Fréttablaðið - 20.04.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 20.04.2007, Síða 16
fréttir og fróðleikur Átta ráðherrar hafa kred- itkort ráðuneytisins á sínu nafni og nota það einkum til að greiða ferðakostnað og veisluhöld á vegum emb- ættisins, fyrst og fremst erlendis. Engar skýrar skriflegar reglur eru til um kortin og notkun þeirra aðr- ar en reglur um risnu. Ekki er til neitt yfirlit yfir það hvaða ráðherrar og stjórn- endur eru með kreditkort ríkisins á sínu nafni. Kreditkort á nafni ráðherra hafa tíðkast í flestum ráðuneytanna frá því snemma á tíunda áratugn- um. Kreditkortanotkun er bundin við 700 þúsund krónur á hverju úttektartímabili nema í utanríkis- ráðuneytinu, þar er heimildin bundin við 700 þúsund krónur inn- anlands og 500 þúsund krónur erlendis. Kortin eru ekki ætluð til persónulegra innkaupa. Ráðherr- arnir fá einnig í mörgum tilfellum dagpeninga á ferðalögum sínum. Fréttablaðið sendi erindi til ráðuneytanna í byrjun mars þar sem óskað var eftir upplýsingum um það hvaða ráðherrar hefðu kreditkort ríkisins á sínu nafni og hvaða reglur væru í gildi. Í ljós kom að engar skýrar reglur eru til um kortin eða notkun þeirra. Ráðuneytin svara því til að kortin séu ekki ætluð til persónulegra innkaupa heldur til að greiða ferðakostnað og veisluhöld á vegum ráðuneyta. Að öðru leyti séu ekki til reglur. Fréttablaðið óskaði einnig eftir útskriftum á notkunaryfirliti ráð- herranna fyrir árið 2006. Þeirri beiðni var hafnað á þeim grund- velli að upplýsingaréttur tæki ekki til þess að stjórnvöld útbúi eða taki saman skjöl með tilteknu efni. Upplýsingar úr bókhaldi falli undir þetta ákvæði og því sé beiðninni hafnað. Synjunin hefur verið kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Erfiðlega hefur gengið að fá símaviðtal við ráðherrana til að fá þeirra viðhorf til kreditkort- anna og notkun þeirra. Þetta gild- ir þó alls ekki um alla ráðherrana. Þannig er Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra með kreditkort en kveðst ekki nota það fyrir sjálfan sig, aðeins til að greiða kostnað sem augljóslega á að falla ráðuneytinu í skaut. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, hefur þá sérstöðu að forverar hans hafa haft kredit- kort ráðuneytisins á sínu nafni en hann hefur það ekki. Jón segist vera íhaldssamur í fjármálum og vilja hafa hreinar línur. Honum hafi ekki verið boðið kreditkort, hann hafi ekki óskað eftir því, hann vilji það ekki og þurfi þess ekki. Hann leggi út fyrir ráðu- neytið og framvísi reikningum ef á þarf að halda. „Ég hef alla mína ráðherratíð komist af án greiðslukorts á vegum ríkisins,“ segir Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumála- ráðherra. Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra segir að ráðherra- kort hafi verið í notkun í ráðu- neytinu og hann hafi tekið við korti fyrri ráðherra. „Ég nota þetta mjög lítið og kæmist alveg af án þess,“ segir hann. Árni Mathiesen fjármálaráð- herra telur fréttaflutninginn ómerkilegan og subbulegan þar sem verið sé að reyna að gera heiðarlegt fólk að skúrkum að ástæðulausu. „Það er búið að svara öllu í þessu máli og segja frá því mörgum sinnum hvaða reglur gilda um þessi kort,“ segir hann og vill ekki taka þátt í umræðunni. Heilbrigðisráðherra hefur ekki kreditkort á vegum ríkisins og segir að það hafi ekki tíðkast í ráðuneytinu seinni ár. „Sjónarmið- in eru þau að það sé betra að ég leggi út fyrir því sem þarf að greiða erlendis og skili svo inn reikningum. Þetta er talið henta okkur betur,“ segir Siv Friðleifs- dóttir. Hún var með ráðherrakort meðan hún var umhverfisráð- herra. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að það sé mikilvægt að skýrar verklagsreglur gildi um útgjöld ríkisins og að stjórn- sýslan sé opin um það í hverju útgjöldin felast. Öll óvissa varð- andi útgjöld sé bagaleg, sérstak- lega þegar komi að ráðherrum. Það sé verst fyrir þá sjálfa því að erlendis hafi komið fyrir að kred- itkort á nafni ráðherra hafi verið misnotuð þó að það sé algjör und- antekning. „Það skapar óvissu þegar ekki eru klárar leikreglur um það hvernig á að fara með fjármagn. Þess vegna er mikilvægt að skýr- ar vinnureglur séu samræmdar milli ráðuneyta þannig að hvert ráðuneyti sé ekki með sínar eigin útfærslur. Það er bara sjálfsagt í opnu lýðræðislegu þjóðfélagi að vinnureglur séu skýrar og kjós- endur fái aðgang að því í hvað skattpeningar séu nýttir.“ Ráðuneytisstjórar, bílstjórar og jafnvel forstjórar ríkisstofn- ana hafa einnig kreditkort ríkis- ins á sínu nafni. Hvergi er til yfir- lit yfir það hverjir eru með kreditkort af þessu tagi og hverj- ir ekki. Ríkisendurskoðun var upphaflega mótfallin því að ráðu- neyti og stofnanir væru með kreditkort á nafni stjórnmála- manna og embættismanna en Sig- urður Þórðarson ríkisendurskoð- andi segir að ekki hafi verið hægt að banna það. Hver stofnun ákveði þetta fyrir sig. Öll óvissa um útgjöld er bagaleg Afkvæmi stjörnustríðsáætlunar Reagans Skógrækt gegn mengun

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.