Tíminn - 17.07.1979, Blaðsíða 2

Tíminn - 17.07.1979, Blaðsíða 2
2 BUÐIN Skipholti 19, Simi 29800 27 ár I fararbroddi Vörubíll til sölu Volvo 375 árg. 1961, i góðu lagi og annar eins, ógangfær. Upplýsingar gefur Guðjón ólafsson, Valdasteinsstöðum, simi um Brú, Hrútafirði. Lokað Skrifstofa vor og verksmiðja verður lokuð frá 16. júli — 10. ágúst, v/sumarleyfa starfsfólks. Sigurður Eliasson hf. Auðbrekku 52, Kópavogi. Auglýsing um ferðastyrk til ritnöfundar í fjárlögum fyrir árið 1979 er 100 þús. kr. fjárveiting handa rithöfundi til dvalar á Norðurlöndum. Umsóknir um styrk þennan óskast sendar stjórn Rithöfundasjóðs íslands, Skóla- vörðustig 12, fyrir 10. ágúst 1979. Umsókn- um skulu fylgja greinargerðir um, hvern- ig umsækjendur hyggjast verja styrknum. Reykjavík, 16. júli 1979 Rithöfundasjóður tslands. Iðnskóli Austurlands Neskaupstað Verknámsbraut tréiðna Á næsta skólaári verður starfrækt verk- námsbraut tréiðna við Iðnskóla austur- lands Neskaupstað. Heimavist og mötuneyti á staðnum. Verk- nám i einn vetur, styttir samningsbundið iðnnám um eitt ár. Nánari upplýsingar i simum 97-7136 og 97- 7501. Frá Grunnskóla Siglufjarðar Lausar kennarastöður, umsóknarfrestur til 1. ágúst nk. 1. íþróttakennarastaða pilta. 2. Staða kennara i mynd- og handmennt (smíðar). 3. Þrjár almennar kennarastöður i eldri og yngri bekkjum skólans. Kennslugrein- ar eru m.a. enska, almenn kennsla yngri barna, samfélagsgreinar, stærðfræði. 4. Staða sérkennara (hjálparkennsla). Upplýsingar veitir yfirkennari i sima 96- 71686 og formaður skólanefndar i sima 96- 71263. SKÓLANEFNDIN í SIGLUFIRÐI. Þriöjudagur 17. júli 1979. Skæruliðamir eiga von á maklegum málagjöldum Ankara/ Reuter — Palestinuskæruliðarnir fjórir, sem réðust inn i egypska sendiráðið i Ankara, höfuðborg Tyrklands, gáfust upp á sunnudag, án þess að kröfum þeirra hefði verið framfylgt. Þeir höföu krafist þess, aö flogið yröi meö þá, ásamt gisl- unum, úr landi og einnig aö tveir félagar þeirra, sem eru i fangelsi i Egyptalandi yröu látnir lausir. Fjórmenningarnir voru i gær fluttir til herfangelsis i útborg Ankara, þar sem þeir veröa leiddir fyrir herrétt. í árásinni á sendiráöiö létust tveir tyrkneskir lögreglumenn og egypskur sendiráösmaöur lést, er hann reyndi aö sleppa undan meö þvi aö stökkva niöur af þaki sendiráösbyggingarinn- ar. Félagi hans slasaöist lifs- hættulega, er hann reyndi aö komast undan meö þvi aö stökkva út um glugga. Herlögreglustjórinn i Ankara hefur lýst þvi yfir, aö skæruliö- arnir eigi eftir aö fá „makleg málagjöld”. Evrópuþingið kemur saman í dag Strasburg/ Reuter — Þingmenn Evrópu- ráðsins, sem kjörnir voru i siðasta mánuði, munu hittast i fyrsta skipti i dag i Strasborg- arhöll. Þingmennirnir, sem eru 410 munu kjósa forseta, sem mun hafa áhrifavald i tilraunum þingsins fyrir auknu valdi, en Evrópuþingið hefur enn mjög takmörkuö völd og telja þing- menn aö ekkert geti bjargaö þvi nema sterkur og dugmikill for- seti, sem er reiöubúinn til aö standa upp i hárinu á ráðherra- nefnd, sem skipuö er umboös- mönnum niu einstakra rikis- stjórna. Liklegasti forseti Evrópu- þingsins, er fyrrverandi heil- brigöismálaráðherra Frakka, Simone Veil, sem kjörin var af frjálslyndum sem frambjóöandi til forsetakjörs Evrópuþings. Vonast er til aö hún fái stuöning hinna 106 kristnu demókrata og hins stóra hóps hægri sinnaöra Breta, á þinginu. Simone Veil, liklegust sem for- seti Evrópuþings. Orkusparnaðaráætlun Carters Carter lagöi til aö sérstakir skattar yröu lagöir á ollufyrir- tæki. Varnarmálaráðherra íraks biðst lausnar Teheran/Reuter — Varnarmálaráöherra trans, Taqi Riahi, baöst lausnar frá embætti i gær, eftir aö yfir- maöur herlögregluráösins, Amir Rahimi, haföi sakaö trönsku stjórnina um aö taka ekki nógu hart á ofbeldis- verkum i tran. Varnarmálaráðherranum uröu á mistök í síöustu viku, er hann lét segja Amir Rahimi upp störfum sem yfirmanni herlögregluráös- ins. Rahimi hefur sakaö ónefnda bragöarrefi í æöri deildum hersins um aö vinna gegn sér í þeim tilgangi aö veikja byltinguna. Uppsögn hans var undir- rituö af varnarmálaráö- herranum og studd af Aya- tollah Khomeini, trúarleiö- toga landsins. Kansas City/Reuter — Carter, forseti Bandarikj- anna lagði til í gær, að sérstakir skattar yrðu lagðir á oliufyrirtæki næstu 10 ár, til að hægt yrði að framkvæma orkusparnaðaráætlunina, en heildarkostnaður áætlunarinnar er 142.2 billjónir dollara. Carter sagöi að meö orku- sparnaöaráætluninni mundu kol, vatn, gas, steinolia og aörir orkugjafar spara 2.5 milljónir oliutunna á dag. Carter lagði til aö oliuinn- flutningskvótinn væri 8.2 milljónir oliutunna á dag, en þaö er 300 þúsund tunnum minna en samið haföi veriö um á fundi iönrikjanna i Tokýo i siö- asta mánuði. Hann sagöi einnig aö kvótinn fyrir áriö 1980 mundi veröa ákveöinn seinna, en hann mundi einnig veröa lægri en áætlaö heföi veriö á Tókýófundinum. Carter lagöi einnig til að auk- in fjárveiting yröi veitt til kaupa á almenningsfarartækjum og aö sett yrði á stofn sérstök nefnd sem sæi um aðgeröir orku- sparnaðaráætlunarinnar. FuDtrúar Kína og Sovétrí^janna ræðast við Peking/Reuter — Kinversk yfirvöld buöusti gær til aö senda erindreka tii Moskvu, I septem- ber, til viðræöna við sovéska ráðamenn um aukin samskipti milli Kina og Sovétrikjanna. Sex vikur eru liönar sföan Sovétrikin stungu upp á viöræö- um miUi fulltrúa rikjanna I Moskvu I júli eöa ágúst, en Kin- verjar svöruöu ekki fyrr en nú. Samt voru þaö þeir sem upphaf- lega stungu upp á þessum viö- ræöum 3. april s.l., þegar tíl- kynnt var aö þeir mundu ekki vilja endumýja 30 ára vináttu- samninginn milli rikjanna. Erlendar Umsjón: fréttir BPWEA Oskarsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.