Fréttablaðið - 20.04.2007, Page 44
BLS. 12 | sirkus | 20. APRÍL 2007
TÉKKLAND
Flytjandi: Kábat Lag: Mála Dáma
Þriðji síðhærði rokkarinn í keppninni.
Popp/rokk lag sem gæti gengið vel ef að
áhorfendur eru ekki að fíla danslögin.
PORTÚGAL
Flytjandi: Sabrina
Lag: Dança Comigo
Annað af tveimur
lögum í forkeppninni
sem eru í suðrænni
sveiflu. Því miður
höfum við heyrt þetta þúsund sinnum
áður. Portúgal er ekki að gera góða hluti
í Eurovision í ár.
MAKEDONÍA
Flytjandi: Karolina
Lag: Mojot Svet
Karolina er svo
fáránlega falleg að
útlitið kemur henni í úrslitin. Lagið er hins-
vegar ekkert spes en það eiga allir eftir
að muna eftir þessu andliti.
NOREGUR
Flytjandi: Guri Shanke
Lag: Ven A Bailar Conmigo
Af hverju er Noregur að syngja lag á
spænsku? Guri er alveg tryllt á sviðinu í
suðrænum dansi. Það er eitthvað alveg
vonlaust við þetta lag. Vonandi verða
Norðmenn ekki fúlir þótt við gefum þeim
ekki fullt hús stiga.
MALTA
Flytjandi: Olivia Lewis
Lag: Vertigo
Það er alltof mikið af óspennandi lögum í
forkeppninni. Þetta er eitt þeirra. Sæt
stelpa að syngja einhverja vellu.
ANDORRA
Flytjandi: Anonymous
Lag: Salvem El Món
Popp/rokk lag sem gæti alveg átt heima
á MTV í Bandaríkjunum. Lagið gæti alveg
eins verið flutt af Blink 182, Fall Out Boy
og öllum þessum drepleiðinlegu
amerísku popp/rokk sveitum.
UNGVERJALAND
Flytjandi: Rúzsa Magdi
Lag: Unsubstantial Blues
Ung skvísa með fallega
rödd. Þetta er svona lag
sem maður heyrir á Létt
Bylgjunni. Ekki mjög
Eurovisionlegt. Þessari
stúlku gæti gengið mjög vel.
EISTLAND
Flytandi. Gerli Padar
Lag: Partners in Crime
Lagið er alls ekki gott, en söngkonan
minnir pínu á Pink. Það er aldrei að vita
nema að Eistar komist upp úr forkeppn-
inni, en þeir eiga það ekki skilið.
BELGÍA
Flytjandi Krazy Mess Groovers
Lag: Love Power
Þessi sveit er að reyna að vera bland af
Jamiroquai og Kc and the Sunshine
Band. Þetta er svona lag sem maður fær
nóg af eftir nokkrar sekúndur.
SLÓVENÍA
Flytjandi: Alenka
Gotar
Lag: Zvet z Juga
Popp-óperulag
sem annaðhvort
á eftir að slá í
gegn eða falla
beint í neðsta
sæti. Lagið er
svo tregafullt að
manni verður
bara illt að hlusta
á það.
TYRKLAND
Flytjandi: Kenan Dogulu.
Lag: Shake It Shekerim
Tyrkland hefur ákveðið að taka Justin
Timberlake á þetta með dassi af
þjóðlagastemmningu. Söngvarinn á
örugglega eftir að heilla píurnar upp úr
skónum og er öruggur í úrslitaþáttinn.
AUSTURRÍKI
Flytjandi: Eric Papilaya
Lag: Get a Life-Get Alive
Þessum söngvara gæti gengið vel. Hann
er ágætlega vel útlítandi. Lagið er samt
svo ekki skemmtilegt. Það eina góða við
þetta lag er titillinn. Hann er fáránlega
fyndinn.
LETTLAND
Flytjandi: Bonaparti.lv
Lag: Questa Notte
Gaman að enda kvöldið á skemmtilegu
nótunum. Sönggrúppan Bonaparti Iv er
meira grín en eitthvað annað. Þeir syngja
poppóperu á ítölsku. Þessir strákar
komast pottþétt í gegn hvort sem fólk
fattar djókið eða ekki.
ÞRJÁR VIKUR ÞAR TIL FORKEPPNI EUROVISION FER FRAM Í FINNLANDI
SVONA ER SAMKEPPNIN
HJÁ EIRÍKI Í HELSINKI
F lautað verður til leiks í forkeppni Eurovision í Helsinki eftir rétt tæpar þrjár vikur, fimmtudaginn 10. maí. Sirkus skoðaði framlög þjóðanna 27
sem berjast við Eirík okkar Hauksson um sætin tíu í aðalkeppninni laugardag-
inn 12. maí. Það er enginn vafi í huga Sirkuss að Eiríkur rúllar upp forkeppn-
inni með lagi Sveins Rúnars Sigurðssonar Valentine Lost við texta Peters
Fenner.
ANNAR HLUTI
UMFJÖLLUNAR