Fréttablaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 34
BLS. 2 | sirkus | 20. APRÍL 2007
Heyrst hefur
Heiðrún Lind og Halli
ekki saman
Frétt Sirkus þess efnis að sjálfstæðis-
konan og lögfræðing-
urinn Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, sem
er kannski hvað
þekktust fyrir að hafa
verið kosningastjóri
Gísla Marteins
Baldurssonar í
prófkjöri ajálfstæðis-
manna í Reykjavík
haustið 2005, og
Haraldur Hansen,
betur þekktur sem
Halli Hansen, séu að
rugla saman reytum
er víst ekki rétt. Þau
hafa hist nokkrum
sinnum en eru ekki saman. Sirkus biður
skötuhjúin velvirðingar á þessu.
Lúxus BMW-partý á Nordica
Það verður blásið til heljarinnar veislu á
miðvikudaginn næstkomandi í hátíðarsal
Nordica-hótelsins. B&L ætlar þá að
bjóða vel völdum aðilum sem og
eigendum BMW-bifreiða í einkapartý til
að fagna því að ný gerð að BMW X5,
lúxusjeppa þýska bílaframleiðands, er á
leiðinni á göturnar. Ekkert verður til
sparað til að gera veisluna sem
glæsilegasta. Myndum eftir franska
listmálarann Paul Gauguin verður varpað
upp á veggi salarkynnanna með
myndvarpa og þema veislunnar er Tahiti.
Það má því búast við að allt verði
flæðandi í framandi suðrænum ávöxtum
auk þess sem sérhannaður viskíbar
verður settur upp í tilefni veislunnar.
Skemmtiatriðin verða ekki af verri
endanum því blúsbandið Mút mun spila á
meðan gestir innbyrða kokkteila. Síðan
munu Lay Low,
Pétur Ben og Ólöf
Arnalds, þrjú af efni-
legustu tónlistar-
mönnum landsins,
stíga á stokk og
skemmta
veislugestum. Auk
þess mun fiðluleikarinn Hjörleifur Valsson
mæta með Stradivarius-
fiðluna sína og fylla
loftið af háklassík.
Sjónvarpsmaðurinn
geðþekki Logi
Bergmann mun halda
utan um veislustjórnina
af sinni alkunnu snilld.
VANDAÐ TIL VERKA Hárgreiðslumaður-
inn og stílistinn Skjöldur Eyfjörð var
einbeittur á svip þegar hann gerði hár
Silvíu Nætur klárt fyrir forsíðumyndatöku
Sirkus. SIRKUSMYND/VALLI
Það gætu margir haldið að
forsíðumynd Sirkus í dag sé
unnin í tölvu og að andliti
Silvíu Nætur og Ágústu Evu
Erlendsdóttur sem leikur
þennan litríka karakter hafi
verið skeytt saman með
hjálp tækninnar en svo er
ekki. Þetta er raunveruleg
mynd sem tekin er á
hárgreiðslustofu Skjaldar
Eyfjörð sem hefur unnið
mikið með Ágústu Evu á
meðan Silvíu Nætur-
ævintýrið hefur staðið.
Skjöldur sá um greiðsluna en
Ágústa Eva sá um förðunina
líkt og hún hefur gert allan
þann tíma sem Silvía hefur
verið til. Það var síðan
ljósmyndari Sirkus Valgarður
Gíslason sem tók myndina
og festi jafnframt á filmu
allan undirbúninginn, sem
tók fjóra klukkutíma.
Mikil vinna að baki forsíðumyndinni
Þ etta var æðislegt, alveg hrikalega gaman,“ segir fréttakonan
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir en hún
var ein af rúmlega þúsund Íslending-
um sem fögnuðu vetrarlokum með
Sálinni og Stuðmönnum á tónleikum
á skemmtistaðnum Circus í
Kaupmannahöfn á miðvikudags-
kvöldið. Tónleikarnir voru skipulagð-
ir af Hótelbókunum í Kaupmanna-
höfn (www.kaupmannahofn.dk) í
samstarfi við Icelandair.
Sigurður K. Kolbeinsson, fram-
kvæmdastjóri Hótelbókana í
Kaupmannahöfn, segir í samtali við
Sirkus að tónleikarnir og kvöldið allt
hafi verið brakandi „söksess“ eins og
hann orðar það, „Ég er búinn að tala
við um tvo hundruð tónleikagesti og
þeir höfðu aldrei upplifað annað
eins,“ segir Sigurður.
Um 780 manns mættu í matinn en
alls voru um 1.100 gestir þegar mest
var á tónleikunum sjálfum. Stuð-
menn og Sálin spiluðu strax eftir að
mat lauk en rétt fyrir klukkan tíu
steig Eyjólfur Kristjánsson á svið
ásamt meðlimum Sálarinnar og flutti
hana Nínu sína við frábærar
undirtektir gesta. Allt ætlaði síðan
um koll að keyra þegar hann söng
Danska lagið sem gert var ódauðlegt
með Bítlavinafélaginu á sínum tíma.
Gestir dönsuðu uppi á borðum og
stólum og var stemningin hreint
sturluð að sögn Sigurðar.
Eftir hlé mættu Stuðmenn á svið
með Björgvin Halldórsson í farar-
broddi. Björgvin tók tvo lög, She
Broke My Heart í minningu Long
John Baldry sem lést í fyrra og síðan
slagarann Tætum og tryllum.
Stuðmenn spiluðu í tæpa tvo tíma og
Sálin kláraði síðan frábærlega vel
heppnaða tónleika með eins og hálfs
tíma stanslausu stuði.
Sigurður segir að allt hafi gengið
upp. Helst hafi mátt finna að því að
þjónustan á barnum var ekki
nægilega góð þar sem Danirnir gerðu
sér ekki grein fyrir því hversu mikið
og hratt Íslendingar drykkju og
loftræstingu hefði vantað. Það væru
þó smámunir og stefnir Sigurður að
því að halda svipaða tónleika að ári.
Hverjir spila þá er leyndarmál enn
sem komið er.
oskar@frettabladid.is
SÍÐASTA VETRARDEGI FAGNAÐ MEÐ SÁLINNI OG STUÐMÖNNUM Í KAUPMANNAHÖFN
ÞÚSUND ÍSLENDINGAR
DÖNSUÐU UPPI Á BORÐUM
VIÐ DANSKA LAGIÐ
GK-GENGIÐ Í GÓÐUM GÍR Arnar Gauti og
Íris Björk Jónsdóttir, sem eiga tískuvöru-
verslunina GK, virtust skemmta sér vel á
tónleikunum. SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR
BROSMILDAR BLÓMARÓSAR Fréttakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, menntamálaráðherrann Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
Anna María Urbanic og Berta Guðmundsdóttir brostu út að eyrum áður en haldið var á tónleikana. SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR
KYLFINGUR Í KÖBEN Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur
býr í Lúxemborg en það virtist ekki aftra honum frá því að
mæta með eiginkonu sína Elísabetu Halldórsdóttur á tónleika
Sálarinnar og Stuðmanna. SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR
TVÍFARAR? Veitingamaðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Friðrik
Weisshappel og Orri Hauksson, stjórnarformaður Tæknivara,
voru skeggjaðir og vel greiddir á tónleikunum.
SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR