Fréttablaðið - 20.04.2007, Síða 6
>> www.khi.is
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 7
0
7
8
1
Umsóknarfrestur um
grunnnám er til 18. maí
B.Ed. nám
B.Ed. nám
B.Ed. nám
B.S. nám
B.A. nám
B.A. nám
>> Kennaraháskóli Íslands
sími 563 3800 > www.khi.is
Mótaðu framtíð Íslands
>
>
>
>
Á flugvöllurinn að fara úr
Vatnsmýrinni?
Á að endurreisa húsin sem
brunnu á fimmtudag í sömu
mynd?
„Maður lifandi! Þetta
eru stórfelld pólitísk tíðindi,“ segir
Sveinn Rúnar Hauksson, formaður
félagsins Íslands-Palestínu, um yfir-
lýsingu Valgerðar Sverrisdóttur
utanríkisráðherra um málefni Pal-
estínumanna.
Valgerður sagði í Fréttablaðinu í
gær að hún teldi rétt að koma á eðli-
legum samskiptum við þjóðstjórn
Palestínumanna. „En svona stórpól-
itískar ákvarðanir verða ekki tekn-
ar í samsteypustjórnum án sam-
þykkis forsætisráðherra. Valgerður
verður að hafa Geir Haarde með sér
í þessu,“ segir Sveinn Rúnar.
Málið ætti að vera hafið yfir
flokkadrætti, segir Sveinn, því sam-
kvæmt samhljóða þingsályktun frá
1989 viðurkennir Alþingi sjálfs-
ákvörðunarrétt Palestínumanna.
„Hvernig getum við þóst viður-
kenna sjálfsákvörðunarrétt þjóðar
ef við viðurkennum ekki þau stjórn-
völd sem hún kýs í lýðræðislegum
kosningum?“
Sveinn segir framsóknarmenn
ávallt hafa sýnt Palestínumönnum
ákveðna samúð. „Forystumenn
Framsóknarflokksins hafa alltaf
haft svolitla sérstöðu í málefnum
Palestínumanna, alveg frá því að
Steingrímur Hermannsson fór til
Túnis að hitta Arafat. Það voru álíka
stór pólitísk tíðindi því þá var enn
þá verið að hamra á PLO sem ein-
hverjum hryðjuverkasamtökum,“
segir Sveinn. Ekki náðist í Geir H.
Haarde forsætisráðherra í gær.
Verður að hafa Geir með sér
Endurnýjun og
nýbygging fjósa með tilheyrandi
vélabúnaði hefur leitt til verulegr-
ar skuldaaukningar kúabænda. Er
talið að heildarskuldir kúabænda
nemi 25 milljörðum króna.
Um 760 kúabú eru á Íslandi og
sé heildarskuldunum jafnað á þau
reiknast skuld hvers bús um 33
milljónir króna.
Meðalskuldir heimilanna í land-
inu eru 13 milljónir.
Þórólfur Sveinsson, formaður
Landssambands kúabænda, segir
skuldirnar hafa vaxið á síðasta
rúma áratug en þá hófst uppbygg-
ingarskeið í greininni eftir
langvarandi tímabil stöðnunar.
Ekki eru til upplýsingar um eigna-
stöðu kúabænda en í ljósi hækkun-
ar jarðaverðs á síðustu árum telur
Þórólfur að eignastaðan hafi
styrkst. „En þetta snýst um rekstr-
arhæfi en ekki eignastöðu og það
er óþekkt fyrirbæri að banka-
stofnun tapi einni einustu krónu á
viðskiptum við kúabændur enda
pottþétt veð fyrir þessu öllu.“
Þórólfur segir mjólkurfram-
leiðslu freka til fjárins – binda
þurfi þrjár til fjórar krónur í eign-
um og aðstöðu fyrir hverja eina
krónu í veltu.
Tekjur kúabænda lækka að
raungildi á þessu ári frá árinu í
fyrra þar sem þeir skuldbundu sig
til að hækka ekki heildsöluverð
mjólkurvara. Þórólfi reiknast til
að tekjuskerðingin nemi tveimur
prósentum; 300 þúsund krónum á
bú. „Við gengumst inn á
þetta og á móti kemur að
ekki voru lækkaðir tollar á
mjólkurvörur. Við mátum
það svo að þetta væri skyn-
samlegt,“ segir hann og
bætir við að afkoma búanna
verði lakari sem þessu nemi
þegar upp er staðið. Rekst-
ur kúabúa á síðasta ári hafi
hins vegar verið þokkaleg-
ur og því hafi menn borð
fyrir báru.
Nýafstaðinn aðalfundur kúa-
bænda telur æskilegt að leyfður
verði takmarkaður innflutningur
erfðaefnis í tilraunaskyni.
Með því binda menn vonir
við að framleiðslukostnaður
mjólkur lækki. Þórólfur
segir Landbúnaðarháskól-
ann vinna að hagkvæmniút-
tekt en sex ára upplýsingar
bendi til að með nýju kúa-
kyni sé hægt að lækka fram-
leiðslukostnað hvers mjólk-
urlítra um tíu krónur.
Kostnaðurinn nemur nú 99
krónum. „En þetta tekur langan
tíma,“ segir Þórólfur, „og ekkert
liggur fyrir um hvort og þá hvernig
þetta yrði gert.“
Kúabændur skulda
25 milljarða króna
Skuldir kúabúa hafa aukist síðasta áratug og nema meðalskuldir búanna 33
milljónum. Kúabændur verða af 300 þúsund krónum í ár vegna aðgerða til
lækkunar matarverðs. Leiða er leitað til að lækka framleiðslukostnað mjólkur.
Fimm þúsund
kanínur trufluðu umferðina á
þjóðvegi í Ungverjalandi eftir að
flutningabifreiðin sem flutti þær
lenti í árekstri og valt á mánu-
dagsmorgun.
Loka þurfti þjóðveginum M1 í
nokkrar klukkustundir meðan
reynt var að safna saman kanínun-
um. Þjóðvegurinn er aðalumferð-
aræðin milli Ungverjalands og
Austurríkis.
Um miðjan dag var búið að hafa
uppi á um 4.400 kanínum og flytja
þær burt, en um 500 kanínur
drápust í slysinu. Hundrað
kanínur sluppu en þær verða þó
ekki eltar uppi.
Kanínur lokuðu
þjóðveginum