé-
lagsbústaða og í Möguleikhúsið.
Einnig fór nokkuð af vatni inn í
kjallarageymslu næsta íbúðar-
húss við.
Árni Ómar Árnason, aðstoðar-
varðstjóri slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins, segir vatnið hafa
verið tuttugu til þrjátíu senti-
metra hátt í búslóðageymslunni
þegar slökkvilið kom á vettvang.
Miklu hafi munað að búslóðirnar
eru geymdar á vörubrettum.
„Þetta er óverulegt tjón, ef
eitthvað,“ segir Sigurður Kr.
Friðriksson, framkvæmdastjóri
Félagsbústaða. „Brettin sem bú-
slóðirnar eru geymdar á eru tíu
til fimmtán sentimetra há, og
vatnið fór ekki mikið hærra en
það.“ Hann segir vatnið hafa
flætt af götunni og inn um bíl-
skúrshurð.
Hundrað ára vatnslögn gaf sig
Margar furðuleg-
ar hugmyndir hafa verið lagð-
ar fram til lausnar á gróðurhúsa-
vandanum. Sumar þeirra eru
teknar alvarlega, þótt allar séu
þær afar umdeildar, og nú hafa
vísindamenn hjá geimferðastofn-
uninni NASA gert skýrslu um þær
helstu.
Ein er sú að búa til gervield-
fjall sem spúir brennisteini hátt í
loft upp. Þegar eldfjallið Pinatubo
gaus fyrir 16 árum hafði það
kælandi áhrif á jörðina í heilt ár
vegna þess að brennisteinsagnir í
efri lögum andrúmsloftsins end-
urvörpuðu sólarljósi aftur út í
geiminn. Nota má þotur, fallbyss-
ur eða blöðrur til að koma brenni-
steininum upp í himingeiminn.
Önnur hugmynd er sú að búa
til „sólskýli“ gert úr trilljónum
spegla sem eiga að draga örlítið
úr hitanum á jörðinni. Speglarn-
ir væru í raun litlir gervihnett-
ir á stærð við frisbee-diska, ör-
þunnir með þremur „eyrum“ sem
væru stýribúnaður. Skjóta mætti
um 800 þúsund slíkum speglum
út í geiminn í einu, en alls þyrfti
16 trilljónir, það er að segja 16
milljón milljónir, slíkra diska til
að leysa gróðurhúsavandann - ef
marka má hina hugmyndaríku
vísindamenn.
Þá er enn ein hugmyndin að
búa til forljótan skóg úr gervi-
trjám sem sjúga til sín koltví-
sýring úr loftinu. „Trén“ myndu
reyndar ekkert líkjast venjuleg-
um trjám. Þetta væru 60 metra
háar turnspírur með mismund-
andi stórum loftsíum efst. Lofts-
íurnar myndu draga til sín koltví-
oxíð og þjappa því saman í vökva
eða gas sem hægt væri að flytja
eitthvert annað.
Loks datt einhverjum í hug að
dæla járnryki í hafið, og reynd-
ar er þegar byrjað að gera það í
Kyrrahafinu. Fyrirtækið Planktos
frá Kaliforníu sendi nú í þessum
mánuði skip sitt, Weatherbird II,
af stað í leiðangur til að varpa
50 tonnum af járnryki út í sjó-
inn. Hugmyndin er sú að járnið
yrði sannkölluð gróðrarstía fyrir
svifjurtir sem drekka í sig koltví-
sýring úr loftinu.
Auðvitað er þetta hrein örvænt-
ing,“ sagði Stephen Schneider,
prófessor við Stanford-háskóla í
Bandaríkjunum. „Þetta er hnatt-
ræn meþadonmeðferð gegn hnatt-
rænni heróínfíkn okkar. Þetta
sprettur af svartsýni sérhvers
raunsæismanns á að þessari reiki-
stjörnu sé ekki treystandi til að
gera það sem rétt væri.“
Vísindamenn hafa á seinni árum
verið tregir til að reyna lausn-
ir af þessu tagi. Margir óttast al-
varlegar aukaverkanir. Aðrir
hafa áhyggjur af því að lausnir af
þessu tagi, jafnvel þótt þær skili
árangri, dragi úr líkunum á því að
eina raunverulega lausnin verði
nokkru sinni framkvæmd, en hún
er sú að draga nægilega mikið úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda.
Gerviskógur, járn í
hafið og speglaskýli
Enginn hörgull er á vísindamönnum sem luma á lausnum á gróðurhúsavandan-
um. Sumir vilja búa til stóran gervitrjáaskóg sem sýgur í sig koltvísýring úr loft-
inu. Aðrir vilja búa til skýli úr trilljónum spegla sem endurvarpa sólarljósinu.
Konur eru í fyrsta sinn í meirihluta for-
manna norrænu jafnaðarflokkanna. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, var
heiðursgestur á landsfundi sænska jafnaðarflokks-
ins sem hófst í gær, þar sem Mona Sahlin var kjör-
in formaður.
Sahlin er fyrsta konan sem leiðir flokkinn í 118
ára sögu hans. Formaður danska jafnaðarmanna-
flokksins, Helle Thorning Schmidt, var annar heið-
ursgestur landsfundarins.
Ingibjörg Sólrún ávarpaði fundinn og sagði meðal
annars að þetta væri stór dagur fyrir jafnréttisbar-
áttuna og stór dagur fyrir lýðræðið. Samfélag sem
byggði á reynslu bæði kvenna og karla væri sterk-
ara og réttsýnna en samfélag sem nýtti ekki mann-
auðinn sem býr í báðum kynjum.
Hún gerði málefni barna einnig að umtalsefni og
sagði það samfélag sem ekki tæki mið af sjónarmið-
um og þörfum barna hálfkarað og ófullkomið. Mik-
ilvægt sé að hlusta á raddir barnanna og hafa þarfir
þeirra að leiðarljósi.
Veturinn sem er
að líða hefur verið sá hlýjasti
sem sögur fara af frá því mæling-
ar hófust. Þetta segja fræðimenn
hjá bandarísku haf- og andrúms-
loftsstofnuninni NOAA, og styðj-
ast þar við upplýsingar um veður-
far víðs vegar á jörðinni.
Frá desemberbyrjun til febrúar-
loka var meðalhiti lofts og sjávar
á norðurhvelinu 1,3 gráðum hærri
en meðaltal þessa tímabils frá
árinu 1880.
Undanfarin hundrað ár hefur
hitinn hækkað um 0,11 gráður á
hverjum áratug, en síðan 1976
hefur hitastigshækkunin verið
þrisvar sinnum meiri.
Veturinn var sá
allra hlýjasti
Zimsen-húsinu, sem
áður var við Hafnarstræti, verð-
ur komið fyrir á Grófartorgi ef
áætlun stjórnar skipulagssjóðs
Reykjavíkur gengur eftir.
Sjóðurinn hefur óskað eftir
því við skipulags- og byggingar-
svið borgarinnar að unnið verði
að breytingum á deiliskipulagi
með það að markmiði að Zimsen-
hús verði flutt á lóð við torgið.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu höfðu margar
staðsetningar verið til umræðu
fyrir Zimsen-húsið sem í maí
í fyrra var fjarlægt af sínum
gamla grunni gegnt Lækjartorgi
vegna annarrar uppbyggingar.
Flytja Zimsen á
Grófartorg
Er aðbúnaður blindra barna á
Íslandi viðunandi?
Eiga framhaldsskólanemar að
fá ókeypis skólabækur?