Fréttablaðið - 20.04.2007, Page 2

Fréttablaðið - 20.04.2007, Page 2
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók 16 manns í húsi í Garðabæ í gær- morgun. Fólkið var undir áhrifum fíkniefna. Að sögn lögreglu barst tilkynn- ing frá borgara, um klukkan 10 um morguninn, að mikil fíkni- efnaneysla ætti sér stað í samkvæmi. Á vettvangi fannst talsvert magn fíkniefna af ýmsum gerðum og greinileg merki um neyslu. Fólkið brást illa við lögreglunni sem handtók stóran hluta gest- anna, eða 16 manns, sem fyllti fangageymslur lögreglunnar á Hverfisgötu og í Hafnarfirði. Allt tiltækt lið lögreglunnar sinnti útkallinu. 16 handteknir í heimahúsi „Aðkoman var skelfileg og mér sýnist allur lagerinn ónýtur,“ segir Finnbjörn Þorvaldsson, starfsmað- ur í tölvuversluninni Hugver á Vita- stíg 12. Á miðvikudagskvöld rofn- aði heitavatnsæð undir gangstéttinni fyrir framan húsið með þeim afleið- ingum að 80 gráðu heitt vatn flæddi niður götuna og inn í kjallara húss- ins. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var um 100 tonnum af heitu vatni dælt upp úr kjallaranum. „Við geymum tölvur, skjái og annan dýran búnað þarna á lagern- um og þegar verst lét var þar um 30 cm djúpt vatn. Gufan var líka mikil svo það sem blotnaði ekki varð hálf gufusoðið,“ segir Finn- björn. Þá lak einnig inn í verslunina sjálfa sem er á jarðhæð og þar urðu talsverðar skemmdir. „Þetta er mjög sorglegt sérstaklega með tilliti til þess að við lentum í vatns- tjóni í desember. Þá eyðilagðist stór hluti lagersins og verslunin var lokuð í rúman mánuð meðan verið var að koma öllu í samt horf,“ segir Finnbjörn. Að sögn Helga Péturssonar, almannatengslafulltrúa hjá Orku- veitu Reykjavíkur, er óvenjulegt að heitavatnsrör rofni með þess- um hætti. Svo virðist sem tæring hafi verið komin í rörið og það því gefið sig. Um 40 mínútur liðu frá því tilkynnt var um lekann og þar til búið var að stöðva hann. Þá hafði lögreglan lokað Vitastígnum og hluta Laugavegs fyrir umferð vegna vatnsflaumsins. „Það má segja að það hafi verið lán í óláni að þetta gerðist á þessum tíma sól- arhringsins en ekki þegar fleira fólk var á ferli,“ segir Helgi. Vegfarendur sem áttu leið um svæðið áttu fótum fjör að launa. Sjö manns leituðu á slysadeild vegna brunasára á miðvikudags- kvöld og einn í gær. Flestir brennd- ust á fótum og í flestum tilfellum var ekki um alvarlegan bruna að ræða. Þrír voru þó lagðir inn vegna sára sinna. Starfsmenn Orkuveitunnar unnu við viðgerð leiðslunnar alla nóttina og var viðgerð lokið um klukkan 11 í gærmorgun. Skelfileg aðkoma á lager tölvuverslunar Gríðarlegt tjón varð í tölvuverslun á Vitastíg þegar heitavatnslögn gaf sig í mið- borg Reykjavíkur á miðvikudagskvöld. Sjóðandi heitt vatn flæddi niður Vitastíg og Laugaveg. Átta vegfarendur leituðu á slysadeild vegna brunasára. Þrítugustu og fyrstu Andrésar andar-leikarnir voru settir í íþróttahöllinni á Akureyri á miðvikudagskvöld. Um 800 börn á aldrinum 6 til 14 ára eru í bænum vegna leikanna sem hafa farið afar vel fram. „Þetta gengur bara snilldarvel. Við fengum brakandi blíðu á fimmtudag þannig að hér í fjall- inu voru 800 brosandi börn og álíka margir brosandi foreldrar,“ segir Ingólfur Gíslason, formað- ur Andrésar andar-nefndarinnar. Skíðabörnin og aðstandendur þeirra troðfylltu íþróttahöllina á miðvikudagskvöld og segir Ingólfur að stemningin hafi verið eins og á Ólympíuleikunum. „Það er gaman að sjá að nú eru fleiri keppendur en í fyrra svo snjóleysið virðist ekki hafa áhrif á skíðaáhugann,“ segir Ingólfur og bætir því við að snjóframleiðslan í Hlíðarfjalli hafi svo sannarlega sannað gildi sitt. „Það er lítill nátt- úrulegur snjór í fjallinu og alveg ljóst að þessir leikar væru ekki í gangi núna ef ekki væri fyrir snjó- byssurnar,“ segir Ingólfur. Tilbúinn snjór til bjargar skíðamóti Randver, látið þið ekki undan Pressu? „Ég lít svo á að íbúakosn- ing um þessi mál séu farsælasta leiðin til þess að skapa sátt,“ segir Jóhanna Lilja Arnardóttir, íbúi í Brautarholti og varamaður í hreppsnefnd Skeiða- og Gnúp- verjahrepps. Forsvarsmenn hreppsins hafa það á sínu valdi hvort virkjana- framkvæmdir í neðri hluta Þjórsár ganga eftir eða ekki, í þeirri mynd sem Landsvirkjun áætlar. Íbúar í hreppnum eru rúmlega 500. Fjallað var um athugasemdir við umhverfismat vegna virkjana- áformanna á fundi hreppsnefndar í vikunni en samtals bárust um 90 athugasemdir. Sigurður Jónsson, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, úti- lokar ekki að það komi til íbúa- kosningar vegna málsins. „Það hafa ekki borist formlegar óskir um að það fari fram íbúakosning um þessi mál en það er ekki útilok- að að svo fari en þá munum við skoða þau mál í sveitarstjórninni. Við fórum yfir athugasemdir vegna fyrirhugaðra framkvæmda í vikunni og það liggur fyrir að við þurfum að meta þær og svara þeim hverri fyrir sig.“ Landsvirkjun hyggst byggja þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórs- ár fyrir neðan Búrfellsstöðvar. Efsta virkjunin hefur verið nefnd Hvammsvirkjun, næsta Holta- virkjun og neðsta virkjunin Urriðafossvirkjun. Gert er ráð fyrir því að samanlögð stærð lón- anna vegna þessara virkjana verði um 21 ferkílómetri en heildar- framleiðsla þeirra verður um 255 megavött, sem nemur um 2000 gígavattstundum á ári. Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir undirbúning vegna virkjananna vera langt á veg kominn. „Undir- búningur vegna útboðs fyrir fram- kvæmdirnar er langt kominn en hann hefur gengið vel. Vitanlega hefur íbúakosningin í Hafnarfirði [vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins í Straumsvík] áhrif á tímapressuna sem var uppi en við ráðgerðum að geta hafið fram- kvæmdir í haust til þess að geta afhent rafmagn til stækkaðs álvers á tilsettum tíma. Það sem við erum að gera núna er að undirbúa okkur undir að geta hafið framkvæmdir með skömmum fyrirvara.“ Kosningabaráttunni fyrir forseta- kosningarnar sem fram fara í Frakklandi á sunnudag lauk í gærkvöldi. Afar mjótt er á munum milli Nicolas Sarkozy, frambjóðanda hægrimanna, og Segolene Royal, fram- bjóðanda sósíalista, samkvæmt skoðanakönnunum. Sarkozy hefur ögn betur samkvæmt nýjustu könnun Le Figaro, en þar mælist hann með 28,5 prósenta fylgi, en Royal með 25 prósent. Francois Bayrou er þar spáð 19 prósenta fylgi og þjóðernissinnanum Jean-Marie Le Pen 14 prósentum. Helmingur kjósenda á eftir að gera upp hug sinn. Helmingur er enn óákveðinn Samfylkingin bætir mest við sig allra flokka í nýrri könnun sem Capacent gerði fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið, fær 24 prósent atkvæða og bætir við sig sex prósentustigum úr síðustu könnun. Vinstri græn tapa hins vegar sex prósentustigum og mælast með 19 prósent. Ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt könnun- inni, með 33 þingmenn. Sjálfstæð- isflokkur mælist með 41 prósent atkvæða og Framsóknarflokkur tapar tveimur prósentustigum og mælist með átta prósent. Frjáls- lyndir mælast með 4,3 prósent, Íslandshreyfingin með 3,3 og Baráttusamtökin með 0,5. Samfylkingin hækkar mest Ísbjarnarhúnninn Knútur nýtur nú gæslu fimmtán öryggisvarða í dýragarðinum í Berlín eftir að honum bárust líflátshótanir. Þýska dagblaðið Bild greinir frá því að dýragarðinum hafi borist handskrifað bréf þar sem bjarnarhúninum er hótað lífláti. Þýska lögreglan vill ekkert frekar segja um efni bréfsins. Hún tekur það þó mjög alvarlega og sendi lögreglu á vettvang um leið og bréfið barst og tóku fjórir lögreglumenn sér þegar í stað stöðu við búr hans. Knútur í gæslu eftir morðhótun Það hafa ekki borist formlegar óskir um að það fari fram íbúakosning um þessi mál.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.