Vísir - 02.02.1969, Blaðsíða 2
>
V í S I R . Mánudagur 2. febrúar 1970.
íslenzku landsliðsmennirnir sáu Peter Oogood leika Sunderland grátt á laugardaginn. Hann skoraði þrennu í leiknum — en gerði þó betur
gegn Chrystal Palace á dögunum, skoraði fjögur mörk. Hér sést hann á miöri myndinni í leiknum gegn Palace. Til að spara ykkur talningu
sjást sjö „varnarlausir“ leikmenn Palace á myndinni.
Hallur S'imonarson skrifar um ensku knattspyrnuna:
Forsætísráíherrann kampakátur
vegna sigra Huddersfíekl Town
‘ — Huddersfield hefur fjögurra stiga forustu
| í 2. deild
5 ■ Þrátt fyrir byltuna í Washington á dögunum er Harold Wil-
\ son, forsætisráðherra Breta, kampakátur nú. Það er ekki að-
eins batnandi efnahagur Breta, sem því veldur, heldur einnig mik-
ið gengi Huddersfieid Town á knattspyrnusviðinu, og eftir þýð-
ingarmikla sigra undanfamar vikur hefur Huddersfield tryggt sér
góða forustu í 2. deild og stendur nú á þröskuldi fyrstu deildar.
Og Yorkshriebúinn í Downing Street setur sig aldrei úr færi
' að sjá knattspyrnulið fæðingarborgar sinnar I leik — og minnist
'þá ávallt æskudaga sinna í Húddersfield, þegar félag þessarar
130 þúsund manna borgar bar ægishjálm yfir önnur á Englandi
og sigraði í 1. deild þrjú ár í röð — frá 1924 til 1926 — afrek,
| sem aðeins eitt félag hefur leikið eftir, Arsenai 1932 tii 1934.
Og þá tengdist Wilson knattspyrnunni þeim böndum, sem aldrei
hafa slitnað síðan. Að hans áliti á Huddersfield hvergi heima nema
í fyrstu deild, en 1956 féil það niður í 2. deild ásamt öðm York-
shireliði, Sheffield United, en þau skipa nú tvö efstu sætin I 2.
deild. Ungur maður, Ian Greaves, áður leikmaður hjá Manch. Utd.,
tók við framkvæmdastjóm hjá Huddersfield fyrir tveimur árum
og undir stjóm hans er þetta fræga félag nú aftur í sviðsljósinu.
• En þó mikill fögnuður sé í her-
búðum Yorkshirebúa — Leeds er
einnig úr þeim landshluta — gegn
ir ööru máli í Noröur-London, þar
sem allt gengur nú á afturfótun
'um hjá tveim af frægustu félögum
Engiendinga, Arsenal og Totten-
ham, og hefur örvænting gripiö
'um sig jafnt meöal forustumann-
anna sem óbreyttra liösmanna. —
Bæöi liöin féllu úr bikarkeppninni
við lítinn orðstír og staðan í 1.
Asa Hartford
-— skírður í höfuðiö á Jolson, og
taJsvert líkur Hermanni Gunn-
vssyni.
fyrri hálfleik, en John O’Rourke
og Neil Martin skölluöu knöttinn
í mark í þeim síðari, og Arsenal
hefur nú ekki unnið leik gegn ensk
um liðum síðan 13. desember. Eini
ijósi punkturinn hjá Arsenal á
keppnistímabilinu er Borgakeppni
Evrópu. Félagið er komið í „átta
liða úrslit" og leikur þar gegn
Dynamó Bacau, Rúmenfu.
En við skulum nú lita á úrslitin á
laugardaginn:
1. deild.
Bumley—West Ham 3—2
Chelsea—Sunderland 3 — 1
Coventry—Arsenal 2—0
Everton—Wolves 1—0
Manch. Utd.—Derby 1—0
Newcastle — C. Palace 0—0
Nottm. For.—Liverpool 1—0
Sheff. Wed. — Ipswich 2-2
Stoke—Leeds Utd. 1—1
Tottenham—Southampton 0—1
WBA-Manch. City 3—0
2. deild.
Birmingham—Bristol City 2—2
Cardiff—Blackpool 2—2
Huddersfield — Carlisle 1 — 0
Hull—Sheff. Utd. 2—3
Middlesbro—QPR 1 — 0
MiIIvall—Oxford 0 — 0
Norwich —Blackbum 0—1
Portsmouth—Charlton 5 — 1
Preston—Aston Villa 1 — 1
Swindon—Bolton 3—2
Watford —Leicester 2 — 1
íslenzku landsliðsmennimir voru
á Stamford Bridge leikvelli Chelsea
í London og sáu Peter Osgood
skora þrjú mörk gegn Sunderland.
Ekki var þetta þó einn af beztu
leikjum Chelsea, en liðið lék þó
of vei fyrir Sunderland og vöm
norðanmanna gat ekki stöðvað Os-
good. Hann skoraði tvö mörk með
þriggja min. millibili um miðjan
fyrri hálfleik og hið þriðja 10 mín.
fyrir leikslok, þá orðinn haltur.
Joe Baker lagaði stöðuna í 2—1
fyrir Sunderland og var öðru sinni
í góðu færi, þegar markvörður
Chelsea, Peter Bonetti, felldi hann,
en ekki var þó dæmd vítaspyma.
Leeds heldur enn forustu í 1.
deild eftir jafnteflisleikinn í Stoke.
en lék ekki eins vel og að undan-
fömu. Leeds var reyndar heppið
að ná jafntefli. Peter Dobing skor-'
aði fyrir Stoke, en Johnny Giles *
jafnaði fyrir Leeds og það beint.
úr homspyrnu. Knötturinn fór efst.
í stöngina fjær og hafnaöi í mark-,
inu. Óvenjulegt mark fyrir enska,
landsliðsmarkvörðinn, Gordon,
Banks, enda sagði hann f BBC eftir.
leikinn. „Markiö var mér að kenna.
ég átti að ná knettinum áður en.
hann lenti f stönginni". Einnig,
sagði Banks að Stoke-liöið hefði,
veriö frekar óheppið í leiknum.
Everton hefur sömu stigatölu og
Leeds og sigraði Ulfana 1—0. —
Everton hafði yfirburði í ieiknum,.
en John Oldfield var frábær f,
marki Ulfanna. Eina mark leiks.
ins skoraði Joe Royle á 31. mín.,,
mark sem vöm Úlfanna hefði aúð-,
veldlega átt að komast hjá. Derek,
Dougan, miðherji Úlfanna, slasað-,
ist á höfði, þegar klukkutími var
af leik, og léku Úlfamir eftir það (
10, þar sem varamaður þeirra hafði
þá þegar verið settur inn á.
Önnur markatala, sem gefur litla
hugmynd um gang leiksins, er frá
Old Traford, leikvelli Manch. Utd.
Manch. Utd, hafði þar mikla yfir- ‘
burði gegn Derby, svo mikla, að1
knötturinn fór varla af vallarhelm1
ingi Derby framan af, en Les Green ■
átti enn einn stórleikinn í marki t
Derby. Bobby Charlton skoraði,
eina mark leiksins á 27. mfn. ,
Green virtist hafa möguleika á að
deild hjá báðum er siæm. Og ekki
bættu leikmennimir á laugardag-
inn þar um, heldur ýfðu sárin.
Framkvæmdastjóri Tottenham,
Bill Nichoison, gerði róttækar
breytingar á liöi sínu gegn South-
ampton og setti m.a. annars fjóra
landsliðsmenn út, þá Jimmy Greav
es, Alan Gilzean. Cyril Knowles og
Joe Kinnear en allt kom fyrir ekki.
Southampton sigraöi með marki ;
Ron Davies og aðeins 27 þúsund ;
sáu leikinn — brot af þeim fjölda j
sem áður fyllti White Hart Lane,
enda átti Tottenham áöur miklu
gengi að fagna, varð m.a. Evrópu-
meistari bikarliða 1963, enskur
bikarmeistari 1962 og 1967, en
árið 1961 var þó einstakt. Totten-
ham sigraði þá bæði f 1. deild og
bikarkeppninni, en þaö afrek hef-
ur ekkert annað félag unnið á þess
ari öld.
Og hjá Arsenal var fyrirliðinn
Terry Neil settur út gegn Coventry
en í hans stað lék ungur leikmað
ur John Roberts, sem Arsenal
keypti í fyrrasumar frá Northampt
on fyrir 35 þúsund pund. Roberts
hefur leikið nokkra leiki áður með
Arsenal, en brmn gat lítið gert til
að hindra r Coventry. Tölumar
2 — 0 gefa ai.s ekki vel til kynna
hina miklu yfirburði Coventry f
leiknum og Arsenal hefur nú tapað
,,tvöfalt“ fyrir Coventry á leiktfma
bilinu. Ekkert mark var skorað í
í
j I
i
Hvar næst ?
Hver næst ?
Dregiö fimmtudaginn 5. feb.
Umboðsmenn geyma ekki miða
viðskiptavina fram yfir
dráttardag
Vinningar gera hvorki mannamun né staðarmun.
Gleymið ekki að endurnýja. ,
Síðustu forvöð fyrir hádegi dráttardags. 'Wf
Happdrætti SÍBS 1970.