Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 9

Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 9
Hægt er að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli á capacent.is (áður IMG-Mannafl). Nánari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is) og Helgu Snædal (helga.snaedal@capacent.is) hjá Capacent í síma 540 1000. Léttmálmsbandið æfir nú af krafti fyrir árshátíð Fjarðaáls en leitar jafnframt að traustum trommuleikara í öruggt framtíðarstarf. „Við þurfum ekki 100 trommuleikara í fyrirtækið en það væri fínt að fá að minnsta kosti einn. Það væri heldur ekki verra að viðkomandi hefði próf í rafvirkjun eða vélvirkjun.“ Sigurður Ólafsson, bassaleikari og fræðslustjóri Fjarðaáls. „Í bandinu gilda sömu lögmál og í álframleiðslunni. Við höfum mismunandi hlutverk en vinnum saman í sjálfstýrðu teymi. Verkferlin þurfa að vera á hreinu.“ Guðmundur Höskuldsson, gítarleikari og leiðtogi í málmvinnslu. „Þetta er ekki spurning um heimsyfirráð eða dauða hjá okkur, heldur að njóta lífsins í góðum félagsskap.“ Hanna V. Jóhannesdóttir, söngkona og hjúkrunarkona í mannauðsteymi Fjarðaáls. Kynnist Fjarðaáli 24. mars Á kynningarfundi Austurlands tækifæranna á Hotel Nordica 24. mars verður Alcoa Fjarðaál með kynningarbás fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa hjá fyrirtækinu. www.alcoa.is Framleiðslustarfsmenn Okkur vantar fleiri eldhressa starfsmenn í álframleiðslu og málmvinnslu. Til framleiðslustarfsmanna eru ekki gerðar ákveðnar kröfur um menntun eða kunnáttu. Allir fá viðamikla þjálfun og fræðslu í fyrirtækinu. Verkefni hvers starfsmanns verða fjölbreytt og mikið er lagt upp úr starfsþróun og símenntun. Rafiðnaðarmenn og véliðnaðarmenn Við leitum að faglærðum rafiðnaðarmönnum og véliðnaðar- mönnum til að sinna viðhaldi tækja og búnaðar í hátæknivæddu álveri Fjarðaáls. Hjá fyrirtækinu verða um 120 tæknimenntaðir starfsmenn. Faglegur metnaður og stöðug þróun verða leiðarljós okkar inn í framtíðina. Öll störf henta bæði konum og körlum. Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl. Viðkomandi munu hefja störf á næstu sex mánuðum. Síðustu 100 störfin í boði ÍS L E N S K A /S IA .I S /A L C 3 67 61 0 3/ 07 Okkur vantar trommuleikara

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.