Tíminn - 19.12.1979, Blaðsíða 9
Miövikudagur 19. desember 1979.
9
Hans Hansen
Sjáðu sæta
naflann
Sigurför
Bókaútgáfan Leiftur hf. hefur
nýlega gefiö út bókina Sigurför
eftir Sverre Magelssen. Þýö-
andi er Benedikt Arnkelsson.
„Sigurför segir frá fjörmiklum
piltum, sem setja sér háleit
markmiö, berjast viö freist-
ingar og lausung á timum siö-
ferðilegrar hnignunar og sýna
og sanna, að vegur trúar og
heiöarleika er vegur hamingju
og ótrúlegra ævintýra.
Þetta er lifandi frásögn um
brautryöjandann og æskulýös-
leiötogann Georg Williams sem
varö upphafsmaöur Kristilegs
félags ungra manna, KFUM.
Dregin er upp hrifandi mynd af
ungum manni og vinum hans,
sem vita, hvaö þeir vilja, og
drýgja dáöir”.
Þá segir ennfremur aftan á
bókarkápu aö Sigurför sé
skrifuö jafntfyrir æskufólk sem
fulloröna.
ANs.k&. iM V '•••.<; : i - Í»: * f ;
JÚllABGSKQRR
Júlia og Snorri
Bókaútgáfan Hergill hefur
gefið Ut barnabókina JUlía og
Snorri og er hún einkum ætluö
yngstu lesendunum. Þetta er
sjötta bókin sem Anna K. Bryn-
jólfsdóttir hefur skrifaö fyrir
ungstu börnin en bókin er
myndskreytt af 15 ára stúlku,
Sólveigu Þorbergsdóttur. Aftan
á bókarkápu segir um
söguþráö: „JUlia var ein af hin-
um fjölmörgu þjáöu börnum
þriöja heimsins. Islensk kona
hitti hana nokkurra vikna
gamla f flóttamannabúðum
suöur í Afríku og tók ástfóstri
viö hana. Svo fór, að Júlia, sem
var munaöarlaus eignaðist fjöl-
skyldu á íslandi”. Segir sföan
bókin frá fyrstu uppvaxtarárum
Júlíu í Kópavogi.
Sjáðu sæta
naílann
minn
Hans Hansen er einn virtasti
unglingabókahöfundur dana.
Bækur hans um Klás og Lenu,
ástir þeirra og ævintýri, hafa
notiö óhemju vinsælda i Dan-
mörku. Nú hefur Lystræninginn
gefið fyrstu bókina um Klás og
Lenu út. Heitir hún: Sjáöu sæta
naflann minn. Ntundi bekkur
heldur I skólaferöalag til Svl-
þjóöar. Klás er ástfanginn af
Lenu og kynni þeirra veröa
náin. Tilfinningallf gelgju-
skeiösins þegar kynhvötin
vaknar og ástin kviknar I
brjóstunum er lýst af mikilli
alúö. Bókin fjallar á hispurs-
lausan hátt um ástarsamband
unglinga en fyrst og fremst
fallega.
Sjáöu sæta naflann minn var
kvikmynduö i fyrra og veröur
myndin sýnd hér á landi i
febrúar. Margrét Aðalsteins-
dóttir og Vernharöur Linnet
þýddu bókina. Kápumynd geröi
Pentti Nelarti.
Bækumar sem foreldrarnir eiga líka að lesa
Verð kr. 2565.-
Maria Gripe
ELVIS!
ELVIS!
Verð kr. 4945.-
Allir sem lásu Elvis Karlsson hafa
beöiö eftir Elvis Elvis, nú er hún komin
og veldur ekki vonbrigöum hún er
frábaer. Fást í næstu bókabúð.
UNGLINGA- OG
BARNABÆKUR HAGPRENTS
AUGLYSINGASTOFA SAMBANDSlNS
DAMIXA
Nýtt blöndunartæki meS tveimur
handföngum, sem snúast aðeins 1/4
úr hring.
Ódýr, stílhrein og auðveld í notkun.
Nýjungarnar fylgja Damixa.
damhia
dönsk gæðavara
HA USTRÖKKRIÐ YFIR MÉR
eftir Snorra Hjartarson
Stærsti viðburður á íslenskum bókamarkaði
Hauströkkur sem fer að i lifi manns og heims,
temprað af unaði náttúrunnar og heiðrikju og
kyrrð hins fyrsta vors i endurminningunni.
Fyrsta bók þessa listfenga skálds eftir 13 ára hlé.
Mál og menning