Fréttablaðið - 20.04.2007, Side 11
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
53
62
0
4
/0
7
Aldraðir hafa átt allan okkar stuðning í áratugi.
Taktu þátt því þörfin er brýn.
Einfaldur miði kostar aðeins 1.000 kr.
Opið um helgina í aðalumboðinu
Tjarnargötu 10, kl. 12:00 - 18:00.
Hringdu núna í síma 561 7757 - Kauptu miða á www.das.is
V-
RO
DHarley6x
+ 3 milljónir
í bakpokann
á tvöfaldan miða!
+ 6,3 milljónir í skottið
á tvöfaldan miða!
6xLexus GS 300
Miðasalan er hafin
-vinningur í hverri viku
768
skattfrjálsar
milljónir
í peningum
á árinu
Vinningarnir ver
ða til sýnis
í Smáralindinni
um helgina
Smáralind
um helgina
Nýtt happdrættisár - enn glæsilegri vinningar!
„Ég vonast að sjálfsögðu til þess að
þessi hús fái að vera áfram í borg-
armynd Reykjavíkur eins og borg-
arstjóri hefur gefið til kynna,“
segir Pétur Ármannsson arkitekt
og leggur til að húsin verði endur-
byggð í upprunalegri mynd. „Það á
sérstaklega við um húsið við Aust-
urstræti 22. Það hefur ekki verið
mikið augnayndi undanfarin ár og
því ætti að endurreisa það eins og
það var fyrir árið 1905 eða þegar
landsréttur var til húsa þar,“ segir
Pétur og bætir því við að húsið hafi
verið ákaflega fallegt áður en því
var breytt. „Það eru ýmsir mögu-
leikar þarna. Það kæmi til dæmis
til greina að nýta baklóðina betur
og búa til einhvers konar garð þar,“
segir Pétur.
Pétur segir alls ekki koma til
greina að byggja nútímalegar bygg-
ingar á reitnum. „Þetta er allt of
mikilvæg götumynd til þess að eyði-
leggja hana með þeim hætti. Þetta
horn er hluti af umhverfi stjórnar-
ráðsins og Bernhöftstorfunnar. Það
er líka mikilvægt að þarna rísi ekki
háhýsi því þá næði sólin ekki að
skína niður á Lækjartorg og Aust-
urstræti yrði heldur dimm og
óspennandi gata,“ segir Pétur.
Vill sjá uppbyggingu húsanna
„Þetta er ömurlegt. Ég get samt
sagt að ég vil ekki fá annað
Iðuslys í þetta sinn. Ég vil láta
byggja þetta upp eins og það
var,“ segir Guðrún Þorgeirsdóttir.
Hún hafnar öllum hugmyndum
um að húsin sem brunnu verði
hreinsuð burt. Það gerir Þorgeir
Ingvarsson einnig: „Ég vil halda í
það eins og þetta var og allir sem
ég þekki til eru á þeirri skoðun. “
Ekki annað Iðu-
slys í þetta sinn
Helena Dröfn Kristjánsdóttir
vildi halda því fyrir sjálfa sig
hvað hún vildi fá í staðinn fyrir
húsin sem brunnu í Austurstræti.
Eldri systir hennar, Edda Sóley,
var hins vegar með mótaða
hugmynd. „Ég vil eitthvað gamalt
og alveg eins í staðinn. Ég vil ekki
að stórt glerhús komi í staðinn.
Alls ekki.“
Við viljum ekki
stórt glerhús
„Ég er orðlaus vegna eyðilegging-
arinnar og ég vildi helst að þetta
væri áfram eins og þetta var. Það
er samt fáránlegt á vissan hátt að
byggja eitthvað upp sem er ekki
lengur,“ segir Nicola Christoph,
„Ég veit það eitt að ég vil ekki
einhvern skókassa hér.“ Nicola
vill að götumyndin haldi sér en
segir að vissulega sé það hluti
sögunnar að húsið brann.
Bruni er hluti
af sögunni
„Ég vil sjá eitthvað annað en
næturklúbb hér í götunni. Ég vil
fallegt hús þar sem fólk getur
komið saman allan sólarhring-
inn,“ segir Almar Halldórsson,
starfsmaður í Vöffluvagninum í
Austurstræti. Samstarfskona
hans, Ragnheiður Pálsdóttir . „Ég
vil fá það sama og ekki breyta
neinu. Ég vil hafa þetta eins og í
gamla daga.“
Vilja stað sem
eflir miðbæinn