Vísir - 02.02.1969, Side 3
Tí^yTTt . MSnudagur 2. febróar 1970.
3
■ verja spymu Chárltons, en knöttur
, inn straukst við Roy McFarland
miðvörð Derby, og breytti um
stefnu. Þess má geta að Derby hef
ur boðið 120 þúsund pund í Terry
Hennessey hjá Nottm. Forest, sem
talinn er einn bezti leikmaðurinn
i í ensku knattspymunni og mið-
. vörður ásamt Mike England Tott-
. enham, í landsliði Wales. Ef Derby
fær Hennessey eru dagar Dave Mac
Kay hjá Derby sennilega taldir,
enda hefur ekkert lið í 1. deild
' efni á þeim „lúxus“, að hafa leik-
\ mann, sem varla víkur úr eigin víta
teig sbr. leik Derby og Sheff. Utd.
' í sjónvarpinu sl. laugardag, þótt
J enginn efist hins vegar um hæfi-
leika MacKay sem stjómanda á
( leikvelli. Og í sambandi við skrif
. mín um ísl. siónvarpið og knatt-
'rpymuþætti BBC í Vísi sl. mánu-
f dag hefur mér verið bent á, að
knattspymuþ. BBC séu einhverj-
' ir eftirsóttustu söluþættir BBC. í
I handbók BBC ’66 er skýrt frá því
að þættimir séu seldir til yfir 20
I landa og því einkennilegt ef ísl.
^ sjónvarpið getur ekki fengið þá.
Staða efstu og neðstu liða í 1.
< deild er nú þannig:
Leeds
Everton
• Chelsea
< Liverp.
Wolves
31 17 12
30 21 4
29 14 10
28 13 9
30 12 11
2 65:30 46
5 52:26 46
5 49:32 38
6 49:31 35
7 43:34 35
> C. Palace 29 3 11 15 25:51 17
. Sunderl. 31 4 9 18 22:56 17
, Sheff. Wed. 29 4 7 18 26:51 15
* Leikmenn Cheff. Wed, geta á-
*.sakaö sig mjög að missa eitt stig
%egn Ipswich. Þeir höfðu mikla yf
t ^rburði í leiknum, höfðu 2 — 0 yfir f
Khálfleik, fengu síðan á sig klaufa-
,mark og svo til að kóróna verkið
iafnaði bakvörðurinn Mills fyrir
s>ípswich á síðústu sekúndum leiks
* ins.
t Liverpool var alveg sviplaust án
, Peter Thompson í Nottingham.
Poul Richardson skoraði eina mark
* ið fyrir Forest í leiknum. Bumley
i sigraði West Ham, fyrsti sigur liðs
t ins á heimavelli í 15. vikur. Peter
(Eustace skoraði sitt fyrsta mark
fyrir WH í lefknum.
' Og þá mættust úrslitaliðin í
* deildabikarnum í WWest Bromvick
i og WBA vann stórsigur gegn
t Manch. City, 3—0. City er f mikilli
,,lægð“, en WBA Ték sinn bezta leik
á keppnistímabrlinu. Colin Suggett
' sennilega fljótasti leikmaðurinn í
' ensku knattspymunni, hefur hlaup
1 ið 100 m á 10.5 sek. — skoraði
(fyrsta mark Ieiksins, en Jeff Astle
, og Asa Hartford hin 2. Hmn síðar
„ nefndi, 1B ára Skoti, xar skírður
„gæhmafni“ söngvarans fræga, A1
* Jolson sem aldrei var nefndur ann
* að en „Asa“ meðal vina sirma. Eng
* inn sem heyrt hefur, gleymir
* túlkun Jolson á „Mamie".
i 1 2. deild er Huddersfield nú f
. mjög sterkrj stöðu og hefur und-
, anfamar vikur unnið þau lið, sem
,næst þeim eru eins og Sheff. Utd.
s(2—1), QPR (2—0) og Cardiff
(1—0). Staðan þar er nú þessi:
^Huddersf. 29 16 7 5 48:27 41
'sheff. Utd. 30 16 5 9 57:27 37
'Blackbum 30 16 5 9 41:34 37
Cardiff 29 14 7 8 47:30 35
VQPR 30 14 6 10 49:39 34
‘Middlesbro 28 14 6 8 37:30 34
'Charlton 29 5 13 11 26:52 23
Preston 29 7 8 14 30:40 22
Watford 29 7 7 15 32:37 21
Aston Villa 27 4 10 13 23:42 18
I 3. deild er Lundúnaliðið Orient
‘nú efst með 38 stig. Luton hefur
^36 og Brighton og Reading 36. 1 4.
,deild er Chesterfield með 40 stig,
Brentford hefur 37, Swansea 36 og
, Port Vale 35. Á Skotlandi heldur
barátta Celtic og Rangers áfram.
Bæði unnu auðvelda sigra á laugar
daginn, Rangers vann St. Mirren í
Paisley 4—0. Celtic er efst með
38 stig, Rangers hefur 36 og langt
er í þriöja liðið, Hibemian, sem
hefur 29 stig. — hsím. —
Þessa mynd tók ljósmyndari Vísis á Reykjavíkurflugvelli af
Rúnari í glaðværum hópi landsliðsmanna, þegar Iagt var upp
í hina örlagaríku ferð til Lundúna á föstudagsmorguninn.
Rúnar látinn
Sorgardagur hjá 'islenzkum 'ibróttamönnum
■ Rúnar Vilhjálmsson,
hinn efnilegi ungl-
ingalandsliðsmaður í
knattspyrnu, lék aldrei
sinn fyrsta landsleik
með aðallandsliði ís-
lands. Hann lézt á Centr
al-sjúkrahúsinu í Lond-
on árla í gærmorgun og
hafði aldrei komizt til
meðvitundar. Slysið í
London, þegar svalir hót
elherbergis Rúnars
brotnuðu með hann, hef-
ur slegið óhug að þjóð-
inni allri og sannarlega
féll hér í valinn einn
þeirra æskumanna, sem
miklar vonir voru tengd
ar við.
íslenzka landsllðið gengur þvi
til l^iks í kvöld með sorgina
sem fylginaut. Liðið, sem lagði
upp frá Reykjavík á föstudags
morguninn hefur frá þvi slysið
gerðist verið harmi lostnir og
sannarlega ekki í skapi til að
ganga til leiks, en leikurinn
verður að fara fram, og eflaust
munu leikmenn reyna eftir
megni að gera sitt bezta og
heiöra með því minningu félaga
síns.
Rúnar Vilhjálmsson muna
margir frá rigningardegi einum
í júli 1968. Þá var hann einn af
hinum baráttuglöðu liösmönn-
um íslenzka unglingalandsliðs-
ins, sem komst í úrslit Norður
landsmótsins í Laugardal gegn
Svíum. Liðið vann hug og
hjörtu áhorfendanna, einkum
nokkrir leikmenn úr Fram, Rún
ar og félagar hans. Man ég sér
staklega hversu stór þáttur Rún
ars var gegn hinum snjalla mið
herja Svía. Gustavson, og
töldu blöðin eftir þennan leik
að Rúnar hefði sýnt langbeztan
leik Islendinganna. Þetta var í
fyrsta skipti sem ég sá þennan
glæsilega, unga mann á velli.
m->- 10. síða
skrifið eöa hringið, segið oss hvaða húsgögn yður vantar
og biðjið um myndalista vorn.
Ef þér hafið í huga að kaupa bólstruð húsgögn, svo sem
sófasett, svefnsófa eða borðstofustóla, þá flýtir það fyrir,
ef þér segið oss hvaða áklæðalitir koma til greina, t. d. hvort
sófasettið eigi að vera grænt eða gulbrúnt o.s.frv. Vér send-
um yður um hæl myndalista, verðlista og 5—10 mismunandi
áklæði og liti.
Þér segið oss hvernig þér viljið greiða vöruna. Ef þér greiðiö gegn póstkröfu fáið þér staðgreiðsluafslátt en beztu afborgun-
arkjör okkar eru þessi:
Kaup allt að 10.000
—------------- 20.000
— 30.000
— 40.000
— 50.000
1000 út— 1000 á mánuði
■2000 ---- 1000 - —
■3000 ---- 1500 - —
4000 -----2000 - —
■ 6000 ---2000 - —
---------- 60.000 — 8000 -----2500 - —
Kaup bar yfir 20% út afgangur á 20 mánuðum. Þér ákveðið með hvernig afborgunum þér viljið
greiða vöruna Vér útbúum samning og víxla, sem vér sendum yður til undirskriftar og þér
endursendið oss Stðan afgreiðum vér vörurnar. og er þá útborgunin i póstkröfu, ef þér hafið
ekki þegar sent hana til vor. Vixlana sendum vér í næstu bankastofnun við yður.
r>«
Ul..
* K
l
Sími-22900 Laugaveg 26