Fréttablaðið - 20.04.2007, Page 28

Fréttablaðið - 20.04.2007, Page 28
„Skipulögð trúarbrögð: heimsins stærsta pýramída- svindl.“ Skotárásin í Columbine Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ingvi Brynjar Jakobsson fyrrv. lögregluvarðstjóri á Keflavíkurflugvelli, lést þriðjudaginn 17. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Ragnheiður Elín Jónsdóttir Eva Bryndís Ingvadóttir Þórunn Elísabet Ingvadóttir Eyrún Jóna Ingvadóttir Aðalheiður Ingvadóttir Anna Ingvadóttir Erla Ingvadóttir Brynjar Ragnar Ingvason tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Vilhelm Ákason frá Djúpavogi, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 16. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Halla Jónsdóttir Hanna Jónsdóttir Ingólfur Hrólfsson Alda Jónsdóttir Eyþór Guðmundsson Axel Jónsson Margrét Gísladóttir Áki Jónsson Bryndís Tryggvadóttir Jóhann Jónsson Sigríður Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 50 ára í dag Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri er fimmtugur í dag. Hann er með opið hús í kvöld og tekur á móti ætting jum, vinum og samferðafólki í Tónlistarhúsinu Ými, við Skógarhlíð, kl. 20.00 - 23.00. Boðið verður upp á léttar veitingar, söng og gamanmál. Drekktu getur, vikuleg spurningakeppni Grand Rokks, verður haldin í 200. skipti í kvöld. Freyr Eyjólfs- son útvarpsmaður er upp- hafsmaður kepninnar. „Ég var nýkominn frá Englandi þar sem ég hafði skellt mér á „pub quiz“ og undraðist bara yfir því að það væri ekki til neitt slíkt á Íslandi. Svo ég byrjaði bara með þetta á Grand Rokki, þar sem eigandinn, Karl Hjaltested, var alltaf til í að gera allt og allar flipp- uðustu hugmyndirnar urðu að veruleika samstundis,“ sagði Freyr. Hann hagræddi og breytti formi spurningakeppninnar hins vegar aðeins og er form Freys enn í heiðri haft í dag. „Ég bjó til þetta form að hafa þrjátíu spurningar, að staðurinn splæsti bjórkassa á það tveggja manna lið sem ynni, og að hafa átjándu spurningu alltaf bjórspurn- ingu,“ útskýrði Freyr. Hann segir þó aðeins fastara form hafa verið á keppninni í ár- daga hennar en það er í dag. „Það var alltaf ein spurning úr Tinna, ein spurning úr Ís- lendingasögunum og ein úr Biblíunni,“ sagði hann. Eftir að Freyr lét af störf- um sem umsjónarmaður Drekktu betur fetuðu ekki síðri vísdómsmenn í fót- spor hans. „Jón Proppé sá þá um að bóka spyrla og halda utan um þetta, næstur kom Davíð Þór Jónsson og svo Kristinn glæpaforingi – þetta er glæsilegur flokkur manna,“ sagði Freyr. Gunn- ari Árnasyni, umsjónar- manni Drekktu betur í dag, þykir Ómar Ragnarsson hins vegar hafa verið hvað eftir- minnilegastur í spyrilshlut- verkinu. „En mismunandi fólk kemur með mismunandi keppni. Spyrlarnir spyrja sinna spurninga, sama hvort það er upp úr þeirra áhuga- máli eða almenns eðlis. Þetta er síbreytilegt,“ sagði hann. Gunnar sagði fólk flykkj- ast hvaðanæva að til að taka þátt í keppninni. „Það koma líka margir krakkar sem hafa tekið þátt í Gettu betur í gegnum tíðina og vilja við- halda þessari hefð. Stemn- ingin er alltaf rífandi góð.“ Í tilefni af afmælinu segir Gunnar vel geta farið svo að verðlaun í keppninni verði enn veglegri. Hún hefst klukkan hálf sex í kvöld. AFMÆLI AFMÆLI KVÍSKERJABRÆÐRA FÆDDUST ÞENNAN DAG

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.