Fréttablaðið - 20.04.2007, Qupperneq 66
Afmælistónleikar hljóm-
sveitarinnar Síðan skein sól
í Borgarleikhúsinu á mið-
vikudagskvöld heppnuðust
frábærlega. Helgi Björns-
son og félagar voru í miklu
stuði og áhorfendur nutu
stundarinnar vel.
Það var ekki að sjá á tónleikum
Síðan skein sól í Borgarleikhús-
inu á miðvikudagskvöld að þar
færi hljómsveit sem sjaldan kæmi
fram. Helgi Björnsson og félag-
ar fögnuðu þetta kvöld 20 ára af-
mæli sveitarinnar og léku á tvenn-
um mögnuðum tónleikum. Björn
Jörundur Friðbjörnsson, KK og
Silvía Nótt komu auk þess fram
með sveitinni og heppnaðist inn-
koma þeirra ágætlega.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
hefur verið mikið fjarverandi frá
skjánum undanfarna tvo mánuði
og fyrir því er góð ástæða. „Ég hef
verið í starfsnámi enda útskrif-
ast ég úr sjúkraþjálfunarnáminu
sextánda júní,“ sagði Ragnhild-
ur þegar Fréttablaðið náði tali af
henni. Sjónvarpskonan góðkunna
segist verða ákaflega fegin þegar
þessari törn lýkur.
Ragnhildur hóf starfsþjálfun
sína á Landspítalanum en færði
sig síðan yfir á Hrafnistu þar
sem gamla fólkið tók vel á móti
henni. „Þetta hefur verið heljar-
innar lífsreynsla og það er alveg
ótrúlegt hvað gamla fólkið getur
gert,“ segir Ragnhildur og bætir
því við að þarna hafi hún séð að
eldri borgararnir sitja ekki bara
með hendur í skauti heldur aðhaf-
ast ótrúlegustu hluti.
Ragnhildur er þekkt andlit enda
verið á skjánum í þó nokkur ár. En
á Hrafnistu segist hún hafa feng-
ið ágætis „reality check“. „Þegar
maður var kominn úr sjónvarps-
fötunum og yfir í hvíta sloppinn
var maður sjúkraþjálfari. Reynd-
ar var fólkið á Hrafnistu alltaf að
segja við mig hvað ég líktist þess-
ari Ragnhildi í sjónvarpinu,“ segir
hún og hlær.
Og sjónvarpskonan telur að allir
sem eru í fjölmiðlum hefðu hrein-
lega gott af því að fara í stutta dvöl
á Hrafnistu. „Þarna lærir maður
að tala kjarnyrt og gott mál,“ segir
Ragnhildur, reynslunni ríkari.
Þótti lík þessari Ragnhildi í Kastljósinu
Idol-dómarinn Simon Cowell
hefur skotist upp listann yfir rík-
ustu menn Bretlands síðasta árið.
Velgengni hans er slík að hann er
orðinn ríkari en söngvarinn Robb-
ie Williams sem lengi hefur verið
meðal ríkustu manna í poppbrans-
anum. Auðævi Simons Cowell eru
metin á yfir 13 milljarða króna og
hafa aukist um yfir fimm millj-
arða síðasta árið.
Simon Cowell, 46 ára, er nú
í hópi 700 ríkustu manna Bret-
lands og meðal þeirra allra rík-
ustu í poppbransanum. Þau tíð-
indi að hann sé ofar á listanum en
Robbie Williams eiga ekki eftir að
gleðja söngvarann enda hafa þeir
oft á tíðum eldað saman grátt silf-
ur. Cowell sagði á dögunum að
Robbie þyrfti ekki að vera í eitur-
lyfjameðferð, hann þyrfti bara að
„taka sig taki“.
Robbie, 33 ára, er dottinn niður
í sæti 755 yfir ríkustu menn
Bretlands. Auðævi hans eru
metin á rúma 12 milljarða
króna og skýrist fall hans
niður listann af dræmum
viðtökum sem síðasta plata
hans, Rudebox, fékk
meðal almennings.
Robbie gortaði
sig einu sinni af
því að vera „rík-
ari en mig gæti
dreymt um“ en í
ljósi þess að Cowell er orðinn rík-
ari en hann eiga þau ummæli
ekki leng- ur við.
Á síðasta ári var Cow-
ell í sæti 944 yfir auð-
ugustu menn í
Bretlandi.
Gífur-
leg vel-
gengni hans í
Bandaríkj-
unum með
American
Idol auk vel-
gengni með
sjónvarps-
þætti í föð-
urlandinu
hefur aftur á móti flutt hann hratt
upp listann.
Eins og undanfarin
ár er Bítillinn Sir Paul
McCartney ríkasti ein-
staklingurinn í popp-
bransanum. Hann situr
í sæti 102 yfir rík-
ustu menn Bretlands
og auðævi hans eru
metin á um 95 millj-
arða króna.
Cowell ríkari en Robbie
Jude Law hefur fundið ástina á ný.
Sex mánuðir eru liðnir síðan sam-
bandi hans og leikkonunnar Si-
ennu Miller lauk og síðan þá hefur
hann verið orðaður við ótal konur
í fjölmiðlum. Ein þeirra er Halla
okkar Vilhjálmsdóttir eins og
kunnugt er. Nú er Jude ástfanginn
upp fyrir haus af Kim Hersov sem
er ritstjóri tímaritsins Harpers
& Queen.
Hersov er
38 ára og á
tvö börn af
fyrra hjóna-
bandi. Turt-
ildúfurnar
hafa verið
saman í fríi
á Indlandi
og njóta
þess að vera
ástfangin.
Jude Law
ástfanginn
SMS
LEIKUR
BESTI PLAYSTATION 2 LEIKUR ALLRA TÍMA
11. HVER
VINNUR!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð
.
SENDU SMS
BTC FGW Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU: GOD OF W
AR 2
DVD MYNDIR, FULLT AF PEP
SI,
AÐRIR TÖLVULEIKIR OG
MARGT FLEIRA
STRANGLEGA BANNAÐUR INNAN 18 ÁRA!
LENDIR
26. APR
ÍL Í BT!