Vísir - 02.02.1969, Qupperneq 16
ÍSLCNDINCAR CÆTUÁTT
3-4 MCBAL ÁTTA CFSTU
— Mikill slagur um verðlaunin. Guðmundur,
Ghitescu, Amos og Padevski efstir
Mánudagur 2. febrúar 1970.
Valt í
hálku á
Reykjanes-
braut
i Fólksbíll, sem í voru 4 mann-
( eskjur ein hjón og tvö böm, 4 og 5
ára, valt á Reykjanesbraut rétt
' sunnan viö gjaldskýlið hjá Straumi
( i gærdag um þrjúleytiö. Bíllinn
lenti utan vegar á hvolfi.
Mikil hálka var á veginum og
' olli það miklu um óhappiö, en það
t var lán i óláninu að fólkið slapp
t að mestu ómeitt, nema annað bam
ið, 5 ára drengur, slasaðist, en þó
’ ekki hættulega.
Baráttan um efstu sætin
á Reykjavíkurskákmót-
inu harðnar nú heldur
betur. Guðmundur Sig-
urjónsson er örugglega
efstur eftir 13 umferðir
með 10% vinning. Hann
á nú eftir að tefla við þá
Freystein og Vizanti-
adis.
Ghitescu er með 9y2 vinning,
hefur heldur sótt í sig veðrið síð
ustu umferðirnar, Amos er með
9 vinninga og Padevski með
8V2. Þessir fjórir koma til með
að kijást um fjögur efstu sætin,
en þeir Friðrik, Hecht og Matu
lovic gætu ef til vill blandazt
eitthvað í þá baráttu.
Aftur á móti verður mun tví-
sýnni barátta um fjögur næstu
sæti, en verðlaun eru veitt átta
efstu mönnum í mótinu. Nokkr
ir íslenzku keppendanna, auk
þeirra Friðriks og Guðmundar,
eiga möguleika á að krækja sér
í verðlaun, einkum þeir Frey-
steinn Þorbergsson og Björn
Þorsteinsson.
Orslitin í 13. umferðinni urðu
annars sem hér segir: Guðmund
ur vann Benóný, Friörik vann
Braga, Hecht vann Björn Sigur-
jónsson, Jón Kristinsson vann
Ólaf, Bjöm Þorsteinsson vann
Freystein, Ghitescu vann
Vizantiadis. Amos og Padevski
gerðu jafntefli og Matulovic á
biðskák við Jón Torfason. Jón
á þrengri stööu en peð yfir,
svo aö hann gæti ef til vill hald
ið skákinni og náð jafntefli.
í kvöld hefst 14. og næstsíð-
asta umferðin í Hagaskólanum
klukkan 18.30. Þá tefla saman
Padevski og Friðrik, Ghitescu
og Jón Torfason, Hecht og
Matulovis, Bragi og Bjöm S.
Ólafur og Amos, Benóný og Jón
Kr., Vizantiadis og Bjöm Þ.
Vakandi augu í
Gjaldheimtunni
komu upp um þjóf
MAÐUR NOKKUR var staöinn
að verki með grjót í hendi að
brjótast inn í Hafnarstræti 9 f
fyrrinótt, en það sást til hans úr
Gjaldheimtunni, þegar hann
braut rúðu á bakhlið hússins.
Kom lögreglan að honum, þegar
hann var aö basla við að brjóta
upp lás á hurð með steininum, og
var hann þegar í stað tekinn og
færður í vörzlu.
Aðfaranótt laugardags voru tvær
tilraunir til innbrots gerðar í bæn-
um, en til annars þjófsins sást, þar
Munaði litlu
oð illa færi
Naumlega var sloppiö, þegar bif-
reiðlnni hér á meðfylgjandi mynd
var ekið út af veginum f Hvítanes-
brekkunni á Hvalfjarðarströnd (hjá
Staupasteini), því að bifreiðin hefur
numið staðar á blábrún 30 metra
hengiflugs, þar sem ekkert er fyrlr
neðan nema sjórinn. — ökumaður,
sem ók hjá slysstaðnum um mið-
nætti s.l. nótt, tók þessa mynd af
aðstæðum, en bifreiðin var yfirgef-
in af fólki og enginn var til frá-
sagnar um, hvað
sem hann reyndi að brjótast inn í
Rúgbrauðsgerðina í Borgartúni.
Hann var þó farinn, þegar lögregl-
an kom á staðinn. Hin tilraunin var
gerð í fornbókaverzlun á Hverfis-
götu 16, og var brotin rúða í sýn-
ingarglugga og stolið einu beizli á
hest, en ekki hreyft við ööru.
Á sunnudagskvöld sást til stráka
í Kleppsholti, sem virtust reyna að
stela dráttarvél, er stóð hjá Drátt-
arvélum h.f. við Kleppsveg. Lög-
reglan kom að þeim, en einn úr
hópi strákanna hafði gangsett drátt
arvélina i fikti, en hrevfði hana
ekki úr stað.
ÚTILEGUBATAR MEÐ 60
TONN I 5 LÖGNUM
Góður linuafli vestra
DÁGÓÐ veiði hefur verið hjá
línubátum frá Breiðafjarðarhöfn
um að undanförnu, einkum hjá
þeim, sem komizt hafa út í Jök-
uldjúp með Iínu sína. Þeir hafa
komizt upp í 16 tonn í lögn.
Þrir bátar frá Ólafsvik voru með
um 16 tonn á Iaugardaginn. Afla
hæstu bátarnir i Ólafsvík í janúar
eru Sveinbjörn Jakobsson með 130
tonn og Halldór Jónsson með 126
tonn — i 14 róðrum, sem verður
að teljast góður afli, en veður hef
ur hins vegar hamlaö veiöum mjög
í janúar og í dag er enginn bátur
á sjó vestra, nánast stormur á mið-
unum.
Suðumesjabátar hafa fengið
minna á línuna og raunar hefur afl
inn hjá þeim verið tregur að und-
anförnu, allra mest komizt upp í
Brúðkaup Fígarós
í síðasta sinn
í kvöld
Brúðkaup Figarós hefur orðið
mönnum mikil dægrastytting í
skammdeginu, ef menn hafa ekki
séð það hafa þeir þó að minnsta
kosti lesið og rabbað um það —
Síðasta sýningin á óperunni verð
ur í kvöld. Aðsóknin hefur verið
góð aö flestum sýningunum. Sýning
arnar verða nú að hætta þar sem
sænska söngkonan Karin Langebo
hefur ráðið sig annað nú um mán-
aðamótin.
tíu og hálft tonn. Örfáir bátar eru
byrjaðir með net, til dæmis munu
5 vera komnir með net í Kefla-
vík, en þeir hafa hreint ekkert
fiskað.
Aftur á móti hefur Kefivíkingur
sem er á útiiegu komið með mjög
góðan afla. Hann kom úr síðasta
túmum núna fyrir helgina með um
60 tonn eftir 5 lagnir að því er
sagt var. Áður hafði hann farið þrjá
túra og f túmum á undan fékk
hann 50 tonn. — Keflvíkingur mun
mest hafa haldið sig á slóðum Breið
firðinga og Vestfirðinga, þar sem
línufiskiríið hefur verið bezt í vet-
ur.
Febrúarsnjor eftir
mildan janóar
Reykjavikurbörnum hlotnað-
ist óvænt ánægjuefni, sem var
snjórinn i gær, enda flýttu þau
sér að velta stóra snjóbolta f
snjókarla. I morgun var svo
snjórinn horfinn og lítil um-
merki eftir þetta vetrarhret
Góða veðrið komið aftur, sem
hefur staðið yfir allt frá 11. jan-
úar.
Það má búast við að seinni
hluti janúar sé með hlýjasta jan-
úarkaflanum, sem komið hefur
um árabil. Frostið sem var
fyrstu 10 dagana af janúar mun
þó vega upp á móti hitakaflan-
um i tölulegum útreiknlngum
Veðurstofunnar á meðalhita
mánaðarins. Það kom fyrir f jan
úar að sólarhringshitinn komst
yfir fimm stig, en á móti vegur
að einnig mældist 12 stiga frost
sem sólarhrings hiti, einn sólar-
hring í fyrri hluta mánaðarins.
Horfa á íslenzkt
sjónvarp í Noregi
Islenzka sjónvarpið hefur öðru
hvoru sézt mjög skýrt og greinilega
í Noregi. Segir nýlega frá þessu
í Tönsberg blad. I Slagen sá fjöl-
skylda ein íslenzka sjónvarpið eft
Ir að dagskrá norska sjónvarpsins
lauk. Var útsendingin frá íslandi
ekki lakari en sú norska og fjöl-
skyldan ákaflega ánægð með þenn
an sjónvarpsauka.
Þess skal getið að norska sjón-
varpið hefur oft sézt hér á landi
og auk þess ýmsar stöðvar aðrar,
en mjög er þetta undir heppni
komið of; þurfa skilyrði öll að
vera nokkuö elnstök.