Tíminn - 28.09.1979, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.09.1979, Blaðsíða 1
Siðumúla 15 Pósthólf 370 • Reykjavík Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Ráðningamál skólastjórans I Grindavlk dregur dilk á eftir sér: Yfirkennarinn segir upp stöðu sinni Kás — Sií ákvöröun Ragnars Arnalds, menntamálaráöherra, aö ráöa réttindalausan mann I stööu skólastjóra Grunnskóla Grindavikur, viröist ætla aö draga ýmsa dilka á eftir sér. Til aö mynda sendi Halldór Ingvarsson, yfirkennari skól- ands, skeyti i gær til mennta- málaráöuneytisins, þar sem hann segir stööu sinni lausri. Mikill urgur er iGrindvkingum vegna þessa máls, og tala jafn- vel sumir foreldrar um aö banna börnum sfnum aö fra i skólann ef svo fer fram sem nd horfir. „Þetta eru orö rökþrota manns sem gripur hvert hálm- strá sem hann eygir. Honum heföi veriö auövelt aö afla sér upplýsinga um þaö sem hann er aö fleipra meö, ef hann heföi haft áhuga fyrir því”, sagöi Bogi Hallgrlmsson, fyrrverandi skólastjóri Grunnskóla Grinda- vikur I samtali viö Tlmann I gær, vegna oröa Ragnars Arn- alds i Visi I gær, en þar segir hann ýmislegt athugavert viö embættisfærslu Boga undanfar- in þrjil ár. ,,Þaö viröast góöir möguleik- ar fyrir ungt fólk aö næla sér I stööur nii til dags, ef þaö er nóg aö lofa aö mermta sig siöar. Ég er vist oröinn of gamall til aö lo£a sllku”, sagöi Bogi I samtali viö Timann. Stjórn Sambands grunnskólakennara mótmælir ákvörðun ráðherra: Lög og reglur þverbrotnar Kás — „Stjórn Sambands grunnskólakennara mótmæUr harölega þeirri ákvöröun menntamálaráöherra, aö setja réttindalausan mann i stööu skólastjóra i Grindavlk, þegar um stööuna haföi einnig sótt maöur meö full kennslurétt- indi”, segirf ályktunsem stjórn Sambands grunnskólakennara samþykkti á fundi sinum I gær- kvöldi. „í 8. gr. laga um embættis- gengi kennara og skólastjóra sem ööluöust gildi hinn 12. mal 1978 eru skýr ákvæöi þess efnis, aö einungis megi setja mann án fullra réttinda I stööu ef hlutaö- eigandi skólanefnd telur hann hæfan. Hins vegar sækir um stööuna maöur meö öll tilskilin réttindi, og meirihluti skóla- nefndar mælir meö honum. Hann á þvi samkvæmt sömu lögum ótviræöan rétt til starf- ans. Kennarasamtökin hafa sætt sig viö aö fólk án kennararétt- inda væri sett i stööur, sækti enginn réttindamaöur um. Eftir setningu áöurnefndra laga hafa þau vinnubrögö veriö viöur- kennd af hálfu menntamála- ráöuneytisins og kennarasam- takanna aö fólk meö kennslu- réttindi gangi fyrir um stööur kennara og skólastjóra grunn- skóla. Þessi regla hefur nú veriö þverbrotin og réttindamaöur látinn vikja”. Árás á herstöðvargirðinguna GP — Mótmælafundur hernáms- andstæðinga sem halda átti viö flugstöðvarbygginguna á Kefla- vfkurflugvelli fór fram I gær- kvöldi — en utan vallar. Lengst af var fundurinn sem um 200-300 manns sóttu, friðsamlegur en þó voru tveir ungir hernámsand- stæðingar sem stokkiö höfðu yfir giröinguna kringum völlinn, handteknir. Nokkrar ræður voru siöan haldnar, sungnir bar- áttusöngvar þar sem krafan um herinn burt og tsland dr Nató var megin inntakið. Undir lok fundarins geröu nokkrir hernámsandstæöingar meö Jónas Arnason alþingismann I broddi fylkingar haröa hrlö aö giröingunni sem ekki stóöst á- hlaupiö og fór hópurinn inn á vall- arsvæöiö syngjandi baráttu- söngva. Milli 40-50 lögregluþjónar voru á vakt viö fundinn en höföu sig þó ekkert I frammi. Fólkiö stóö slöan um stund viö vaktskúr lögregl- unnar viö aöalhliöiö þangaö til ungu piltunum haföi veriö sleppt. (Timamynd: Róbert) GP — Vfetnamska flóttafólkið eða vfetnömsku tslendingarnir fluttu f gærkvöldi f nýja bústaðinn sinn við Kaplaskjólsveg 1 Reykjavlk. Hins vegar var eldhúsiö ekki alveg tilbúið og hljóp þá Hótel Esja undir bagga og bauðfólkinu öllu til kvöldverðar I gærkvöldi og Jónas Þórir spilaði á orgel. Eftir það fór fólkið siðan inýja bústaöinn og vonum viðað þeim muni liða vel I Vesturbænum. (Timamynd: G.E.) Samdráttur i landbúnaði hófst strax í fyrra: Sauðfé fækkaði um sex þúsund — frá árinu áður HEI — t skýrslu um fjölda búfjár sem á vetur var settur haustið 1978 kemur fram að nautgripum hafði þá nær ekkert fjölgað frá haustinu áður og að sauðfé var 6.000 færra en árið áður. Hrossum hafði hins vegar fjölgað um 1.500 (að (íálfu i bæj- um), svlnum á þribja hundrað og alifuglum um nær 100 þús- und, eða um fjórðung. Þetta bendir til aö þrátt fyrir góöan heyfeng i fyrra og gott ár- feröi, hafi bændum veriö ljóst hvaö fram undan var og þá strax tekiö nokkurt tillit til þess offramleiösluvanda sem rætt var um og þvi frekar fækkaö I hinum heföbundnu búgreinum en hitt. Haustiö 1978 voru á vetur sett- ir nær 63 þús. nautgripir, þar af rúmlega 36 þús. mjólkurkýr, um 890 þús. fjár, 51 þús. hross og um 1400 svln. Alifuglar voru taldir 369 þúsund. r Traustur fjárhag- ur borgarsjóðs — sjá bls. 9 Breytir EBE land- búnaðarstefnu sinni? sjá bls. 8 Island — Finnland — sjá íþróttir bls. 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.